Bestu óskir

Er búin að vera að setja mig í stellingar með að skrifa færslu um nauðsyn þess að efla og opna alla umræðu innan Samfylkingarinnar. Að flokkur og félagsmenn einbeiti sér að fullri þátttöku í hinu samfélagslega endurmati.

Í stað þess að setja orkuna meira í þann farveg þá sendi ég bestu óskir til Ingibjargar í hennar vinnu framundan við að ná góðri heilsu og starfsorku. Það hlýtur að vera erfitt að losa hugann frá þeirri ólgu sem er í landinu.

Virðing fyrir heilsunni og lífinu verður að ganga þvert á flokkslínur.


mbl.is Ingibjörg Sólrún lengur frá en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Það er mín ósk að hún nái sem fyrst fullum bata og geti beitt sér í þágu lands og þjóðar en nú sýnist mér Össur vera sá eini sem er að vinna virkilega í að koma atvinnulífinu til hjálpar og fá inn í landið erlenda fjárfestingu , en þá kemur umhverfisráðherra og hennar fylgisveinar og reyna að rífa það niður. Góð samvinna það.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 15.1.2009 kl. 22:36

2 Smámynd: Þórbergur Torfason

Við tökum öll undir góðar óskir til utanríkisráðherra.

Þórbergur Torfason, 16.1.2009 kl. 00:19

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Að sjálfsögðu óskum við Ingibjörgu góðs bata

Hólmdís Hjartardóttir, 16.1.2009 kl. 09:27

4 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Vonandi fær Ingibjörg Sólrún góðan bata.  Vona einnig að hún verði ekki vaxandi atvinnuleysi að bráð og finni gott starf sem hentar hennar hæfileikum þegar hún snýr baka.

Jón Kristófer Arnarson, 16.1.2009 kl. 11:22

5 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Jón, þú ert ekki þjóðin og ákvarðar því ekki hverjir gegna starfi fulltrúa á löggjafarsamkomunni nema með atkvæði þínu. Hinsvegar eru góðu fréttirnar þær að þú getur boðið þig fram og sýnt fram á að starfið "henti" þér. Þannig er lýðræðið en sum öfl þjóðfélagsins virða ekki niðurstöður kosninga. Þau hafa réttu útgáfuna af sannleikanum og þurfa ekki að hlusta eða taka tillit.

Gunnlaugur B Ólafsson, 16.1.2009 kl. 12:24

6 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Æ fyrirgefðu Gunnlaugur.  Ég var búinn að gleyma því að þetta með samræðustjórnmálin og frjálslynda lýðræðið var bara plat.

Jón Kristófer Arnarson, 16.1.2009 kl. 12:51

7 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Samræður eru ekkert plat, en þú varst að setja þig í stellingar sem úthlutunaraðili á þingsætum. Það væri t.d. tilvalið að VG kláraði umræður og leyfði lýðræði innan flokksins um Evrópumálin.

Gunnlaugur B Ólafsson, 16.1.2009 kl. 14:49

8 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Ingibjör Sólrún er ábyggilega besta skinn og hæfileikarík á einhverjum sviðum.  En afleitur stjórnmálamaður. 

Jón Kristófer Arnarson, 16.1.2009 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband