Vorgöngur í Mosó - Helgafell

Síðastliðin fimm ár hef ég staðið fyrir göngum á fellin fjögur umhverfis Mosfellsbæ. Farið er á fimmtudögum og þriðjudögum. Lagt er af stað úr Álafosskvos klukkan korter yfir fimm í dag. Byrjað verður á að fara á Helgafell.

Farið er eftir hringleiðum sem ég merkti og það tekur ríflega tvo klukkutíma að afgreiða hvert fell. Ekki er ástæða til að láta veðrið stöðva sig, það er hluti af hinum skemmtilega fjölbreytileika.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Það er ábyggilega gaman að stikla þessa hóla -- ég er bara orðinn of gamall til þess og hef heldur aldrei fjallagarpr verið. En -- fyrirgefðu -- mér finnst þú vantelja fellin. Læt fylgja hér klausu úr grein sem ég skrifaði fyrir nokkru í blað eldri borgara, Listin að lifa:

„Ef við förum réttsælis um bæinn og teljum fellin verða þau fyrir okkur í þessari röð: Úlfars­fell, Lága­fell, Helgafell, Reykjafell, Mosfell, Grímarsfell, Búr­fell. Og fleiri hæðir mætti hafa með, þótt ekki beri þær fellsnafn: Æsustaðafjallið sem er fjall þó að það hreyki sér ekki eins hátt í loft upp og frampartur þess sem heitir þó bara Helgafell. Og hvað með Hádegishæðina með sína reisulegu kórónu Reykja­borg, eða Hafra­hlíð­ina, gneipa til suðvesturs?“

Því er svo við að bæta að Reykjavík hafði af okkur áttunda fellið fyrir nokkru, Lambhagafell. Þar heitir nú Suðurhlíðar Úlfarsfells.

 

Sigurður Hreiðar, 29.5.2009 kl. 12:45

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Takk fyrir aths. Sigurður. Þetta sem tiltekið er var "fellahringurinn" næst byggðinni þar sem settar hafa verið niður hringleiðir. Þetta eru allt um 2-3ja tíma göngur. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 29.5.2009 kl. 14:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband