16.6.2009 | 00:08
Síðasta ofurmennið
Það er svo merkilegt sálartetrið í mörgum Sjálfstæðismanninum. Takið eftir "Gunnar Birgisson fékk mikinn stuðning á fundinum". ! Getur verið að engin hafi sett spurningamerki við allan þennan slóða misnotkunar valds í þágu fjölskyldunnar? Skýrslan og upphæðin sem bæjarfélagið greiðir eru sláandi, en við það bætist LÍN og OR.
Þegar á móti blæs og ofurmennið sem flokksmenn hafa dáð og dýrkað birtist í nýju ljósi þá er aðalatriðið að flokkurinn komi sterkur út og að félagarnir sýni stuðning við foringjann. Árni Johnsen var kosinn á þing þó hann hefði verið dæmdur og Davíð Oddsson gat labbað inn á landsfund Sjálfstæðisflokksins í hrokafullum hlátrasköllum þó hann væri búin að setja landið á hausinn.
Ég vona svo sannarlega að þetta sé tegund í útrýmingarhættu.
Falið að ræða við Framsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:20 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur leiðir mannrækt í Mosfellsbæ og útivist að Stafafelli í Lóni. Vinnur við kennslu, að sameiningu sálar og líkama og síðast en ekki síst að efla frelsi, jafnrétti og kærleika í mannlífinu.
Netfang; gbo@bhs.is
Bloggvinir
- varmarsamtokin
- baldurkr
- dofri
- saxi
- bjarnihardar
- herdis
- hlynurh
- jonthorolafsson
- gummisteingrims
- hronnsig
- kolbrunb
- steinisv
- skodun
- vglilja
- heisi
- sigurgeirorri
- veffari
- hallgrimurg
- gretarorvars
- agustolafur
- birgitta
- safinn
- eggmann
- oskir
- skessa
- kamilla
- olinathorv
- fiskholl
- gudridur
- gudrunarbirnu
- sigurjonth
- toshiki
- ingibjorgstefans
- lara
- asarich
- malacai
- hehau
- pahuljica
- hlekkur
- kallimatt
- bryndisisfold
- ragnargeir
- arnith2
- esv
- ziggi
- holmdish
- laugardalur
- torfusamtokin
- einarsigvalda
- kennari
- bestiheimi
- hector
- siggith
- bergen
- urki
- graenanetid
- vefritid
- evropa
- morgunbladid
- arabina
- annamargretb
- ansigu
- asbjkr
- bjarnimax
- salkaforlag
- gattin
- brandarar
- cakedecoideas
- diesel
- einarhardarson
- gustichef
- gretaulfs
- jyderupdrottningin
- lucas
- palestinufarar
- hallidori
- maeglika
- helgatho
- himmalingur
- hjorleifurg
- ghordur
- ravenyonaz
- jonhalldor
- jon-o-vilhjalmsson
- drhook
- kaffistofuumraedan
- kjartanis
- photo
- leifur
- hringurinn
- peturmagnusson
- ludvikjuliusson
- noosus
- manisvans
- mortenl
- olibjo
- olimikka
- omarpet
- omarragnarsson
- skari60
- rs1600
- runirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- sigingi
- siggisig
- stjornlagathing
- snorrihre
- svanurmd
- vefrett
- steinibriem
- tbs
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sjálfstæðisflokkurinn er botnlaus spillingarpyttur fullur af skítseiðum.
corvus corax, 16.6.2009 kl. 00:12
Kannski gott að þeir rifji hugarfar og siðfræði þessa flokks upp fyrir landsmönnum með reglulegum hætti.
Jón Ingi Cæsarsson, 16.6.2009 kl. 00:16
Já, Jón Ingi það er þessi trú á ofurmenni sem tryst er á að komi færandi með sporslur handa öllum, en auðvitað hugsar mest og best um sig og sína. Þegar þú ert búin að redda öllum körlunum í klúbbnum bitlingum, afhverju áttu ekki að vera líka góður við þig og dóttur þína. Svolítið ítalskt en er bara svoleiðis.
Gunnlaugur B Ólafsson, 16.6.2009 kl. 00:36
Gunnlaugur skoðaðu Samfylkinguna með gagnrýnis augum eins og þú gerir við Sjálfstæðisflokkinn þá kemst af því að hann er gjör spilltur, spilltasti flokkur landsins ásamt Ólafi R sá maður á dóttir sem vinnur hjá Baugi.
Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 09:18
Þetta getur verið satt og rétt hjá þér Sigurbjörg út frá einhverjum forsendum sem þú gefur þér. En þær eru ekki sömu forsendur og mínar.
Mér finnst mikilvægt að pólitíkusar vinni út frá einhverri sýn fyrir almenning og að opin og lýðræðisleg vinnubrögð sé grundvöllur í aðferðafræði.
Því held ég að Gunnar Birgisson sé seinasta "ofurmennið" sem vinnur út frá einföldum steypukúltúr og fyrirgreiðslupólitík til vina og ættingja.
Gunnlaugur B Ólafsson, 16.6.2009 kl. 12:17
Þessi aðdáun á spilltum og frekum foringjum er ótrúlega skrýtinn undirlægjuháttur. Mér finnst þetta alveg af sama meiði og sú aðdáun og virðing sem trúarleiðtogum er sýnd í sama bilaða sefjunarruglinu.
Haukur Nikulásson, 16.6.2009 kl. 12:28
Er siðblinda innbyggð hjá þessum Sjálfstæðisflokki? Margt styður þá tilgátu. Forystumenn flokks þessa hafa ætíð haft horn í síðu þeirra sem hafa leyft sér að hafa aðrar skoðanir en þeir, jafnvel þó svo að góð og gild rök séu færðfyrir vinsamlegum ábendingum og gagnrýni á siðblindu Sjálfstæðismanna.
Unnt er að lækna fyllibyttur frá ofdrykkju. Siðblinda virðist vera gjörsamlega ólæknandi þegar forysta Sjálfstæðisflokksins á í hlut.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 16.6.2009 kl. 12:39
Þetta eru merkilegir mannræktar- og kærleikspistlar, sem slíkir.
Mér sýnist jafnvel lúpínan kinka kolli ... sofnar sæl núna síðsumars, út frá þessari miskunnsömu og uppbyggilegu speki.
Herbert Guðmundsson, 16.6.2009 kl. 13:35
Takk fyrir það Herbert. Við getum sífellt bætt okkur. Það er mikilvægt að vera meðvituð um vandann, sem virðist vera innbyggður í einhverja afstöðu eða hefðir hjá íhaldinu. Mbk, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 16.6.2009 kl. 16:02
Æ, Gunnlaugur, þú líka.
Mér þótti afar lítilmannlegt þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk að því að virtist skipulagaðar árásir hér fyrir nokkru. Aðalástæðan virtist vera að hún var sterkur og merkilegur leiðtogi. Í þessu ferli sem margir kölluðu ,,pólitískt einelti" tóku fjölmiðlarnir virkan þátt.
Nú bý ég hér í Kópavogi og ég gef Samfylkingunni í Kópavogi ekki háa einkunn fyrir frammistöðu sína í minnihluta. Ég myndi kjósa Samfylkinguna a.m.k. á nokkrum stöðum á landinu,en ekki hér í Kópavogi. Hér eru hluti bæjarstjórnarlistans með allt niður um sig í spillingarmálum og bendir síðan á Gunnar.
Ég geri athugasemdir við að bærinn eigi mikil viðskipti við dóttur Gunnars, finnst það mjög óheppilegt. Hins vegar finnst mér þessi skýrsla Deloitte ekki standast neina skoðun, og mér finnst framganga Samfylkingarinnar einmitt vera ,, pólitískt einelti" og mér hefur í gegnum tíðina þú ekki vera sú manngerð sem níðir menn niður bara af flokkspólitískum ástæðum.
Sigurður Þorsteinsson, 16.6.2009 kl. 17:15
Siðblinda er ólæknandi áunninn geðkvilli sem hefur reynst erfitt að skýra út fyrir fólki sem ekki hefur orðið fórnarlamb slíks einstaklings.
Eitt af einkennum þeirra er að trúa því í raun og veru að þeir hafi ekki gert neitt rangt og standast oft lygapróf með glans. Dæmdi þingmaðurinn og bæjarstjórinn eru þarna bláeygir af fullkomlega einlægu sakleysi og finnast þeir sérstökum órétti beittir.
Haukur Nikulásson, 16.6.2009 kl. 22:29
Heill og sæll Sigurður
Menn tala út frá mismunandi forsendum og út úr því getur stundum orðið misskilningur. Það stakk mig að fjölmennur fundur Sjálfstæðismanna skuli lýsa yfir stuðningi við Gunnar en ekki taka neina efnislega afstöðu til vandamálsins, að misnota vald sitt til að hylga sínum.
Mbk, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 16.6.2009 kl. 22:34
Haukur ég held að siðblinda sé rétta orðið, en auðvitað verður tengslanetið allt móðgað þegar þetta er tekið til skoðunar og umræðu.
Gunnlaugur B Ólafsson, 16.6.2009 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.