Áskorun

DómurLíta verður á það sem skyldu þegnana að bregðast við og láta skoðun sína í ljós þegar ráðamenn hafa misnotað vald sitt. Nú er svo komið að vinur, frændi og sonur sama manns hafa verið valdir til stöðu hæstaréttar og héraðsdómara. Sá maður var forsætisráðherra um langt skeið og dómsmálaráðherrar sem skipuðu í stöður eru vinir hans og samstarfsmenn til margra ára. Með slíkum stöðuveitingum er sótt að sjálfstæði dómstóla. Skrif Péturs Kr. Hafstein og Sigurðar Líndal undirstrika að þessar áhyggjur liggja þvert á allar flokkslínur. Hafin er undirskriftasöfnun á netinu með áskorun til alþingismanna að búa svo um hnútana með breytingum á lögum að tryggt sé að skipan dómara byggi ekki á persónulegum tengslum við stjórnsýsluna, heldur á faglegu mati.

 

Vefslóðin er www.domaraskipan.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Búin að kvitta á undirskriftarlistann og blogga um þetta. Þessi umræða má ekki deyja út. Mjög svo sammála þer.

Hólmdís Hjartardóttir, 15.1.2008 kl. 23:03

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Set slóðina líka inn á mitt blogg á morgun

María Kristjánsdóttir, 16.1.2008 kl. 00:20

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er búinn að skrifa undir og blogga í kringum þetta http://johanneliasson.blog.is/blog/johanneliasson/entry/409863/ samkvæmt því þá fæ ég ekki betur séð en að um brot á stjórnarskránni sé að ræða en allavega er full ástæða til að umræða fari fram um málið.

Jóhann Elíasson, 16.1.2008 kl. 15:32

4 Smámynd: Ingólfur

Hvað, er það ekki bara sjarmerandi að hafa svona fjölskyldurekstur á dómstólunum?

Annars svona í fullri alvöru að þá þarf að berjast gegn svona vinnubrögðum. Ég skrifa undir. 

Ingólfur, 16.1.2008 kl. 16:54

5 identicon

Sem betur fer eru ekki margir ráðamenn þjóðarinnar svona siðblindir eins og nýjustu ráðningarnar bera vott um. Fram að þessu hafa stjórnmálamenn komist upp með svona afglöp.  Árni og Össur vita að með því að standa af sér storminn komast þeir upp með þetta.

Spurningin er bara sú hvort umræðan haldi eitthvað áfram eða ekki.

Hilmar Björgvinsson (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband