VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR -Umræða-

Skoðun Hvað finnst þér um-

 

-stjórnsýslu

-afmörkun

-gestastofur

-byggðaþróun

-nátturuvernd

 

 

 

Mér finnst -

http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/370451/

http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/366489/

http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/364209/

http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/367278/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gulli,

Fínar greinar hjá þér! Ágætt að koma hreyfingu á umræðuna um þjóðgarðinn. Mína skoðun á þjóðgarðsmálunum má finna á blogg-síðu minni: http://pahuljica.blog.is/blog/pahuljica/entry/368575/

Kveðja, Helga Davids

Helga Davids (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 16:04

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Takk Helga

Stjórnsýla - Umhverfisráðherra hefur lýst því yfir að sér finnist stjórn þjóðgarðsins koma til með að verða óþarflega flókin. Þar að auki finnst mér þar vera of hátt hlutfall fulltrúa stofnana og félaga frá Langtíburtistan og sveitarstjórnarmanna, en engir landeigendur og of fáir með sterk fræðileg, atvinnuleg eða jafnvel tilfinningaleg tengsl við einstaka náttúruperlur eða svæði. Því vantar sálina í þetta en það er auðvitað nóg af fólki sem vill þiggja laun fyrir setu í nefndum og ráðum.

Afmörkun - Hef aldrei verið sannfærður um að ég nái að skynja Stafafell og Ásbyrgi, svo dæmi séu tekin, innan sömu heildar. Skipting í svæðisráð mun jafnframt auka líkur á hrepparíg um fjármagn og stöður. Stafafell í Lóni bíður upp á þróun hringleiða innan svæðisins út frá skálum. Jafnframt lengri göngur milli svæða, yfir í Nes, Fljótsdal og Álftafjörð. Flatarmál eða heildarstærð þjóðgarðsins virðist vera veigamikill punktur í allri umræðu, frekar en að teknar séu út einingar sem að hafi mikið verndargildi með tilliti til sögu og náttúrufars.

Gestastofur - Stafafell í Lóni var alltaf sett inn sem fyrsti kostur við val á gestastofu, þegar umræða um Vatnajökulsþjóðgarð var enn á forsendum náttúruverndar og útivistar. Tengsl og nánd ferðamannsins við náttúruna. Eins og bent hefur verið á hefði það verið einkennilegt að staðsetja þjónustumiðstöð fyrir Skaftafell út á Fagurhólsmýri af því að þar væri verslunarkjarni. Sérstaða Stafafells með tilliti til náttúrufars og  stærðar er hvergi dregin fram. Það eru ekki nema um fimm svæði á landinu þar sem ferðalangar geta rölt til fjalla og dvalið viku eða lengur með nýtt ævintýri á hverjum degi.

Byggðaþróun - Gömlu einingar Austur-Skaftafellssýslu sem enn eru notaðar eru Öræfi, Suðursveit, Mýrar, Nes og Lón. Lón var fyrir rúmum hundrað árum fjölmennasta einingin en er nú lang fámennasta með tilliti til fastrar búsetu. Það sem meira er að af þeim u.þ.b. fjörutíu sem eru þar með lögheimili er hlutfall barna mjög látt. Því mætti ætla að einhvern tíma kæmi að því að ríki og sveitarfélag leggðu sitt af mörkum til að styðja við atvinnustarfsemi sem snúið gæti við þeirri þróun sem orðið hefur í Lóni á síðustu öld. En nú á að taka náttúrutengda uppbyggingu inn í þéttbýlið.

Náttúruvernd - Hlutverk hennar er annarsvegar verndun og fræðsla á svæðum sem talið er að hafi sérstöðu með tilliti til náttúrufars og sögu. Hinsvegar að auðvelda aðgengi ferðafólks að náttúruverndarsvæðum. Eðlilegt er að gera ráð fyrir að slík uppbygging sé gerð á vistvænum forsendum. Hún hafi sem minnst áhrif á umhverfi, auk þess sem áherslur lögð sé áhersla á uppbyggingu fyrir göngufólk og útivist, fremur en uppbyggingu sem aðallega er til að þjónusta bílaumferð. Stafafell í Lóni er um 400 ferkílómetra svæði sem skipulagt hefur verið sem "griðland göngumannsins" og það helsta sem vantar er vönduð þjónustumiðstöð í byggð.

Þetta eru viðhorf sem að eru sett fram sem stundarfyrirbæri og persónuleg upplifun til umræðu og athugunar, frekar en rót þeirra sé neikvæðni eða dómharka.

Gunnlaugur B Ólafsson, 25.11.2007 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband