Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
8.2.2009 | 23:58
Tengsl LÍÚ við Heimssýn
Fátt þykir göfugra þessa dagana en vera hluti grasrótarinnar og laus undan öllu flokksveldi. Eftir allar fyrirhugaðar breytingar með stjórnlagaþingi og persónukjöri í kosningum til Alþingis mun þjóðin geta hlaupið út á gresjuna eins og í dömubindaauglýsingu, berjandi saman pottlokum, syngjandi; "Ég er frjáls eins og fuglinn, flogið næstum ég gæti ...". Engir klækir þ.s. mannanna verk verða fögur og fölskvalaus.
Við Bjarni Harðarson vorum frjálsir á fjöllum síðasta sumar og komumst að þeirri niðurstöðu að við værum sammála um flest ef ekki allt annað en samvinnu Íslands við Evrópusambandið. Nú lætur hann sem óspjölluð mey laus við allt flokksveldi, en ég held á lofti gildum rómantískrar jafnaðarstefnu og vil endilega virkja tækifæri komandi kynslóða og efla frelsið sem liggur í samstarfi fullvalda þjóða í Evrópu.
Seint verður LÍÚ talið til grasrótarhreyfinga eða með göfugar lýðræðislegar áherslur. Ljótasta laumuspil Íslandssögunnar var þegar útvegsmenn komu eignarhaldi á fiskveiðiheimildum inn bakdyramegin með Sjálfstæðisflokknum. Margir telja þann gjörning einnig vera upphaf græðgivæðingarinnar, þar sem markaðs- og peningahyggja fengu ótakmarkað frelsi. Með þeirri hugsun glataðist svo frelsið og allir bátar nú strand upp á skeri.
Baráttusamtök gegn aðild að Evrópusambandinu, Heimssýn, hafa aukið kraft í starfi sínu á síðustu mánuðum. Aukið fjármagn er látið til auglýsinga og fundahalda. Það er því eðlilegt að velt sé upp hvaðan peningarnir komi til aukinnar starfsemi. Í því samhengi lagði ég inn spurningu á síðu félaga Bjarna og fékk svar. Mín skoðun er að betra sé að hlaupa kauplaus undir stjörnubjörtum og bláum himni, heldur en að vera sendimaður hinnar forhertu hagsmunagæslu, LÍÚ.

Gunnlaugur B Ólafsson, 8.2.2009 kl. 10:25
Sæll Gunnlaugur. Ég get illa vikist undan að svara spurningum um fjármál Heimssýnar þar sem ég er gjaldkeri. Það rétta í þessu máli er að LÍÚ er meðal styrktaraðila en fráleitt sá eini. Án þess að ég sé búinn að færa reikning síðasta árs þá sýnist mér að styrkur þeirra til okkar nái því ekki að vera þriðjungur af tekjum, kannski fjórðungur. Og heildarvelta samtakanna er samt afar lítil. Mér er til efs að að útgerðarmenn þessa lands láti minna fé til Samfylkingarinnar án þess að það komu þessu máli kannski við. Kær kv. -b.
Bjarni Harðarson, 8.2.2009 kl. 13:57
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.2.2009 kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
8.2.2009 | 11:51
Muevelo Helgarlagið
Kúmbía er hinn seiðandi dans sem rekja má til þrælahalds og Kólumbíu. Sagt er að hin stuttu hringlaga skref sem eru einkennandi hafi þróast í hlöðunum þegar húsbóndinn var genginn til náða. Þá byrjaði dansinn, en hlekkir fótanna takmörkuðu yfirferð á dansgólfinu.
Daður dansins fólst í því að konurnar veifuðu síðum pilsunum kankvíslega haldandi á kerti, karlarnir dönsuðu til hliðar og aftan við konuna, með aðra hönd aftan við bak, með hatt sem þeir tóku ofa n og settu upp í takt við dömuna. Mennirnir voru oft með rautt klæði sem þeir vöfðu um hálsinn, sveifluðu í hringi fyrir ofan höfuð eða réttu dömunni til að halda á móti sér.
Fram á miðja tuttugustu öld þótti kúmbía grófur dans (vulgar) og væri einungis iðja lægri stéttana. En hann hefur þó ratað inn í kennslu í suðuramerískum dönsum eins og þeir eru kenndir víða um Ameríku og Evrópu. Þar er búið að slípa til lostann inn í okkar virðulega og borgaralega samfélag.
