13.3.2008 | 20:12
Siðblinda
Það er ástæða til að óska fjölskyldu Halldórs Laxness til hamingju með niðurstöðu Hæstaréttar. Framganga Hannesar í þessu máli hefur öll verið honum til minnkunar. Að fara fram af slíku kappi við ævisagnaritun í óþökk ættingja og bæta síðan um betur og gera frásagnir skáldsins að sínum er mikið tillitsleysi.
Í þokkabót virðist hann ekki kunna að skammast sín og iðrast einskis, samkvæmt viðbrögðum lögmannsins. Málið er sagt snúast um lagatæknileg atriði, en ekki um hvað var gert rangt. Engin sjálfsgagnrýni. Hannes á möguleika á að toppa siðblindu þingmanns úr sama flokki sem fékk á sig fangelsisdóm, en virtist aldrei sjá að hann hefði gert neitt rangt.
Sumir eru of stoltir til að viðurkenna veikleika eða mistök, en einmitt sú tilhneiging opinberar að þeim er ekki treystandi.
Höfundarréttur tekinn alvarlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.3.2008 kl. 18:06 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur leiðir mannrækt í Mosfellsbæ og útivist að Stafafelli í Lóni. Vinnur við kennslu, að sameiningu sálar og líkama og síðast en ekki síst að efla frelsi, jafnrétti og kærleika í mannlífinu.
Netfang; gbo@bhs.is
Bloggvinir
- varmarsamtokin
- baldurkr
- dofri
- saxi
- bjarnihardar
- herdis
- hlynurh
- jonthorolafsson
- gummisteingrims
- hronnsig
- kolbrunb
- steinisv
- skodun
- vglilja
- heisi
- sigurgeirorri
- veffari
- hallgrimurg
- gretarorvars
- agustolafur
- birgitta
- safinn
- eggmann
- oskir
- skessa
- kamilla
- olinathorv
- fiskholl
- gudridur
- gudrunarbirnu
- sigurjonth
- toshiki
- ingibjorgstefans
- lara
- asarich
- malacai
- hehau
- pahuljica
- hlekkur
- kallimatt
- bryndisisfold
- ragnargeir
- arnith2
- esv
- ziggi
- holmdish
- laugardalur
- torfusamtokin
- einarsigvalda
- kennari
- bestiheimi
- hector
- siggith
- bergen
- urki
- graenanetid
- vefritid
- evropa
- morgunbladid
- arabina
- annamargretb
- ansigu
- asbjkr
- bjarnimax
- salkaforlag
- gattin
- brandarar
- cakedecoideas
- diesel
- einarhardarson
- gustichef
- gretaulfs
- jyderupdrottningin
- lucas
- palestinufarar
- hallidori
- maeglika
- helgatho
- himmalingur
- hjorleifurg
- ghordur
- ravenyonaz
- jonhalldor
- jon-o-vilhjalmsson
- drhook
- kaffistofuumraedan
- kjartanis
- photo
- leifur
- hringurinn
- peturmagnusson
- ludvikjuliusson
- noosus
- manisvans
- mortenl
- olibjo
- olimikka
- omarpet
- omarragnarsson
- skari60
- rs1600
- runirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- sigingi
- siggisig
- stjornlagathing
- snorrihre
- svanurmd
- vefrett
- steinibriem
- tbs
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"Að fara fram af slíku kappi við ævisagnaritun í óþökk ættingja..."
Halldór Laxness var ekki maður úti í bæ. Hann er töluvert mikilvæg persóna í Íslandssögunni.
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 22:24
Ég er enginn aðdáandi Hannesar en hef á tilfinningunni að þetta hefði ekki orðið svona mikið mál ef einhver annar hefði skrifað þetta. Hef ekki lesið bókina.
Hólmdís Hjartardóttir, 13.3.2008 kl. 22:43
Ég hefði átt að segja ef einhver annar hefði gert þetta!!!
Hólmdís Hjartardóttir, 13.3.2008 kl. 23:19
Hvatinn að ritun bókarinnar var að sýna fram á að Halldór Laxness hefði ekki verið góður pólitíkus.
Árni Gunnarsson, 13.3.2008 kl. 23:26
Sú spurning hlítur að koma upp hvort Hannes sé hæfur til að gegna stöðu sinni hjá Háskóla Íslands eftir að hafa hlotið dóm fyrir ritstuld, og þar að auki jafnvel dóm fyrir ærumeiðandi ummæli.
Mitt svar er að hann sé óhæfur og hafi verið það alveg síðan Sverrir skipaði hann í lektorsstöðuna.
haraldurhar, 14.3.2008 kl. 00:26
Hvað sem menn segja um Hannes þá eru bækurnar hans um Laxnes virkilega skemmtilegt lesning og miklu betra en annað sem hefur verið skirfað um kappann.
Villi (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 00:55
.."skemmtileg lesning".. þökk sé HKL sem skrifaði frumtextann?
Gunnlaugur B Ólafsson, 14.3.2008 kl. 07:25
Líka áfellisdómur yfir Háskóla Íslands. Þar hlýtur að vera gerð krafa um gripsvit leiðbeinenda. Og þegar það er augljóslega ekki til staðar hlýtur bæði að verða að gripa til ráðstafana og einnig velta fyrir sér hvernig einstaklingur af þessu tagi gat fengið þar vinnu.
Björn Hróarsson (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 07:55
Það verður gaman að sjá hverjir skipa Hæstarétt ef málið fer þangað. Jón Steinar, Ólafur Börkur, Þorsteinn Davíðsson ........?
Alli (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 08:39
Það er slæmt að þeir fjölmörgu sem urðu fyrir því að HKL rændi og ruplaði höfundaverk þeirra, eins og bent er á í bókum Hannesar, skuli ekki hafa átt vini og vandamenn, sem undantekningalítið hafa verið á framfæri hins opinbera alla sína tíð, til að sækja fébætur vegna höfundaréttarbrota.
Jafnframt ítreka ég þá skoðun mína, að það eigi að skila öllum "gjöfum" fjölskyldu HKL til "íslensku þjóðarinnar" og "selja" þeim aftur þær eignir sem voru keyptar óheyrilegu verði!
Halldór Halldórsson (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 09:12
HHG sem boðar frelsi, einkaframtak og minni ríkisafskipti hefur undantekningalítið verið á framfæri hins opibera ... ?
Gunnlaugur B Ólafsson, 14.3.2008 kl. 09:33
"Að fara fram af slíku kappi við ævisagnaritun í óþökk ættingja "
Var HKL ekki alla ævi að geðjast almenningi og reyna að verða hans eign?
Svo má ekki skrifa um konung ritstuldarins.
Þú manst eflaust hvar HKL leitaði fanga fyrir Íslandsklukkuna.
Ég tek undir það að þjóðin þarf ekki á Gljúfrasteini að halda eða öðrum minningum um þennan mann.
Guðný getur bara rekið þetta í eigin reikning.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.3.2008 kl. 10:48
Ég hef einmitt hugleitt mikið stöðu Hannesar hjá HÍ. Ég er í námi við HÍ og þar er það skýrt tekið fram í hvert sinn sem við skilum ritgerð að ritstuldur sé brottrekstrarsök úr skólanum. Þannig er það bara.
Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 12:51
Mikið siglir nú lítið fólk hér. Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifaði ævisögu sem er engu síðri en ævisaga Halldórs Guðmundssonar. "Ættinni" var sýndur sómi með þeim mikla áhuga sem er á Halldóri Laxness. Málaferli þessi eru eina siðblindan sem ég get séð. Hatrið út í Hannes Hólmstein er frekar sjúkt og Gunnlaugur B. Ólafsson í sæti dómara götunnar er ekki spennandi dómskerfi. Dómur Hæstaréttar er að vissu leyti áfall fyrir réttarkerfið á Íslandi. Eiga pólítískir trúbræður eða sérvalið fólk í framtíðinni að skrifa Íslandssöguna? Þá verður ekki skrifuð nein saga, kammeratar. Sagan frá einni hlið er ráðsstjórn.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.3.2008 kl. 15:33
Mitt innlegg er að fagna niðurstöðu Hæstaréttar að taka á þjófnaði og að furða mig á því að hann kunni ekki þá háttvísi að biðja fólk sem hann hefur brotið á afsökunar. Orðalag Vilhjálms sýnir nú vel hver er í hlutverki götustráks.
Gunnlaugur B Ólafsson, 14.3.2008 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.