17.5.2009 | 11:29
Fjöregg þjóðarinnar
Sjálfstæði okkar sem þjóðar liggur í tækifærinu til að blómstra í samstarfi lýðræðisríkja í Evrópu. Norðurlönd og Eystrasaltslönd veita Íslandi stuðning í Eurovision og þannig er eðlilegt að unnið verði að hagsmunamálum landsins innan ESB. Við nýtum sjálfstæði okkar best með því að vera fullgildir, virkir og skapandi þátttakendur. Fjöreggið skilaði okkur öðru sæti. Að vera hluti af Evrópu er "ikke det værste mand har".
Íslandi allt, óttalaus! Verum í senn sjálfstæð og sameinuð í breytileikanum.
Sérstök móttaka fyrir Jóhönnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:49 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur leiðir mannrækt í Mosfellsbæ og útivist að Stafafelli í Lóni. Vinnur við kennslu, að sameiningu sálar og líkama og síðast en ekki síst að efla frelsi, jafnrétti og kærleika í mannlífinu.
Netfang; gbo@bhs.is
Bloggvinir
- varmarsamtokin
- baldurkr
- dofri
- saxi
- bjarnihardar
- herdis
- hlynurh
- jonthorolafsson
- gummisteingrims
- hronnsig
- kolbrunb
- steinisv
- skodun
- vglilja
- heisi
- sigurgeirorri
- veffari
- hallgrimurg
- gretarorvars
- agustolafur
- birgitta
- safinn
- eggmann
- oskir
- skessa
- kamilla
- olinathorv
- fiskholl
- gudridur
- gudrunarbirnu
- sigurjonth
- toshiki
- ingibjorgstefans
- lara
- asarich
- malacai
- hehau
- pahuljica
- hlekkur
- kallimatt
- bryndisisfold
- ragnargeir
- arnith2
- esv
- ziggi
- holmdish
- laugardalur
- torfusamtokin
- einarsigvalda
- kennari
- bestiheimi
- hector
- siggith
- bergen
- urki
- graenanetid
- vefritid
- evropa
- morgunbladid
- arabina
- annamargretb
- ansigu
- asbjkr
- bjarnimax
- salkaforlag
- gattin
- brandarar
- cakedecoideas
- diesel
- einarhardarson
- gustichef
- gretaulfs
- jyderupdrottningin
- lucas
- palestinufarar
- hallidori
- maeglika
- helgatho
- himmalingur
- hjorleifurg
- ghordur
- ravenyonaz
- jonhalldor
- jon-o-vilhjalmsson
- drhook
- kaffistofuumraedan
- kjartanis
- photo
- leifur
- hringurinn
- peturmagnusson
- ludvikjuliusson
- noosus
- manisvans
- mortenl
- olibjo
- olimikka
- omarpet
- omarragnarsson
- skari60
- rs1600
- runirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- sigingi
- siggisig
- stjornlagathing
- snorrihre
- svanurmd
- vefrett
- steinibriem
- tbs
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Engin þjóð er sjálfstæð fyrr en hún hefur afsalað sínu sjálfstæði fyrir papriku og kjúklingabringur.
Íslendingar bjuggu við danskt viðskiptafrelsi öldum saman og dönsk lög. Það voru sko almennileg lög og íslensku fólki tjóaði ekki að vera með múður við sína valdhafa. Það er margsannað að fólk hefur ekki vit á því hvar það á að versla. Og eins og þú tókst réttilega fram þá mun íslensk æska fara að syngja miklu betur eftir að við verðum gengin í ESB.
Bráðum fer únga drengi á Íslandi að dreyma um að verða "teknir til soldáts" og fá leyfi til að drepa vont fólk í útlöndum undir fána ESB.
Árni Gunnarsson, 17.5.2009 kl. 18:38
í dag búum við við íslenskt verslunar"frelsi" og íslensk lög sem byggja algerlega á þeim dönsku.. Árni þú lokar svolítið augunum fyrir því augljósa
Óskar Þorkelsson, 17.5.2009 kl. 20:14
Mér finnst allt í lagi að nota kaldhæðni móti þeim rökum að til þess að öðlast sjálfstæði þurfi þjóðir að afsala því fyrst og þiggja síðan það sjálfstæði sem býðst á hverjum tíma.