Lagið Muevalo er með hljómsveitinni Super Reyes, sem áður var hluti hljómsveitarinnar Kumbia Kings sem naut mikilla vinsælda. Persónulega hef ég dálæti á tveimur öðrum kúmbía flytjendum; Los Hermonos Flores frá El Salvador og saxafónleikaranum Fito Olivares frá Mexíkó og hljómsveit hans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2009 | 15:19
Greiðslugeta
Ágætur íslenskur vinur sem lengi hefur verið búsettur í Winnipeg og varð þar efnaður þurfti í einni heimsókn til "Gamla landsins" að leggjast inn á spítala fyrir nokkrum árum. Eftir um vikudvöl kom að útskrift og þá snéri hann sér að glerlúgunni á vaktinni og bað um reikninginn. Hann sá ekki ástæðu til að landar hans væru að borga þessa sjúkrahúsdvöl, því hann hefði vel efni á því sjálfur.
Þessi beiðni sló víst starfsfólk alveg út af laginu enda ekki vant því að fólk vilji borga fyrir slíka þjónustu, enda treyst á almannatryggingar. Indriði H Þorláksson fyrrverandi ríkisskattstjóri og nýorðinn ráðuneytisstjóri hefur bent á að; "Þó ástandið sé ekki gott í þjóðfélaginu er til fullt af fólki sem er í góðri vinnu eða hefur góð eftirlaun og er ekkert óeðlilegt að leggi meira af mörkum ...".
Skattakerfið er jöfnunartæki í samfélaginu. Almannatryggingar eru öryggisnet til að tryggja öldruðum og öryrkjum framfærslu. En þarf vel efnað fólk á fjárhagslegum stuðningi ríkisins að halda? Á ekki í það minnsta að bjóða þeim að borga reikninginn sem hafa efni og ástæður til að greiða fyrir samfélagslega þjónustu eða að afþakka samfélagslegan stuðning?
6.2.2009 | 09:17
Aumingja Kjartan Gunnarsson
Ný ríkisstjórn ætlar að losa þjóðina úr fjötrum flokksveldis, endurreisa virðingu Alþingis með því að láta það ekki vera afgreiðslustofnun fyrir framkvæmdavald, skipuleggja stjórnlagaþing til endurskoðunar á stjórnarskrá landsins og opna á persónukjör í kosningum. Allt þetta og fleira er sett fram til að efla lýðræðið í landinu.
Auk þess er ætlunin að styrkja innviði samfélagsins, eftirlitsstofnanir og ráðuneyti. Þannig hefur Fjármálaeftirlitið nú verið stokkað upp og skipuð þar ný forusta. Beðið er eftir að álíka endurnýjun eigi sér stað í Seðlabankanum. Eins og Gylfi Magnússon hefur réttilega bent á að þá liggur vandi okkar helst í því að eftirlitsstofnanirnar voru í liði með útrásinni og bönkunum.
Kjartan Gunnarsson virðist ekki geta tekið undir neitt af því sem sett hefur verið fram í mótmælum þúsunda síðustu mánuði og birtist nú í útfærslum nýrrar stjórnar til að tryggja heilbrigði og lýðræðislegar áherslur innan stjórnsýslunnar. Hann hefur bara áhyggjur af vini sínum, sem hann virðist halda að eigi að vera miðdepill sólkerfis og samfélags um ókomin ár.
Vinaböndin sem tryggt hafa fríðindi og störf eru nú að gefa sig. Þeir voru fjórir mest áberandi einstaklingar að innleiða sérgæsku Sjálfstæðisflokks inn í okkar samfélag; Kjartan Gunnarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Davíð Oddsson. Allir þessir boðberar Thatcherismans, nema Kjartan Gunnarsson, nýttu flokkinn til að koma sér í opinberar stöður.
Þessir menn héldu því fram í orði að það væri fátt ömurlegra en vera ríkisstarfsmaður, áskrifandi að laununum sínum, í stað þess að vera í einkageiranum og þurfa að standa og falla með eigin rekstri. Þessi einstaklingshyggja í atvinnulífinu umbreyttist síðan í einkavinavæðingu, þar sem flokksskírteini voru notuð til að raða fólki á jötuna. Þetta þolir alveg smá tiltekt.
