Hvenær er svartur maður hvítur og hvítur maður svartur?

BarackOprah Winfrey hélt því fram í sjónvarpi að eftir forkosningar demókrata þá myndi kyn og litarháttur ekki lengur skipta máli í pólitík. Hún sjálf hefur gengt mikilvægu hlutverki við að brúa bilið í sjálfsmynd hvítra og svartra. Jafnframt er sagt að það hafi verið erfið ákvörðun fyrir hana hvort hún ætti að styðja þekkta konu eða þeldökkan mann í forvalinu. ´

Þegar Bill Clinton varð forseti hafði hann mikinn stuðning meðal svartra kjósenda. Hann naut reyndar það mikilla vinsælda að þekktur rithöfundur sagði að hann væri "fyrsti svarti forsetinn". Rökstuddi það síðan nánar á þann veg að það væri margt sem að hann ætti sameiginlegt með sjálfsmynd blökkumanna. Hann væri uppalinn í fátækt af einstæðri móður og spilaði á saxafón!

OprahFyrstu þrælarnir frá Afríku voru fluttir til Virginíu árið 1619. Síðan hefur átt sér stað blóðblöndun, þannig að stór hluti hvítra á einhvern svartan forföður og lítill hluti þeirra sem teljast svartir eiga eingöngu rætur að rekja til Afríku. Samt hefur það að vera African American og Caucasian mikla merkingu meðal bandaríkjamanna. Hjónabönd hvítra og svartra eru frekar sjaldgæf.

Þó að einstaklingur sé að meirihluta af öðrum uppruna en svörtum, þá flokkast hann yfirleitt þannig. Dæmi um slíkt er kylfingurinn knái Tiger Woods. Hann er einungis 1/4 af Afríku uppruna, 1/2 frá Asíu, 1/8 frá Evrópu og 1/8 Ameríku Indjáni. Nýlegar rannsóknir (Mark D. Shriver) sýna þó að minni genablöndun hefur átt sér stað en áður var haldið. Um 70% hvítra Bandaríkjamanna eiga engan forföður frá Afríku. En meðal svartra má rekja tæplega 20% erfða til hvítra.

TigerBarack Obama er 1/2 svartur og 1/2 hvítur. Faðir hans er frá Kenýa, þannig að hann er ekki afkomandi bandarískra innflytjenda eða þræla frá Afríku. Þannig að hann deilir ekki þeirri sögu með þeldökkum kjósendum. Af þessum sökum var forsíðu úttekt TIME undir yfirskriftinni; "Is Obama Black Enough?". Hvort hann væri líffræðilega, félagslega, sálfræðilega nógu tengdur svörtum bandaríkjamönnum til að þeir líti á hann sem sinn fulltrúa.

Ef til vill sýna dæmin af Opruh Winfrey og Bill Clinton hér í byrjun að þessi hugtök eru að stærstum hluta félagsleg eða sálræn. Við erum jú erfðafræðilega að stærstum hluta lík frekar en að vera ólík. Telja má víst að hverjar sem niðurstöður verða í forkosningum demókrata í dag þá muni þær ryðja úr vegi einhverjum af þessum hindrunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

heldur finnst mér orðið hart,
helvíti slæmt og skítt
að sjá ei hvort er hvítt og svart,
svart fólk eða hvítt.

Brjánn Guðjónsson, 5.2.2008 kl. 15:53

2 identicon

Blús er upprunnin í Suðurríkjum Bandaríkjanna.  Blúsinn er alþýðutónlist blökkumanna og hafa margir reynt að finna fæðingarvottorð blússins en án árangurs. Það þarf að fara aftur í tímann til að skilja þann þjóðfélagslega bakgrunn sem blúsinn spratt úr.

Blús er ekki bara tónlist, blús er hugarástand og það er kaldhæðnislegt að hugsa til þess að þessi tónlist sem hefur veitt svo mörgum ánægju er sprottin uppúr mikilli þjáningu.

Blúsinn á rætur í von og vilja til að gefast ekki upp fyrir þjáningum kynþáttamisréttis, grimmd og ofsóknum hvíta mannsins. Blúsinn er sunginn með djúpri tilfinningu, sungið er um ástir, lífið og tilveruna og hvernig hægt er að sigrast á erfiðleikum. Kímnigáfa og kaldhæðni er aldrei langt undan...

Rætur blússins liggja í þrælahaldinu en sá tími er milljónir þræla voru fluttir frá Afríku til nýja heimsins  er eitthvert grimmilegasta tímabil vestrænnar sögu. Menn, konur og börn voru tekin af heimilum sínum og flutt vestur um haf við ömurlegar aðstæður. Við komuna til Vesturheims gengu þessar manneskjur kaupum og sölum eins og hvert annað heimilisdýr. Fjölskyldum var sundrað, þrælarnir pyntaðir til hlýðni og settir í þrælkunarvinnu.

