Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
´Alftanesvegur
Fyrir stuttu mættu nokkrir VEG vinir á vinnusvæði við nýjan Álftanesveg.Þar var fyrir hópur svokkaðra hraunvina.Brá þeim auðsjánlega að sjá að einhverjir láta þessi mótmæli ekki afskiptalaus.þetta eru bara fólk sem sækir í að komast í fjölmiðla. Sjálfur Ómar Ragnarsson var mættur á reykspúandi jeppadruslu sem hann keyrði á, yfir holt og hæðir, á sínum nagladekkjum ,utan vega.Svona eru nú öfgarnir.
gunndór Sigurðsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 19. sept. 2013
Um Sjálfstæðisflokkinn
Ég sé að þú ert leiður vegna þess að þér finnst einhverjir sem ekki eru í kjöri eiga taka forystu í Sjálfstæðisflokknum. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að þú sért ekki sjálfstæðismaður. Mér finnst lýðræðislegast að við sjálfstæðismenn ráðum því sjálfir til lykta hver það verður. Og svei mér þá finnst mér að þú eigir kannski einkum og sér í lagi að láta okkur bara um það.
Einar S. Hálfdánarson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 10. feb. 2009
Sæll Gunnlaugur :-)
Rakst á þig á ferð minni um netið og líst vel á þig .:-) kv.Sif
sif svavardóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 21. maí 2008
Heill og sæll frændi
Langaði bara að kvitta fyrir mig og þakka skemmtilega og fræðandi pistla. Við höfum einhverntíman hist áður, ég t.a.m. hef komið að Stafafelli, en aldrei látið verða af því sem mig langar þó mest, að ganga þar uppaf. Menntaði mig í ferðamálafræðum og nú togar þetta svæði í mig sem aldrei fyrr. Gangi þér allt í haginn. Kveðja frá Króknum, Jón Þór PS: Við erum tengdir þannig að Ebba amma og pabbi þinn voru systkini :)
Jón Þór Bjarnason, þri. 13. maí 2008
Flores fjölskyldan !!
Hvernig hefði mig grunað að sveitungi minn vissi eitthvað um Flores fjölsk,í Andaluciu á spáni,en hana hef ég þekkt í nokkur ár í gegnum flamenco tónlistina,Það var nú Lola Flores sem var þekktust um alla rómönsku ameríku,en börn hennar og manns hennar eru Lola,Rosario og Antonío Flores,sem er látinn.Öll eru þau músikantar miklir og Lolita Flores leiddi mig í allan auðinn af þessari tegund tónlistar í gegnum TVE,sjónvarpið,þá var hún með þátt sem nefndist Tri rin trin tra,sem tilheyrir þessari tónlist.En þar sem ég er mikill aðdáandi Spænskrar menningar og tónlistar,þá hlusta ég á í gegnum netið á Cadenadial.com Þar er bara spiluð Spænsk músikk,þar heyrir maður í Chambao,Ninu Pastori,Jose Merche,Juan Luis Gerra,sem er úr Carabiska og fleiri og fleiri. Ég mátti til að kommentera þetta,því ég hélt að ég væri einn í heiminum á Íslandi sem hlustaði á þess slags tónlist,sem hér er ófáanleg !! Kv:Guðmundur Hlöðversson frá Höfn
Guðmundur Hlöðversson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 21. apr. 2008
Sæll Hestamaður.
Sæll nú er komið að hinum frægu stóðréttum í Lóni og munu þær fara fram þann 1.des.07.Svo nú er bara að gyrða sig í brók og finna múlana sína og mæta galvaskur með pelan einan að vopni.Bakarinn.
Jón Birkir Finnsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 28. nóv. 2007
Sæll bloggvinur.
Sæll Gunnlaugur. Gaman að fá þig sem bloggvin :) Kvitta fyrir komu minni hér með og mun kíkja við hjá þér.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, mið. 7. nóv. 2007
ps
ps. ég er með meil bjarni@selfoss.is en fann ekki þitt og skrifa þessvegna hér...
Bjarni Harðarson, sun. 8. apr. 2007
eru bændur heima
sæll - líkaði vel pistillinn þinn um að allt sé betra en íhaldið og mér draum um kaffibandalag vinstri flokkanna þriggja (B,S&V) en um slíkt verða framb´jóðendur að tala varlega. erindið: eru bræður þínir heima í lóni. finnst eiginlega ómögulegt að vera svo í þessari kosningabaráttu að koma ekki við á einum bæ í lóninu. verð á ferð eystra á miðvikudag...
Bjarni Harðarson, sun. 8. apr. 2007
Þakkir
Sæll Gunnlaugur og þakka þér fyrir að verða blogvinur. Kær kveðja. Kalli Tomm.
Karl Tómasson, þri. 3. apr. 2007