Dýrsleg grimmd

Sagan af Josef Fritzl var ótrúleg, en nú birtist að nokkru hliðstæð saga frá Kaliforníu. Ódæðismaðurinn Philip Garrido og kona hans rændu 11 ára stúlku 1991 og henni var komið fyrir í bakgarði þeirra þar sem að hún hefur að mestu dvalið í 18 ár og ræninginn eignast með henni tvö börn.

Hér eru viðtöl og frásagnir á CNN.

Hér er frásögn á MSNBC 

Hér er frásögn á Fox News


mbl.is Átti 2 börn með ræningjanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki dýrsleg grimmd.

Dýr gera ekki svona viðbjóðslega hluti.

Solla (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 10:57

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ég var einmitt að hugsa þetta eftir á. Það væri bara át og dráð. Reyndar leika kettir sér að bráðinni. En sennilega væri meira passandi að segja "sjúkleg mannvonska". En hvernig geta frú Fritzl og frú Garrido tekið þátt í slíkri yfirhylmingu? Menn þeirra svipta barn æskunni og hneppa í kynlífsþrælkun.

Gunnlaugur B Ólafsson, 28.8.2009 kl. 13:21

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég held að skýringin felist að nokkru leyti í því að þá fá þær smá frið fyrir vonskunni....

Sorglegt!

Hrönn Sigurðardóttir, 28.8.2009 kl. 13:36

4 identicon

Hvað mynduð þið gera ef þetta væri barnið ykkar?

Eða að þið væruð dómarar sem ættuð að dæma í málinu.

Hver ætti refsingin að vera?

Mr. Jón Scout Commander (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 14:28

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Af hverju ætti ég að vilja vera dómarinn eða sá sem ætti barnið?

Ég átta mig ekki alveg á samhenginu hér. Af hverju þarf ég að ákvarða refsinguna? Þetta fólk sætir þeim lögum sem gilda í þeirra heimalandi! Það hlýtur að vera nóg. 

Ég skil ekki af hverju þarf að setja sig í spor allra út um allt. Sumt skilur maður bara ekki og langar ekki einu sinni að reyna að skilja það. Annað er manni alveg sama um. Ég segi fyrir mína parta að ég hef nóg af vandamálum að leysa í héraði þó ég sé ekki að fiska annarra manna vanda globalt.

Hrönn Sigurðardóttir, 28.8.2009 kl. 21:57

6 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

.."hef nóg af vandamálum að leysa í héraði" - dýrðlega orðheppinn Hrönn. Það er ekki minn tebolli að velta mér upp úr svona. Fékk bara endurtekinn hroll í fréttunum af Fritzl málinu, en sprakk á þagnarbindindi þegar annað hliðstætt mál kemur upp. Mbk, G 

Gunnlaugur B Ólafsson, 28.8.2009 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband