10.2.2009 | 21:07
Lýðræði eða ættarlaukar
Sjálfstæðisflokkurinn hafði þann möguleika að skapa sér hlýlegri og lýðræðislegri ásjónu. Slíkt hefði náðst með kjöri Þorgerðar Katrínar eða Árna Sigfússonar til formanns.
Hann velur nú að fara í gamla farið. Velja réttu ættarlaukana og viðhalda hefðinni að matreiða sannleikann í bakherbergjum. Koma síðan á landsfund og klappa fyrir formanninum.
Ætli það hafi ekki verið hægt að finna neinn Ólaf Thors sem hefði getað verið fyrst og svo kæmi Bjarni Ben í framhaldi? Það hefði verið svona réttari söguskýring.
Þorgerður Katrín ekki í formannskjör | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2009 kl. 01:33 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur leiðir mannrækt í Mosfellsbæ og útivist að Stafafelli í Lóni. Vinnur við kennslu, að sameiningu sálar og líkama og síðast en ekki síst að efla frelsi, jafnrétti og kærleika í mannlífinu.
Netfang; gbo@bhs.is
Bloggvinir
- varmarsamtokin
- baldurkr
- dofri
- saxi
- bjarnihardar
- herdis
- hlynurh
- jonthorolafsson
- gummisteingrims
- hronnsig
- kolbrunb
- steinisv
- skodun
- vglilja
- heisi
- sigurgeirorri
- veffari
- hallgrimurg
- gretarorvars
- agustolafur
- birgitta
- safinn
- eggmann
- oskir
- skessa
- kamilla
- olinathorv
- fiskholl
- gudridur
- gudrunarbirnu
- sigurjonth
- toshiki
- ingibjorgstefans
- lara
- asarich
- malacai
- hehau
- pahuljica
- hlekkur
- kallimatt
- bryndisisfold
- ragnargeir
- arnith2
- esv
- ziggi
- holmdish
- laugardalur
- torfusamtokin
- einarsigvalda
- kennari
- bestiheimi
- hector
- siggith
- bergen
- urki
- graenanetid
- vefritid
- evropa
- morgunbladid
- arabina
- annamargretb
- ansigu
- asbjkr
- bjarnimax
- salkaforlag
- gattin
- brandarar
- cakedecoideas
- diesel
- einarhardarson
- gustichef
- gretaulfs
- jyderupdrottningin
- lucas
- palestinufarar
- hallidori
- maeglika
- helgatho
- himmalingur
- hjorleifurg
- ghordur
- ravenyonaz
- jonhalldor
- jon-o-vilhjalmsson
- drhook
- kaffistofuumraedan
- kjartanis
- photo
- leifur
- hringurinn
- peturmagnusson
- ludvikjuliusson
- noosus
- manisvans
- mortenl
- olibjo
- olimikka
- omarpet
- omarragnarsson
- skari60
- rs1600
- runirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- sigingi
- siggisig
- stjornlagathing
- snorrihre
- svanurmd
- vefrett
- steinibriem
- tbs
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Gunnlaugur.
Hrár laukur, skal það vera,.... í boði Björgúlfs Thors.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 23:25
Er nokkur von til að íhaldið finni kandídat sem getur kippt flokknum upp úr gröf sinni á þessu ári?
Þórbergur Torfason, 10.2.2009 kl. 23:40
Ekki gleyma því að ættarlaukurinn er sonur Stjórnarformanns Íslands. Það er stutt í alla spottana og valdataumana. Svo hefur hann líka ekki verið að tala neitt ógætilega og hefur svo "heiðarlegt andlit" Athugið það piltar mínir að ég er ekki að tala illa um neinn, bara að láta hugann reika smá.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 11.2.2009 kl. 00:55
Gunnlaugur. Þorgerður Katrín er vissulega verðugur fulltrúi flokksins. Væntanlega eiga fleiri framboð eftir að koma fram, það er það langur tími til stefnu.
Mér finnst Bjarni hafa komið vel fyrir í flokknum þó svo að hann hafi ekki verið mjög áberandi. Hvað ætt og uppruna varðar, þá enginn að þurfa að gjalda þess eða að njóta. En flestir vita hverra ætta maðurinn er og ég tel líklegt að leggja megi það að jöfnu þegar upp er staðið. Sjáum hvað setur.
Ég hef tilfinningu fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn fái um 33-34% atkvæða í vor.
Benedikt Bjarnason, 11.2.2009 kl. 10:57
Gunnlaugur. Hefur þú miklar áhyggjur af velferð Sjálfstæðisglokksins ?
Hvað vilt þú til málanna leggja til velferðar Sjálfstæðisflokknum - svo honum megi auðnast 40% fylgi í vor - eða meir???
Benedikta E, 11.2.2009 kl. 13:49
Gunnlaugur - Gleymdi einum fróðleiks mola. Það voru 20 hræður við Seðlabankann í morgun - engvir tónleikar og allir héldu kjafti!!!
Benedikta E, 11.2.2009 kl. 13:56
Sjálfstæðisflokkurinn ætti ekki að fá nema um 10-15% því það er um það bil hópstærðin sem ekki hefur orðið fyrir alvarlegu tjóni af sérgæsku, neysluhyggju og græðgi sem hafa verið helstu merki á stefnu flokksins.
En til þess að ná atkvæðum var okkur talið trú um að einhverjar ósýnilegar hendur myndu gera okkur öll efnuð. Molarnir dreifðust og leituðu til allra. En svo kom í ljós að þá sem var hlaðið undir skorti peninga fyrir brauðinu og almenningi var sendur reikningurinn.
Þorgerður Katrín og Árni Sigfússon eru frekar geðþekkar og opnar týpur sem gætu sannfært okkur um að þetta væri breyttur, opinn og lýðræðislegur flokkur. Náð í fylgi utan ættarveldis og tengslabandalags.
Gunnlaugur B Ólafsson, 11.2.2009 kl. 15:39
Vel komist að orði, Gunnlaugur. Alltaf naskur:
Er mig að misminna, en voru það ekki einmitt Ingibjörg Sólrún og guðfaðirinn (ÓRG) sem hlóðu undir Baug og útrásina? Þau vissu hverjir vinir þeirra voru. Þeir þökkuðu svo fyrir sig með því að senda reikninginn til þjóðarinnar.
Við sjálfstæðismenn höfum enn ekki tekið upp sið samfylkingarfólks að strá rósablöðum fyrir fætur foringja okkar, við látum okkur nægja að klappa fyrir þeim. Rósablöð eru eitthvað svo "despotiskt".
Það er vinsamlegt af þér að leiðbeina okkur um valið á foringja. Ekki veit ég hvar við værum stödd án þín.
Ragnhildur Kolka, 11.2.2009 kl. 17:41
Ef ég skil þig rétt Gunnlaugur þá eigum við ekki að kjósa Bjarna af því að Bjarni Benediktsson var afabróðir hans. Miðað við þetta er nýja Ísland ennþá gamla Ísland og það sem skiptir mestu máli er hverjum maður er skyldur. Í þessu tilfelli á Bjarni engan rétt á sér af því að hann er skyldur ættingjum sínum og þeir eru ekki þóknanlegir.
Smjerjarmur, 11.2.2009 kl. 19:31
Flokksvald er ekki lýðræði. Fólkið þarf að kjósa persónur sem þannig raðast niður í vægi miðað við atkvæðafjölda. Og þjóðaratkvæðagreiðslur ættu að vera um mál. Þannig færist valdið yfir til fólksins. Það er lýðræði.
EE (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 21:08
Nei Óli þú skilur mig vitlaust. Bjarni Benediktsson á ekki að gjalda fyrir ætternið en hann fær sérstöðu af því að íhaldinu dreymir um að endurtaka einhverja ofurmenniskenningar (en hefðu e.t.v. átt að leita fyrst að einhverjum sem heitir Ólafur Thors). Maðurinn er algjörlega óþekkt stærð, hefur lítið komið fram í fjölmiðlum og engin veit hvaða skoðanir hann hefur í pólitík.
Gunnlaugur B Ólafsson, 12.2.2009 kl. 00:03
Ég er alveg sammála þessu síðasta hjá Gunnlaugi.
EE elle
EE (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 11:24
Ef Sjálfstæðisflokkurinn fær 33% atkvæða í vor ber það vott um hve djúpstæð spillingin er í þjóðfélaginu. Með öðrum orðum: Þriðji hver kjósandi hefur þá hagsmuni af því að kjósa yfir sig mesta eiginhagsmunagæsluflokk landsins.
Verða svo ekki tveir Sjálfstæðisflokkar í boði eftir landsfundinn?
Björn Birgisson, 12.2.2009 kl. 13:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.