![]() |
Pólitískar hreinsanir og ofsóknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2009 | 08:42
Nauðsynlegar hreinsanir
Ný ríkisstjórn leggur áherslur á lýðræðisleg vinnubrögð. Eðli minnihlutastjórnar felst í að leita eftir samstöðu um mál. Þetta er holl tilbreyting. Forseti Alþingis gegnir þarna lykilhlutverki að tryggja sátt. Að frumvörp fái eðlilega meðhöndlun og meirihluta innan Alþingis. Þetta mun án efa efla sjálfstæði þingsins. Í þessu samhengi var nauðsynlegt að skipta um forseta þess, en hann var fulltrúi flokks og framkvæmdavalds sem hafði litið á þingið sem afgreiðslustofnun. Áhersla á sterkan meirihluta birtist í þeirri mynd að Flokkurinn þurfti ekki að hlusta á kóng né prest. Nægjanlegt var að tveir karlar hér eða þar ákveði hvort landið væri stuðningsaðili stríðs í fjarlægum löndum eða að yfirtaka banka.
Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir sett hina siðferðilegu kröfu á seðlabankastjórana um að semja um starfslok. Að þeir skynji ekki væntingar og nauðsyn þess að endurnýjað verði traust á forystu og banka er með ólíkindum. Ef að það kostar 44 milljónir til að gera þessa úrbætur þá verður svo að vera. Það fer ekki saman að aðalbankastjóri Seðlabanka Íslands sé á sama tíma guðfaðir stjórnmálaflokks. Það er þörf á að endurnýja lagaramma um bankann, en það á ekki að blanda því saman við þá staðreynd að bankastjórnin getur ekki límt sig við stólana þó hún hafi orðið uppvís að margvíslegum afglöpum. Það er ansi mörg spillingarhreiður íhaldsins í efnahagslífi og stjórnsýslu sem þola smá tiltekt.
![]() |
Biðlaunin áætluð 44 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2009 | 23:36
Stefnuræða
3.2.2009 | 08:22
Kjarni málsins
Því hefur verið haldið fram að hina skyndilegu kúvendingu íslensks fjármálalífs megi rekja til EES samningsins. Þar hafi skapast grunnur fyrir óhóf og stjórnleysi sem hleypti ofvexti í bankakerfi sem varð margfalt stærra en ríkisútgjöld.
Vissulega skapaði EES samningurinn frelsi og sóknarfæri en það er rangt að ekki hafi verið tæki til staðar að halda vexti og útrás innan viðráðanlegra marka. Kvaðir um bindiskyldu banka voru litlar og lítil áhersla á að tryggja gjaldeyrisforðann.
Norðmenn hafa síðustu áratugi verið að safna í sjóði til að tryggja að landið sé undirbúið fyrir kreppu. Á sama tíma var hér ráðandi græðgisvæðing og taumlaus skuldsetning. Treyst á að ný álver og þensla redduðu þjóðarbúinu frá ári til árs.
Hugmyndafræðin var vissulega röng. Gylfi Magnússon segir Það var þvert á móti beinlínis ætlast til þess að þessar stofnanir væru ekki að hefta fjármálakerfið og vöxt þess heldur að styðja fjármálakerfið í frekari vexti og útrás.
Erlendir sérfræðingar hafa verið á sama máli að við höfum ekki nýtt heimildir laga til að nýta taumhaldið. Kreppan gefur ekki ástæðu til að taka af okkur frelsið. Áfengi leiðir ekki til drykkjusýki, hún er afleiðing skertrar sjálfstjórnar.
![]() |
Hugmyndafræðin var röng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.2.2009 | 10:23
Hvenær veiðir maður hval og hvenær veiðir maður ekki hval?
Leyfi til hvalveiða voru gefin korteri fyrir stjórnarslit af fyrrum sjávarútvegsráðherra. Hraustir sægarpar víða um land fagna og segja að þetta hafi verið eina vitið. Gamla viðhorfið um að við látum nú ekki hvern sem er segja okkur fyrir verkum heyrist bergmála í auglýsingum og heitu pottunum. Með því fylgir röksemdin um að það þurfi að tryggja jafnvægi í lífríki sjávar. Hvalir borði svo mikið af þorski og öðrum nytjafiskum mannsins.
Ef öruggt er að markaðir séu fyrir hvalaafurðir þá kemur til greina að heimila hvalveiðar, þó gjörningur Einars K Guðfinnssonar hafi verið valdníðsla og stendur þar sem eitt af minnismerkjum Sjálfstæðisflokks af þeirri sortinni. Hinsvegar áttu Norðmenn mjög erfitt með að selja afurðir sinna hvalveiða. Þessir konungar hafanna safna upp ýmsum þrávirkum mengunarefnum í umhverfinu í vefi kjötsins og því hefur það orðið óvinsælt til manneldis.
Því hefur verið haldið fram að alltaf sé hægt að nýta þetta sem loðdýrafóður. Ég hef ásamt fleirum staðið fyrir veiðum á útsel í sellátri fyrir austan síðastliðin haust. Útilokað er að selja selinn til manneldis og síðustu haust hefur ekki einu sinni verið hægt að láta hann frítt til loðdýrabúanna. Þau hafa ekki hakkavélar eða frystigeymslur fyrir miklar birgðir eða að veiðarnar eru ekki á réttum tíma miðað við hvenær þeir eru í mestri fóðurþörf. Hef trú á að svipað verði ástatt með hvalaafurðir og þá eru hvalveiðar bara þráhyggja.
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor skrifar ágæta grein í Moggann um nauðsyn þess að endurskoða umrædda reglugerð þó ekki væri nema út frá sjónarmiðum um jafnræði einstaklinga til sjósóknar. Það væri í anda athugasemda mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það er eðlilegt að slíkar heimildir fari á uppboð en standi ekki eingöngu til boða fyrir einhverja flokksgæðinga Sjálfstæðisflokksins. Þá væri meira segja hægt fyrir þá sem að eru verndunarsinnaðir að kaupa leyfin án þess að nýta þau. Afrakstur sölu þessara veiðiheimilda færi í bjargráðasjóð heimila landsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
1.2.2009 | 13:32
Fagrir dagar
"Pabbi, sjáðu trén. Svo er líka glimmer í snjónum. Takk fyrir". Þetta voru fyrstu viðbrögð fimm ára sonar þegar við komum út á föstudagsmorgni á leið á leikskóla.
Síðustu þrír dagar eru búnir að vera sérlega fagrir, hvort sem það er vísir á betri tíð í víðara samhengi mannlífsins.
Helgin er búin að nýtast vel til útivistar, farið í Bláfjöll og á hestbak upp í Laxnes. Set hér inn nokkrar myndir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.2.2009 kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2009 | 10:22
Skynvilla og hrun
Stærsta meinsemd Sjálfstæðisflokks er að geta aldrei sýnt auðmýkt og vilja til að hlusta á fólk. Að láta allt sitt starf ganga út á að upphefja mikilfengleika flokksins. Þessir eiginleikar eru helstu ástæður lítillar lýðræðishefðar í landinu. Nú er að ljúka 18 ára setu flokksins og ekki er farið frá björgulegu búi.
Flokkurinn sem ætíð var sagður kjölfestan í efnahagsmálum skilur eftir sig hrun. Hin blinda flokkshollusta gat ekki tekið á smákóngaveldinu og spillingunni sem fann hentug vaxtarskilyrði undir væng íhaldsins. Ráðuneytisstjórar, sýslumenn, dómarar, forstöðumenn stofnana og fleiri hafa iðulega fengið embættin út á flokksskírteinin.
Rakst á nokkra gullmola við lestur Fréttablaðsins áðan;
"Flokkurinn er búinn að vera við völd í átján ár og Ísland er hrunið". Gunnar Helgi Kristinsson
"Ég minnist þess ekki að skynvillan sem Sjálfstæðismenn kalla pólitík hafi nokkurn tímann verið dregin eins skýrum dráttum". Davíð Þór Jónsson
"Aldrei aftur eins flokks land". Hallgrímur Helgason
![]() |
Geir: Stjórnuðust af hatri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2009 kl. 02:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bjarni er bókhald Heimssýnar opið? Er það rétt að LÍÚ sé aðalstyrktaraðili? Það er bákn sem að elur meira illgresi en flokksveldið allt til samans.
Íhaldið og Framsókn gáfu þeim kvótann, sem var meira og minna glutrað frá sér, með græðgisvæðingunni, til erlendra lánadrottna. Þar þurfti ekki neitt ESB til að við töpuðum umráðarétti yfir fiskveiðiheimildunum.
Þeim tókst það einum og óstuddum, með þjóðrembinginn og neysluhyggjuna að vopni.