En líklega hafa aðildarþjóðir ESB fullt og óskorað viðskiptafrelsi - eða hvað?
Árni Gunnarsson, 17.5.2009 kl. 20:37
Ef við myndum reyna að ræða saman án þess að tönnlast á orðum einsog frelsi, réttlæti, þjóðarhagsmunir,þjóð, ást , kærleikur, guð svo dæmi um ofnotuð og óskír hugtök. Einsog viðskiptafrelsi! Það er greinilega ekki öllum gefið og verður kannski óuppnáanlegt markmið. Maður gerir ekki viðskipti nema annar aðiði samþykki. Annað er rán. Svo orðið frelsi hér er mjög skilyrt og í milliríkjaviðskiptum verður að hafa reglur sem auðvitað hamla "frelsi" til að gera hvað sem er. Allt tal um ófrelsi innan ESB er því hugmyndarugl og ekkert með veruleikann að gera. Auðvitað má Ísland semja við Kínverja um viðskipti eftir að við erum meðlimir en ekki án þess að fara að þeim reglum sem bandalagið setur öllum þjóðunum. Hvernig ætti það að vera öðru vísi?
Ef við hinsvegar utan ESB gerum samninga við Kína sem er ekki frjálst lýðræðisríkjasamband einsog ESB þá skilyrðum við okkur að fara eftir því sem þeir vilja. Þá er það frelsi ekki lengur til staðar heldur. Viðskipti eru í eðli sínu takmarkandi. Um leið og þú hefur selt vöru þá er hún ekki lengur á þínu valdi. Spurningin við hverja viltu helst eiga viðskipti.
Gísli Ingvarsson, 17.5.2009 kl. 21:39
Ekki jókst að mun skilningur minn við þessa athugasemd þína Gísli. Ef einöld spuning sem ég ber fram núna krefst langra skýringa þá er eitthvað bogið við málið:
Get ég átt óhindruð viðskipti við öll ríki utan ESB með vöru mína eftir að við erum gengin í Evrópusambandið? Vísun til viðskipta við Kína er auðvitað skilyrt um það hvort ég samþykki þeirra verð - og á sama hátt þarf ég að samþykkja þeirra verð og aðra skilmála. Þetta þurfti enginn að skýra fyrir mér. Það hafa alltaf báðir aðilar þurft að mætast í gagnkvæmum viðskiptum allt frá fyrstu dögum verslunar.
Árni Gunnarsson, 17.5.2009 kl. 21:59
stutta svarið er Já Árni
Óskar Þorkelsson, 17.5.2009 kl. 22:16
Árni minn góður Gunnarsson. Þú ættir að lesa Íslandssöguna ögn betur áður en þú ferð að tala um danskt viðskiptafrelsi. Bestu kveðjur.
Þráinn Jökull Elísson, 17.5.2009 kl. 23:50
Takk fyrir athugasemdir piltar. Búin að vera yndislegur dagur og varla ástæða að vera að leggja agn fyrir ágæta ESB andstæðinga.
Hitt finnst mér til athugunar að verðleikar okkar og mælistikur eru og verða mældar á alþjóðlegum kvarða.
Þjóðin endurheimtir sjálfstraust í gegnum árangur í Eurovision. Við viljum gefa inn í alþjóðlegan menningarheim og erum þar líka þiggjendur.
Við viljum vita hvað Andoru, Króatíu og Danmörku og öllum hinum finnst um "lagið okkar". Verðleikar okkar eru á evrópska mælistiku.
Það er auðvitað líka frábært eins og þegar Magni náði árangri í Idol keppninni í USA en það var eins og lottóvinningur. Við erum ekki með riðil í keppninni.
Það að tvinna saman menningu og viðskipti þjóða í Evrópu en viðhalda fjölbreytileika og sérkennum þeirra er músík framtíðarinnar.
Gunnlaugur B Ólafsson, 18.5.2009 kl. 00:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.