Gildi mannúðar

FischerÞað að bjarga Bobby Fischer frá því að enda ævidagana í japönsku eða bandarísku fangelsi er helsta tákn þess hvers við erum megnug í mannúðarmálum. Það hversu smá þjóð getur metið og brugðist við með sneggri hætti en aðrar þjóðir. Þar á Davíð Oddsson hrós skilið fyrir sinn hlut. Annað helsta dæmið um slíkt sjálfstæði í utanríkismálum var í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltslandanna.

Nú eru líkur á að Fischer verði jarðaður á Íslandi. Mikil er skömm hins bandaríska herveldis í meðhöndlun sinni á einmana veikgeðja persónu, sem var þó einn þeirra helsti snillingur. Ef honum verður fylgt til grafar hér á landi á það að vera á þessum sömu fögru forsendum mannúðar sem að hann kom til landsins. Það á ekki að vera á forsendum persónudýrkunar eða að setja hann á stall. Þingvellir skipta ekki máli í þessu samhengi.


mbl.is Fischer hvíli í íslenskri mold
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 

Hroki,mér finnst þetta þvílíkur hroki að vilja að hann sér jarðsettur á þingvöllum og að það sé reyst stytta af þeim félögum boris og bobby einhverstaðar í laugardal samhvæmt því sem Guðmundur  óskar eftir, en hvenar kemur stytta af Jóni páli í laugardal ??

Var hann ekki sannur islendingur sem við  islendingar ættum að upphefja, jú hann var ekki að skafa að því að auglýsa ísland og þjóð,  "im a icelandi viking "

Ég fékk velgjuna þegar ég sá Vísa þjófinn og Sæma rokk ( fokk)  upphefja þennan " yndislega " einstakling ,því lík slepja.

Ef að það kemur stytta af þessum bandaríkja manni á undan Jóni páli

þá afsala ég mér því að ég sé islendingur,og sæki um grænlenskan ríkisborgara rétt. 

Vilhjálmur p Bjarnason (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 21:38

2 identicon

Ég hef fulla samúð með þessum látna manni og megi guð bless hann.

jARÐA Í ÞJÓÐARGRÖF!!!!

ER ALLT Í LAGI MEÐ FÓLK??

Valur M. Gunn (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 04:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband