13.1.2009 | 00:28
Hvar ert þú "ósýnilega hönd" og "dauða fjármagn"?
Eitt af því skondnara sem hægt er að hlusta á í ljósi undangenginna mánaða og bankahrunsins er að hlusta á ríflega ársgamalt viðtal Íslands i dag við Hannes Hólmstein Gissurarson. Nú þarf heldur betur að fá aðstoð ósýnilegra handa og finna dautt fjármagn til að virkja.
Hann fór víða um heim og flutti kotroskinn fyrirlestra um þetta efni og með sérstakri áherslu á kvótakerfið. Í viðtalinu telur hann gjafakvótann sem upphaf góðæris í landinu, en flestir eru nú sannfærðir um að þar liggi upphaf meinsemdarinnar sem varð frækornið að græðgisvæðingunni í landinu.
Hann talar á þeim nótum að næstu skref einkavæðingar séu orkugeirinn og auðlindirnar. -Sjá ekki allir hversu mikið Dabbon og Hannsi voru á bremsunni og reyndu að vara þjóðina og útrásargengið við hvert stefndi?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:34 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur leiðir mannrækt í Mosfellsbæ og útivist að Stafafelli í Lóni. Vinnur við kennslu, að sameiningu sálar og líkama og síðast en ekki síst að efla frelsi, jafnrétti og kærleika í mannlífinu.
Netfang; gbo@bhs.is
Bloggvinir
- varmarsamtokin
- baldurkr
- dofri
- saxi
- bjarnihardar
- herdis
- hlynurh
- jonthorolafsson
- gummisteingrims
- hronnsig
- kolbrunb
- steinisv
- skodun
- vglilja
- heisi
- sigurgeirorri
- veffari
- hallgrimurg
- gretarorvars
- agustolafur
- birgitta
- safinn
- eggmann
- oskir
- skessa
- kamilla
- olinathorv
- fiskholl
- gudridur
- gudrunarbirnu
- sigurjonth
- toshiki
- ingibjorgstefans
- lara
- asarich
- malacai
- hehau
- pahuljica
- hlekkur
- kallimatt
- bryndisisfold
- ragnargeir
- arnith2
- esv
- ziggi
- holmdish
- laugardalur
- torfusamtokin
- einarsigvalda
- kennari
- bestiheimi
- hector
- siggith
- bergen
- urki
- graenanetid
- vefritid
- evropa
- morgunbladid
- arabina
- annamargretb
- ansigu
- asbjkr
- bjarnimax
- salkaforlag
- gattin
- brandarar
- cakedecoideas
- diesel
- einarhardarson
- gustichef
- gretaulfs
- jyderupdrottningin
- lucas
- palestinufarar
- hallidori
- maeglika
- helgatho
- himmalingur
- hjorleifurg
- ghordur
- ravenyonaz
- jonhalldor
- jon-o-vilhjalmsson
- drhook
- kaffistofuumraedan
- kjartanis
- photo
- leifur
- hringurinn
- peturmagnusson
- ludvikjuliusson
- noosus
- manisvans
- mortenl
- olibjo
- olimikka
- omarpet
- omarragnarsson
- skari60
- rs1600
- runirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- sigingi
- siggisig
- stjornlagathing
- snorrihre
- svanurmd
- vefrett
- steinibriem
- tbs
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gulli heldurðu að geti verið eitthvað til í því sem Guðni Ágústsson minnist á að EES samningurinn sé hugsanlega það sem olli skandalnum?
Þórbergur Torfason, 13.1.2009 kl. 00:39
Ekki frekar en að aðgangur að áfengi valdi fíkn. Mbk, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 13.1.2009 kl. 00:49
Þvílíkur blöðruselur hann Hannes og hann á að heita hagfræðingur og professor. Hann er svosem ekki sá fyrsti af svokölluðum málsmetandi mönnum sem varð að athlægi fyrir framan upplýsta alþjóð, á útrásartímanum. Minnist viðtals við fyrrverandi bankamálaráðherra þar sem honum vefst tunga um tönn, þegar hann er spurður álits á bankaútrásinni. Svo kom það " Snillingar" sagði hann og skók sér makindalega í pelsinum sínum.
kolbún Bára (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 01:27
D-stóll auður í kvöld á Háskólabíó Hannes hvað ?
Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 02:50
Dauða fjármagnið hans Hannesar sem hafði verið nýtt í sjávarútvegi var notað til að rúlla af stað erlendri skuldasöfnun banka og heimila í skjóli ofmetinnar krónu. Þensan og hágengið keyrt áfram með nýjum álverum. Stjórnmálamenn létu eins og fíklar til að viðhalda vímunni. Nú er öll spilaborgin hrunin og hendurnar margar orðnar sýnilegar. Dauða fjármagnið sem var virkjað í ævintýrið orðið steindautt.
Gunnlaugur B Ólafsson, 13.1.2009 kl. 10:28
Samfylkingin lofaði útrásina líka eins og útblásin dúkka fyrir homma. Þetta skot þitt á Hannes er skot í löppina á þér. Er þetta ekki svipað píp í þér og Varmársamtaka-bullið þitt?
Þórir kristinsson (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 23:07
Afaverju fór Sviss ekki í EES sáu þeir hættuna ég myndi halda það.
Halldór Ásgrímsson sá þetta fyrir hann sagði alltaf að við þyrftum að ganga inn í EB vegna frjálsaflæðis fjármagns en krónan þessi ör minnt gat aldrei staðist alveg sama hvernig við lítum á það hefðu erlendir bankar sett hér upp útibú sem við erum búin að vera að suða um í mörg ár eða frá því að bankarnir voru seldir og hefði hann farið á hausinn þá vorum við ábyrgð þó innistæðueigendur hefðu erlenda kennitölu, hvaða vit er í þessu? þetta er eins og blindur maður keyri bíl getur sloppið en ekki ef vegurinn verður hættulegur.
Jón Ólafur Vilhjálmsson, 13.1.2009 kl. 23:24
Eitt eitrað epli er hér meðal athugasemda. Gæti þetta verið það samhengi mannsins og andlegt umhverfi? Þekki hann ekki og veit ekki til að ég eða Varmársamtökin hafi verið að abbast upp á hann. Veit ekki ástæðu hans rætnu skrifa. Kanski ætti ég að bjóða honum í kaffi og kleinu út í Mosfellsbakarí. Ræða hvort við getum ekki sameinast um áherslur umhverfisverndar og útivistar í sveitinni í borginni.
Gunnlaugur B Ólafsson, 14.1.2009 kl. 00:36
Miðað við önnur lákúruleg skrif þín er dæmigert fyrir þig að flokka fólk sem "eitruð epli" nafn mitt er í símaskránni og vinir mínir koma þér ekkert við. Ef þér finnst skrif mín rætin þá finnst mér það sama um þín skrif. Sem Mosfellingur í húð og hár hef ég ýmislegt við Varmársamtökin að athuga enda hafa þau stórskaðað ímynd Mosfellsbæjar og kostað mig og aðra skattgreiðendur þar stórfé. Þú hefur ekki afhjúpað neinn stóran sannleik með því að setja link við blogg Karls Tómassonar þvert á móti hefur þú lagst á það lága plan að gefa í skyn að hans persóna hafi eitthvað með mínar skoðanir að gera. Ef þú þolir ekki skoðanir annara en já-manna á blogginu þínu hentu mér þá bara út.
Þórir Kristinsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 17:41
Svisslendingar höfnuðu EES samningi Jóns Baldvins og hafa gert tvíhliða samninga við ESB síðan, um allt sem þeir hafa þurft.EES er upphafið og afleiðing að hruninu.Því ber að segja samningnum upp.Veldur hver á heldur.
Sigurgeir Jónsson, 14.1.2009 kl. 18:00
Ég óska þér til hamingju Þórir ef að þú telur að hvatvísleg skrif þín til mín efli eitthvað ímynd Mosfellsbæjar. Held að kreppan hafi einmitt sýnt okkur fram á að áherslur Varmársamtakanna eru nær fögru mannlífi og bæjarbrag, heldur en sú græðgisvæðing og verktakalýðræði sem var látið rúlla sitt skeið hér í bæjarfélaginu.
Það kemur mér ekkert við hversu hreinn Mosfellingur þú ert í húð og hár eða hversu mörg samfelld ár þú hefur afplánað, ef þú hefur ekki meiri virðingu fyrir opnum félagasamtökum í bæjarfélaginu og lýðræðislegum rétti íbúa til að vera mótandi um sitt bæjarfélag.
Boð mitt um kaffi og kleinur stendur, ef þú ert eitthvað órólegur yfir mínum hlut í þessu samfélagi. Mbk, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 14.1.2009 kl. 18:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.