En tónlist Afríku bjó í hjörtum þessa fólks og flutti með þeim yfir hafið. Þeir bjuggu sér til hljóðfæri og tónlist þeirra gekk mann fram af manni.

Fyrstu þrælarnir voru fluttir til nýja heimsins 1619.  Árið 1700 voru 28.000 þrælar í Ameríku en hundrað árum síðar var sú tala komin í eina milljón. 1865 var þrælahald afnumið í Bandaríkjunum eftir 4 ára borgarastríð milli Suðurríkjana og Norðurríkjana.

Á 19. öld fóru blökkumenn að hafa áhrif á tónlistarlífið í Bandaríkjunum.

Jafnvel áður en þrælahald var afnumið höfðu menn byrjað að safna saman negrasálmum og eftir þessu var tekið.

Svartir tónlistarmenn urðu vinsælir innan hvíta samfélagsins. Þeir léku tónlist sína á fljótabátum og trúarsamkomum og svartir kórar og lúðrasveitir unnu hug og hjörtu allra kynþátta.

Sú tónlist sem seinna var kölluð blús kom fram í dreifbýli Suðurríkjanna þar sem þrælar höfði stritað áratugum saman við vinnu á baðmullar-, tóbaks-  og hrísgrjónaplantekrum. Grimmdin sem þrælarnir voru beittir kom fram í tónlistinni sem þeir sungu.  Söngvarnir voru um harðræði,  sársauka og fyrirheitna landið sem var gamla Afríka .Sunnudagar voru trúardagar og á laugardagskvöldum gerðu menn sér glaðan dag. Menn dönsuðu og sungu við undirleik heimatilbúinna hljóðfæra og þessi suðupottur trúar, vinnu, harðræðis, og lífsgleði skapaði það umhverfi sem þróaði blúsinn.

Það var ekkert útvarp, geisladiskar eða sjónvarp til fyrir rúmum 100 árum síðan. Eina tækifærið til að heyra tónlist var  lifandi tónlistarflutningur.  Lögin fóru manna milli með farandsöngvurum og farandpredikurum sem héldu sínar samkomur í sveitunum. Það sem við þekkjum sem blús var sungið löngu áður en hugtakið sjálft varð til.

Enginn mun nokkurn tíma vita hver samdi fyrsta blúslagið enda eiginlega ekki hægt að nota orðið semja yfir eitthvað sem verður til í munnlegri geymd. Blúsinn spratt úr þeirri tónlist sem heyra mátti á götum Bandaríkjana seint á 19. öld og byrjun þeirrar tuttugustu.

Á síðasta áratug 19. aldar komu fram tvær tónlistarstefnur í New Orleans. Önnur var svokallað ragtime þegar píanoleikarar leiku lög lúðrasveita og banjoleikara. Þessi taktfasta tónlist barst eins og eldur í sínu ekki síst fyrir störf frumherjans Scott Joplin en hann hafði svo seinna mikil áhrif á Jelly Roll Morton.

Í hinu villta hverfi New Orleans, Storyville, byrjuðu menn að spila svarta og mjög taktfasta tónlist sem fljótlega fékk nafnið Jazz (djass) . Djass var spilaður af fingrum fram af mikilli tilfinningu. Djassinn þróaðist fljótt og um það leyti sem hinn ungi Louis Armstrong gekk til liðs við Kid Ory bandið 1918 var djassinn að hefja sigurför um heiminn.

Hrynjandi og laglínur sem heyra mátti í ragtime og djassi höfðu heyrst í tónlist sem hafði þróast frá 1870 og kom fyrst á hljómplötum árið  1920. Einn gagnrýnandi sagði um þessa tónlist: " Villimannslegur hrynjandi með djöfullegri laglínu og lifandi tilfinningu sem kallað er blús!!"

Þessi einstaka tónlist, blús, var fyrst hjóðrituð þegar Mamie Smith söng Crazy blues 1920.

Svartur (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 18:50

3 identicon

Takk fyrir fróðlegana pistil. 

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 19:09

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Úúú ég elska þegar fólk bloggar í bloggum ;)

En það sem ég ætlaði að segja svo gáfuleg og vitur var að þann dag sem fólk verður metið af verkum sínum en ekki kynþætti ætla ég að halda upp á!

Pistillinn er góður hjá þér.

Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 20:49

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já, merkilegt hvernig tónlist tengist kynþáttum og þjóðum.

ég minnist þess t.d. ekki að hafa heyrt svartan mann jóðla.

Brjánn Guðjónsson, 6.2.2008 kl. 02:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband