Helgarlagiđ Shall We Dance?

Bíómyndin Shall We Dance međ Richard Gere og Jennifer Lopez í ađalhlutverkum var sýnd í Sjónvarpinu á mánudag. Í lok myndar kom fram í texta ađ hún var tekin ađ stórum hluta í Winnipeg, Manitoba. Á ţessum Íslendingaslóđum tók ég háskólapróf fyrir nok löngu. Ţá sveif nú ekki suđur-amerísk dansstemming yfir vötnum. Einhverjir útnefndu hana borg ţungarokksins í Ameríku, enda slíkur frumkraftur meira viđ hćfi í frosthörkum miđhluta Kanada heldur en sólarsamba eđa ástríđufullur tangó.

Í myndinni laumast lögfrćđingurinn sem Richard Gere leikur á námskeiđ í suđrćnum dönsum. Á međfylgjandi myndbandi er hann búin ađ láta undan ţrýstingi og ćfir sig fyrir ţátttöku í danssýningu skólans. Danskennarinn Jennifer Lopez nćr ađ kynda upp kröftuga sveiflu í gamla silfurrefnum undir lagi međ Gotan Project. Ég hef haft ţađ mér til dundurs og ánćgju ađ safna ađ mér suđrćnni tónlist síđustu ár og Gotan er í sérstöku uppáhaldi. Ţeir spila flotta og nútímalega tangótónlist, órćđ og afgerandi í senn.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sćll. Ţetta er verulega flott tangótónlist. Ţakka ţér fyrir ađ nefna nafniđ á hljómsveitinni. Held ég kaupi disk međ ţeim. Sigrún

Sigrún (IP-tala skráđ) 30.3.2008 kl. 15:32

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband