5.10.2008 | 00:15
Fjólubláir draumar
Þó haust og vetrarstemming hafi tekið völd síðustu dag, þá er enn hægt að upplifa fjólubláa drauma líkt og á vorkvöldi í Reykjavík. Það getur hjálpað að ganga á hið fagurskapaða Akrafjall til að komast í réttu stemminguna. Við Magnús Einarsson samkennari tókum slaginn og brunuðum úr borginni áleiðis upp á Skaga.
Ferðin byrjaði reyndar á því að það sprakk framdekk á bílnum upp í Kollafirði, en því var reddað á innan við tíu mínútum og haldið til móts við fjallið þar sem Akraneskaupstaður segir að taki 3-5 klst. að ganga hring efir brúnunum á Háahnjúk öðrum megin og Geirmundartind hinum megin. Í bók Ara Trausta er talið að gangan hringinn og á tindana tvo taki 5-6 klst.
Við lögðum af stað kl. 11 í nokkrum vindi sem lægði flótlega, en heiðskírt og flott útsýni. Vorum komnir tveimur tímum síðar á Háahnjúk. Ég hljóp síðan eftir brúnum og vel innan veið Berjadal, en Magnús ákvað að þvera milli tindana og tapa þá hæð og þurfa að fara upp aftur. Skýr gönguleið er mest allann hringinn, en þó lentum við í óvissu og áttuðum okkur ekki á leið meðfram og niður frá Guðfinnuþúfu. Krossuðum á endanum yfir Berjadalsá á stíginn þeim megin í dalnum niður að bílastæðum.
En frábær dagur sem mun örugglega gefa góða drauma og vekja nýja. Set hér inn nokkrar myndir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 09:41
Bubbi rokkar
Nú ætlar Bubbi Morthens að undirbúa mótmæli á Austurvelli vegna efnahagsástandsins. Rykið verður væntanlega dustað af gömlu góðu slögururunum um arðræningjana og gúanórokkið mun svífa yfir Austurvelli. Það er vissulega rétt að það er fullt tilefni til að fólk komi saman með skýrar óskir um markvissar aðgerðir.
En Bubbi Morthens getur ekki skipt um hlutverk eftir því hvernig vindar blása. Leikið einhverja alþýðuhetju þegar harðnar á dalnum, eftir að hafa hvatt til kaupa á tólf milljón króna silfruðum eða svörtum jeppum í þenslunni. Hann getur ekki bara gert kröfur á stjórnvöld, heldur þarf hann nú að semja nýja söngva svo að jeppaklúbburinn hans axli ábyrgð og taki á sig stærstu birgðarnar.
1.10.2008 | 15:01
Hollt að ræða málin
Í Mosfellsbæ hefur verið mikill verktakabragur síðustu misserin og sumum finnst vera farið fullgeyst. Tengibrautir að nýju hverfunum Helgafelli og Leirvogstungu liggja yfir svæði sem hafa mikið gildi fyrir útivist og umhverfi. Víðtæk samfélagsleg áhrif, þar sem eðlilegt er að málin séu rædd og krufin.
Þann 13. október kl. 20:30 efna Varmársamtökin til málþings um Tunguveg. Þar verða frummælendur Ólafur Arnalds jarðvegsfræðingur og prófessor í umhverfisfræði og Valdimar Kristinsson blaðamaður og hestamaður.
Ólafur skrifaði nýlega grein í Morgunblaðið sem nefndist "Vegur yfir lífsgæðin í Mosfellsbæ". Þeir bræður Ólafur og Andrés Arnalds hafa verið meðal þeirra fremstu í umhverfismálum hér á landi. Rannsóknir þeirra á jarðvegseyðingu hafa vakið mikla athygli og viðurkenningar
Það er gæfa fyrir Mosfellsbæ að hafa slíka menn í bæjarfélaginu. Andrés Arnalds hafði forgöngu um starf umhverfissamtakana Mosa, sem gengust fyrir víðtækri stígagerð og uppgræðslu. Það gjörbreytti eðli samfélagsins. Náttúrustemmingin breyttist úr mold- og sandroki í rómantíska skógarstíga.
Valdimar Kristinsson hefur á margan hátt verið forystumaður í málefnum hestamanna í Mosfellsbæ síðustu áratugina. Hann skrifaði margar góðar greinar um hestamennsku í Morgunblaðið um langt skeið. Margt bendir til að þó að lagning Tunguvegar skerði verulega svigrúm og þar með hagsmuni hestamanna og hesthúseigenda að þá þori forystumenn tilsvarandi félaga ekki að vera afgerandi í þessu máli. Það er gott að hafa bæjaryfirvöld góð til að landa byggingu reiðhallar og það er gott að hafa eigendur Leirvogstungu góða til að fjármagna unglingastarf.
Hér til hliðar er könnun um viðhorf til lagningar Tunguvegar um árósasvæði Mosfellsbæjar. Svo virðist sem íbúar sem eiga hagsmuna að gæta við lagningu vegarins hafi tekið vel við sér því á einum degi komu skyndilega um sextíu manns sem lýstu sig hlynnta veginum. En vonandi fáum við almennar kosningar í jafn umdeildu máli, sem að klárlega skerðir ákveðin grunngildi í bæjarfélaginu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.10.2008 kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2008 | 23:09
"Slátrið slær í gegn"
Svo virðist sem að Fréttablaðið hafi algjörlega misst af öllum fínu bílunum, upplýstu herbergjunum og jakkafataklæddu bankastjórunum kvöldið og nóttina örlagaríku í bankamálum. Fyrirsögn á forsíðu blaðsins um morguninn var; "Slátrið slær í gegn í harðnandi árferði".
Atburðarás og aðalleikarar gefa fullt tilefni til samsæriskenninga. Lán til íslenska ríkisins til að auka gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans leiðir til uppsagnar hins þýska Landesbanken á lánafyrirgreiðslu til Glitnis. Síðan þegar leitað er til Seðlabanka með fyrirgreiðslu eru eingöngu afarkostir í boði.
Já, vissulega er sláturtíð og nú eigum við von á að sláturhússtjórinn yfirfæri haustinnleggið á góðu kapitalistana og vin sinn í stjórn Landsbankans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2008 | 23:45
Listrænir tónar náttúrunnar
Þann 30. apríl í vor fengum við hvassan skafrenning á leið okkar á Móskarðshnjúka sem var fyrst í seríu af fjallgöngum til undirbúnings ferðar á Hvannadalshnjúk. Við komumst reyndar ekki á Hnjúkinn í fyrstu tilraun og fékk hún á sig óvænta atburðarás. Síðan fórum við um mánuði síðar upp á einum sólríkasta degi sumarsins.
Verkefninu að fara á topp Móskarðshnjúka var sem sagt enn ólokið. Úr því var bætt í dag. Ég og Magnús Einarsson samkennari minn lögðum af stað klukkan tíu. Veðrið var reyndar ekki eins hagstætt og ég hafði búist við miðað við veðurspána. Set hér inn myndir sem sýna stemminguna.
Á sama tíma var upp á Hvanneyri ráðstefna um menningu og list í landslagi og skipulagi. Ég sleppti því að fara, en betri helmingurinn fór og er afskaplega hrifinn af því hvernig til tókst. Ráðstefnunni lauk með því að gestir skoðuðu sýningu átta listamanna í Jafnaskarðsskógi.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.9.2008 | 15:41
Að vanda til verka
Mikilvægt er að vandað sé til verka við framkvæmdir þar sem takast á ríkir hagsmunir náttúruverndar og nauðsynlegra umbóta í samgöngum. Lítlar framfarir hafa orðið í vegamálum Vestfjarða síðan forseti Íslands hvatti til úrbóta frá hinum holóttu malarvegum, sem byggðarlögin hafa mátt búa við um langt skeið.
Það virðist nauðsynlegt að vanda sig vel þegar sporin eru stigin í þessum dansi. Leita að millistefi sem stórspillir ekki náttúru svæðisins með stórkarlalegri útfærslu í vegagerð og uppbyggingu vega milli nesa þvert á firðina. Ef að krafan um þverun er ófrávíkjanleg þá þarf að íhuga vel að fara frekar út í jarðgangnagerð.
Nú liggur fyrir úrskurður héraðsdóms um að þáverandi umhverfisráðherra hafi ekki haft nægjanlegar forsendur til að kveða upp sinn dóm. Að það hafi vantað ítarlegri rannsóknir á umhverfisáhrifum vegalagningarinnar. Katrín Theódórsdóttir lögmaður á hrós skilið fyrir að landa þessum úsrskurði.
Þann 8. október standa Varmársamtökin fyrir baráttufundi gegn fyrirliggjandi áformum um lagningu Tunguvegar frá Leirvogstungu þvert yfir árósasvæði Mosfellsbæjar, nálægt hesthúsahverfi og skólasvæði að Skeiðholti.
Mörgum þykir þessi vegur óþarfur þar sem Vesturlandsvegur geti þjónað hinu nýja hverfi með fullnægjandi hætti. Í það minnsta þurfi að hverfa frá stórkarlalegri þverun beint yfir og sveigja veginn í átt að Vesturlandsvegi þannig að hún fari einungis yfir Köldukvísl en ógni ekki sérstæðri náttúru og útivist.
Ég hef fullan skilning á að frændgarður minn í Austur - Barðastrandasýslu vilji róttækar úrbætur í samgöngumálum, en ég held þeir vilji ekki umbylta umhverfi og ásýnd hinna fögru fjarða, ég hef fullan skilning á að íbúar Leirvogstungu vilji góðar samgönguæðar að hverfinu, en það má útfæra þannig að komi ekki niður á umhverfi og lífsgæðum Mosfellinga sem heildar.
![]() |
Úrskurður um Vestfjarðaveg ógiltur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2008 | 00:50
Ég boða yður mikinn fögnuð - smástund
"Hann" ætlar að taka einhverjar pásur í stórrigningum á fimmtudag og laugardag. Jafnvel má þá búast við sólskinsstundum. Seinni part sunnudags og á mánudag verður aftur komið í sama farið.
Hvar er þessi heiðríkja, stilla og haustlitir sem að maður vill hafa á þessum árstíma? Hlýindi sem fygja rigningu geti þó haft sína kosti. Hitaveitureikningurinn verður lægri.
Reglan um að ef þú ert óánægður með íslenskt veður þá þurfir þú ekki að bíða nema fimm mínútur og þá séu orðnar veðurbreytingar, virðast ekki eiga við þetta haust frekar en í fyrra.
Til stóð að safna í fjallarútu og sigla af stað í Núpstaðaskóg um síðustu helgi, en hætt við vegna rigningarútlits. Hver veit nema að veður verði fyrir fjallaferð um helgina.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.9.2008 | 18:38
Hver á heldur?
"Veldur hver á heldur" segir máltækið. En hverjir eru það sem eru að láta krónuna hoppa eða réttara sagt detta? Yfir 15% verðbólga og 50% gengisfelling frá áramótum krefst mikils þanþols og aðlögunarhæfni heimilanna í landinu. Hafa þau svigrúm til að hagræða?
Sálfræðilega er óvissan versti óvinurinn. Ef það kemur óveður, þá fara menn út og festa niður öllu lauslegu, björgunarsveitir negla niður járnplötur og binda báta í höfnum. En hvað geta bændur gert til að ná heyjum í hús, svo öruggt sé um bústofninn yfir vetrarmánuðina.
Er ekki hægt að komast á eitthvað síldarplan um helgina? Moka og salta í akkorði til að tryggja hagsældina, frekar en að örlög ráðist af íslenskum bönkum sem stilla af vexti og gengi eins og þeim hentar, hvort bandarísk stjórnvöld redda Wall Street eða hvort einhverjir meta það löglegt að taka upp evru.
![]() |
Afar fátt sem styður við krónuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2008 | 22:59
Lausn til lengri og skemmri tíma?
Staksteinar snupra í gær Davíð Oddsson og Geir H Haarde fyrir óþol þeirra gagnvart Evrópu-umræðunni. Þeir hafa ekki viljað ræða upptöku evru sem hluta af aðgerðum til að komast út úr þeim vanda sem við stöndum nú frammi fyrir. Það muni taka að lágmarki fimm ár að ganga í ESB og því sé umæðan um evru tímabær einhvern tímann í framtíðinni.
Það er nýmæli að ekki bara einn heldur tveir af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins fái ágjöf í þessum dálki, sem ritstjórn hefur yfirleitt tekið frá til að tala neikvætt til flokks og fólks í Samfylkingunni. Þetta sýnir okkur að það er mikill þrýstingur úr atvinnulífi og víðar að Evrópumálin fái fulla athygli í flokksstarfinu. Þau eru á dagskrá núna og líka einhvern tímann í framtíðinni.
Yfirlýsing Oli Rehn um að samningaviðræður milli Íslands og ESB þurfi ekki að taka nema ár, gera það raunhæft (miðað við svigrúm á þjóðaratkvæði og fleira) og mögulegt að Ísland verði orðin fullgild aðildarþjóð innan tveggja ára. Stefnumörkun um aðild og upptöku evru er líklegasta leiðin til að styrkja krónuna við núverandi aðstæður.
Því virðast skammtíma- og langtímalausnir hanga á sömu spítunni.
![]() |
Tvíhliða upptaka evru óraunhæf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.9.2008 | 00:44
Hvar er Hannes?
Ég hef verið latur að blogga síðustu vikurnar. Hinsvegar sakna ég þess að sjá ekki eitthvað frá Hannesi Hólmsteini á þessum örlagatímum. Hann þarf að útskýra fyrir okkur afhverju George Bush nýtir hundruði milljóna dollara úr vösum skattgreiðenda til að bjarga einkafyrirtækjum sem eiga í erfiðleikum. Eiga markaðsöflin og hin ósýnilega hönd ekki að sjá um þetta allt saman sjálf?
Stundum getur reyndar verið gott að hafa skýran lagabálk í Evrópskri eftirlitsstofnun sem stoppar af hina frjálsu og bláu hönd. Þar reyndust íslenskir skattgreiðendur hafa haldreipi gegn því að 20 milljarðar króna yrðu sóttir í vasa íslenskra skattgreiðenda vegna ríkisábyrgðar Davíðs Oddssonar á Íslenskri Erfðagreiningu.
Þetta kallast víst pilsfaldakapítalismi. Að passa upp á að fjármagnið streymi frá almenningi til réttra aðila og að hinir ríku verði ríkari. Að kunna að mjólka kerfið en bera síðan enga samfélagslega ábyrgð. Flytja fjármagnið út úr sjávarútveginum og bera síðan enga ábyrgð á vandanum. Sólunda eiginfjárstöðu bankana og án efa fara sömu leið og í USA að láta ríkið síðan sitja uppi með skuldirnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)