Framsóknarmenn á leið til Katar

MúslimarFréttst hefur að framsóknarmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þórhallsson séu nú á leið til fundar við Sheikh Hamad bin Khalifa al-Thani, Emír í Katar. Hann hefur að sögn framkvæmdastjóra flokksins boðið þeim tveimur prívat og persónulega 500 milljarða kúlulán.

Á ferð þeirra um Noreg í síðustu viku kom í ljós að norðurlandaþjóðirnar gera sömu kröfur til okkar Íslendinga og aðrar lýðræðisþjóðir álfunnar. Að við stöndum við samninga og ársgömul fyrirheit Davíðs Oddssonar, Geirs Haarde og Árna Mathiesen.

Framsóknarmennirnir gera sér þó vonir um að í arabaheiminum séu ekki slík óáþreifanleg siðferðisviðmið að þvælast fyrir. Hinsvegar er talið að þeir verði að tileinka sér siði innfæddra til að ná árangri. Því hafa þeir nú farið í litgreiningu varðandi val á réttum slæðum til klæðnaðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samfylkingar sullum bull,sama gamla lýgin.

Gissur Jóhannesson (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 09:07

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 10.10.2009 kl. 09:41

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ertu ekki að grínast??????????

Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.10.2009 kl. 10:33

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sæll sýslungi.Þetta er allt miskilningur hjá þér.Það sem er að gerast er að Jóhanna og Samfylkingin segir að við eigum að borga skuldir sem íslensk alþýða kom ekki nálægt.Þær þjóðir sem segja að við skuldum þeim hljóta að vera Jóhönnu sammála.Og systurflokkur Samfylkingarinnar í Noregi, getur varla verið ósammála Samfylkingunni.En aðalatriðið er að það eru bara óráðssíumenn í hagfræði, lesist sem hagfræðingar Samfylkingarinnar, sem fullyrða það að við getum borgað skuldir manna sem koma Íslandi ekkert við, annað en þeir eru Íslenskir.Ef Íslendingar sgja upp samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, standa Norðurlandaþjóðirnar frammi fyrir því að rétta okkur hjálparhönd, ég er í engum vafa um hver niðurstaðan verður.Sama niðurstaða verður þótt við kingjum ekki öllu sem kemur frá gömlu nýlendukúgurunum Hollendingum og Bretum.Kv.

Sigurgeir Jónsson, 10.10.2009 kl. 13:00

5 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Spunakringla Samfylkingarinnar, ert þú í henni ?

Það skal semsagt gera allt til að koma sökinni eitthvað annað og svo samþykkja hvað sem er til þess eins að styggja ekki ESB þjóðir.

Maður fer nú að hallast undir málflutning sumra um landráðamenn.

Carl Jóhann Granz, 10.10.2009 kl. 18:20

6 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Hvort þeir félagar séu á leið til Austurlanda eður ei er aukaatriði, ég trúi því mátulega, en eitt mega þeir eiga, þeir eru virkilega að reyna að láta til sín taka með að fá lánsfé hér og þar, ef fleiri væru svona virkir væri sennilega búið að útvega lán einhversstaðar!

Guðmundur Júlíusson, 10.10.2009 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband