28.1.2008 | 12:21
Blogg er fitandi
Í fyrsta skipti á ævinni er ég nokkrum kílóum of þungur. Ég hef alltaf verið 84 kg og ekki þurft að hafa áhyggjur af því þó að ég sletti úr svona hálfum rjómapela yfir morgunkornið. Nú er þetta allt í einu orðið meira. Ég er ákveðinn að láta ekki af rjómadrykkjunni. Það hefur heldur ekkert með það að gera að jólafríið sé nýbúið eða að ég sé kominn á þann aldur að kílóin læðist að manni, án þess að spyrja um leyfi. Búin að finna skýringuna - BLOGGIÐ ER FITANDI.
Frekar en að hætta að skrifa og lesa blogg, hætta í rjómanum, þá þarf bara að auka flæðið og dansinn með hækkandi sól. Já, ein skýringin gæti auðvitað verið að ég sé bara eins og gerist hjá mörgum spendýrum, t.d. hestum, að þeir bæta á sig smá einangrun til að standa af sér köldustu mánuðina. Allavega, til öryggis þá ætla ég að innleiða þá reglu að ég verði að hreyfa mig jafn mikið og ég dvel meðal vina netsins.
Flokkur: Lífstíll | Breytt 8.3.2008 kl. 22:25 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur leiðir mannrækt í Mosfellsbæ og útivist að Stafafelli í Lóni. Vinnur við kennslu, að sameiningu sálar og líkama og síðast en ekki síst að efla frelsi, jafnrétti og kærleika í mannlífinu.
Netfang; gbo@bhs.is
Bloggvinir
- varmarsamtokin
- baldurkr
- dofri
- saxi
- bjarnihardar
- herdis
- hlynurh
- jonthorolafsson
- gummisteingrims
- hronnsig
- kolbrunb
- steinisv
- skodun
- vglilja
- heisi
- sigurgeirorri
- veffari
- hallgrimurg
- gretarorvars
- agustolafur
- birgitta
- safinn
- eggmann
- oskir
- skessa
- kamilla
- olinathorv
- fiskholl
- gudridur
- gudrunarbirnu
- sigurjonth
- toshiki
- ingibjorgstefans
- lara
- asarich
- malacai
- hehau
- pahuljica
- hlekkur
- kallimatt
- bryndisisfold
- ragnargeir
- arnith2
- esv
- ziggi
- holmdish
- laugardalur
- torfusamtokin
- einarsigvalda
- kennari
- bestiheimi
- hector
- siggith
- bergen
- urki
- graenanetid
- vefritid
- evropa
- morgunbladid
- arabina
- annamargretb
- ansigu
- asbjkr
- bjarnimax
- salkaforlag
- gattin
- brandarar
- cakedecoideas
- diesel
- einarhardarson
- gustichef
- gretaulfs
- jyderupdrottningin
- lucas
- palestinufarar
- hallidori
- maeglika
- helgatho
- himmalingur
- hjorleifurg
- ghordur
- ravenyonaz
- jonhalldor
- jon-o-vilhjalmsson
- drhook
- kaffistofuumraedan
- kjartanis
- photo
- leifur
- hringurinn
- peturmagnusson
- ludvikjuliusson
- noosus
- manisvans
- mortenl
- olibjo
- olimikka
- omarpet
- omarragnarsson
- skari60
- rs1600
- runirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- sigingi
- siggisig
- stjornlagathing
- snorrihre
- svanurmd
- vefrett
- steinibriem
- tbs
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ægir, þú ert eitthvað að misskilja, ég er bara að tala um sjálfan mig. Hvaða viðmið ég vilji setja mér. Velta því upp að aukin seta við tölvu, stundum hálftíma, klukkutíma á dag hlítur að hafa áhrif í kaloríutalningunni.
Gunnlaugur B Ólafsson, 28.1.2008 kl. 12:52
skrifa bara hraðar...........
Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 13:28
Ægir, góður!
Hrönn ætli það sé ekki til fótstigtæki, þannig að ef ég eyk brennsluna út í hendur með því að skrifa hraðar og gæti verið síðan að púla með einhverju fótaæfingatæki. Vissum að það hlítur að vera búið að þróa eitthvað slíkt svo að tölvunördarnir fái hreyfingu.
Gunnlaugur B Ólafsson, 28.1.2008 kl. 16:15
Gætir líka verið með fótstiginn rafal til að knýja tölvuna.....
Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 19:08
Hrönn kemur þarn með lausnina - eins og alltaf
Marta B Helgadóttir, 28.1.2008 kl. 21:24
Benedikt, ég er nú þakklátur Hirti að setja upp oft á dag verkefni sem hleypa kappi í kinn. Trúi ekki öðru en það fyylgi því aukinn efnaskiptahraði :)
Gunnlaugur B Ólafsson, 28.1.2008 kl. 21:28
Sæll Gulli minn. Klói heiti ég og er að fara í framboð til borgarstjóra. Treysti á stuðning þinn Gulli minn. Hvaða embætti viltu. Ég er að vísu með nokkur aukakíló, hleyp þau af mér í kosningabaráttunni.....
Áfram klói.......X - Klói.... Einn fimmaur á dag kemur skapinu í lag.
kloi, 28.1.2008 kl. 23:12
Hólmdís Hjartardóttir, 29.1.2008 kl. 04:00
Gera eins og Hrönn segir, skrifa hraðar og síðan má hugsa hraðar, fara hraðar á milli bloggvina, það er hægt að gera allan fjandann hraðar. En alveg brilljat uppástunga að stunda hreyfingu í samræmi við tímann í tölvunni.
Kv Halli.
Hallgrímur Guðmundsson, 29.1.2008 kl. 11:01
Þú fengir allavega háa og granna fingur
Hrönn Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 22:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.