5000 við brennu í Mosó

FlugeldurÞeim fjölgar með hverju árinu sem fara í bíltúr á þrettándabrennuna í Mosfellsbæ. Talið er að yfir 5000 manns hafi verið samankomin í góðu veðri til að hlusta á söng, lúðrasveit, jólasveina og glæfragengi úr álfheimum. Kóngurinn er búin að vera sá sami til fjölda ára. Held hann sé búin að vera öll þau fimmtán á sem við höfum búið í Mosó. Það er enginn hámarksfjöldi ára sem álfakóngar geta gengt starfi sínu. Þeir verða bara virðulegri og flottari, eftir því sem þeir eldast. Hinsvegar skiptir kóngsi út drottningum næstum því á hverju ári.
mbl.is Þrettándabrennur gleðja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mikið er ég fegin að þið eruð ekki með álfabrennu í Mosó..........

Ég las nefnilega í blaðinu í dag að Íslendingar trúa næstum allir á álfa!  Leiðinlegt að fleygja þeim á brennuna svona í byrjun árs............

Hrönn Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 00:10

2 identicon

það er nú eiginlega álfabrenna í mosó álfakóngurinn stjórnar og björgunarsveitin kyndill er með flugeldasýningu...

en 1.spurning.. hvernig er vitað að það sé 5000mans? hver var að telja? ég var þarna allan tíman og ekki gat ég talið 5000 manns.. en ég er greinilega ekki svona fljót að telja yfir alla:P

Alexandra Björg Eyþórsdóttir (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 00:18

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Það er álfakóngur, drottning og fleira gengi, en lítið um að þeim sé kastað á bálið.

Varðandi fjöldann, þá var þetta sagt í míkrófóninn. Þetta er sennilega mat björgunarsveitarinnar, þegar það hoppar á þúsundi er auðvitað ekki nákvæmlega talið. Ég hef ekki séð áður jafn mikinn fjölda og var þarna í gær.

Gunnlaugur B Ólafsson, 7.1.2008 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband