Ekki sæla heldur ofbeldi

Er allur munur á því þegar áhangendur Þjóðverja hrópa ókvæðisorð að Pólverjum og þegar íslenskir foreldrar eru að fara á límingunum á hliðarlínunni og hrópa; "Jarðaðu hann!", "tæklaðu hann!" ? Ef til vill stigsmunur en varla eðlismunur.

En ekki er við mig að sakast, ég var búin að vara ykkur við. Það er kominn tími til að vinna gegn ýmsum neikvæðum hliðum fótboltakúltúrs. Enn og aftur ítreka ég að það er mín skoðun að hann sé algjörlega ósamrýmanlegur við fræðslu- og menningarhlutverk ríkissjónvarpsins.


mbl.is 100 Þjóðverjar handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: HP Foss

Ég get líka sagt þér að það verið árekstur á Suðurlandsvegi, það er öruggt.

það er misjafn sauður í mörgu fé eins og þú veist og þar eru fótboltaáhangendur engin undantekning.  Fótboltaáhangendur eru nefnilega ekki allir fóboltaáhugamenn heldur er hluti þeirra fólk sem fylgir þessum viðburðum einungis til að slást og valda leiðindum.

Þetta fylgir öllum stærri samkomum, alltaf eru þar innan um menn sem eru þangað komnir í annarlegum tilgangi. Þannig er nú það og lítið við því að gera.

Við Klaustur var haldin Enduro keppni í nokkur ár, frábær keppni að sögn keppenda en á svæðið flykktist fólk í þeim eina tilgangi að drekka og dópa þessa fyrstu "útihátíð" sumarsins. Sú keppni hefur nú verið slegin af, mikið tilút af þessu.

Landsmót hestamanna verður haldið á Gaddstaðaflötum í sumar og þar verður það nákvæmlega sama upp  á teningnum, þar verður hópur fólks, bara tilama og leiðinda, hefur engan áhuga á hestum og geta ekki með nokkru móti kallast hestamenn.

Ég er ekki hestamaður en er afskaplega ánægður með samantekt Samúles Arnar og hans útsendingar frá mótsstað, geri ráð fyrir að hann verði á Hellu nú sem endra nær. Frábært fyrir þá sem hafa áhuga á hestum en komast ekki á mótsstað.

Ég horfi ekki á  en uni þeim það vel sem vilja.

Með umburðalyndið á leiðarljósi- Helgi

HP Foss, 9.6.2008 kl. 10:49

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gulli er ekki vel við hæfi að óska Samfylkingarmönnum nær og fjær til hamingju með svar ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks til Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Sumir hafa haft á orði að með svarinu hafi Samfylkingin endanlega tekið við hlutverki Framsóknar sem hækjan sem tilbúin er í hvað sem er, jafnvel til áframhaldandi mannréttindabrota

Sigurjón Þórðarson, 9.6.2008 kl. 15:55

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Jú, jú ég hef nú mikið af umburðarlyndi og er sammála þér Helgi að það er misjafn sauður í mörgu fé, en það er bara svo ýktur yfirgangur í þessum boltakúltúr.

Ég var einmitt að hugsa hversu Samfó hafi verið fylgin sér Sigurjón í stjórnarsamstarfinu að það kæmi fram að unnið yrði að eðlisbreytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu þannig að það uppfyllti viðmiðin um mannréttindi. Rýrt að það væri ekkert gert í dag en aðalmálið er að varða veginn og fara hann svo í framhaldi.

Gunnlaugur B Ólafsson, 9.6.2008 kl. 16:11

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Heill og sæll.

Nú ætla ég að vera þér sammala og ósammála.

Sammála: Það er kominn tími til að vinna gegn ýmsum neikvæðum hliðum fótboltakultúrs.

ósammála:  Að fótboltakúltúr sé algjörlega ósamrýmanlegur við fræðslu- og menningarhlutverk Ríkissjónvarpsins. Góður fótbolti er eins og lifandi skák, og getur verið bæði  íþrótt og list. Megnið af áhorfendum eru til fyrirmyndar. Til eru aðilar i nánast ollum áhugamálum, sem seta blett a tau. Meira að segja goðar gönguferdir er hagt að setja blett  t.d. með slæmri umgengi við plöntur, dyr og land.

Sigurður Þorsteinsson, 10.6.2008 kl. 05:30

5 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Sæll Sigurður. Það er í góðu lagi að vera ekki sammála mér með þetta. Mér finnst bara fótbolti vera afskaplega ómerkilegt sjónvarpsefni og fátt réttlæta þann forgang sem það fær þessar vikurnar. Held líka að þarna séu nokkuð mörg skemmd epli í körfunni. Vissulega spilla þau fyrir þeim sem að stunda þessa íþrótt af geðprýði, sannri gleði og ástríðu. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 10.6.2008 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband