Sumar í Mosó

Kirsuberjablóm

Það er randafluga á sveimi milli bleiku blómanna á kirsuberjatrénu í garðinum. Tréð er um það bil hálfblómgað. Í Washington innsiglar blómgun trjánna sumarkomuna í hugum fólks. Á síðasta ári var tréð í hámarksblóma 12. maí. Miðað er við að 70% blómanna séu útsprungin. Þá hafði þetta merki sumarkomunnar látið ljós sitt skína 5. apríl í höfuðborg Bandaríkjanna. Það ætti að vera búið að gefa út formlega komu sumarsins núna fyrir helgi hér á Mosfellsbæjarhálendinu. Það er sem sagt nokkrum dögum seinna sumarið í ár heldur en í fyrra.

Í maí hef ég verið síðustu fjögur árin með göngur á fellin umhverfis Mosfellsbæ. En áður hafði ég merkt hringleiðir á Helgafell, Reykjafell, Reykjaborg og Úlfarsfell í samvinnu við bæinn og landeigendur. Nú á fimmtudag byrja hinar árlegu göngur á fellin. Byrjunarpunktur hefur verið Álafosskvosin og verður svo enn, þó hún sé í sárum. Lagt er af stað klukkan fimm (17:00). Fyrsta fellið sem farið verður á 15. maí  er Helgafell, næsta þriðjudag 20. maí verður farið á Reykjafell, fimmtudaginn 22. maí á Reykjaborg og þriðjudaginn 27. maí verður gengið á Úlfarsfell. Allir eru velkomnir í þessar síðdegisgöngur.

Fellin voru á sínum tíma merkt í litum regnbogans, með rauðum, gulum, grænum og bláum stikum. Merkingin verður endurnýjuð samhliða gönguferðunum. Það er unnið í samvinnu við útivistarhóp Varmársamtakanna. Þar er komin grænn kjarni vaskra meyja og pilta sem vill leggja uppbyggingu útivistarmöguleika í bæjarfélaginu lið. Leiðirnar á fellin eru eitt af því sem gefur Mosfellsbæ sérstöðu og fellin hafa mikla möguleika til að verða aðdráttarafl til útivistar fyrir almenning af höfuðborgarsvæðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gulli
Það væri gaman að fara á fellin en þetta er erfiður tími fyrir fólk í vinnu. Hvernig væri að skipuleggja fellagöngur um helgar? - eða jafnvel að kvöldlagi. Bara uppástunga! Atorkusamur að vanda.
Bestu kveðjur,

Sigrún P (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 20:00

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Hæ Sigrún. Formleg brottför hefur oftast verið korter yfir fimm. Fólk á ekki að vinna lengur en fram undir fimm, fara í ríflega tveggja tíma göngu og njóta matar í framhaldi. Kvöldin eru ekki betri og á helgum er ég farin að fljúga stundum í austurveg. Mbk,  G

Gunnlaugur B Ólafsson, 13.5.2008 kl. 20:25

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eru litirnir þá í samræmi við erfiðleikastigin eða bara út í loftið?

Hrönn Sigurðardóttir, 13.5.2008 kl. 21:20

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mitt kirsuberjatré er í fullum blóma.

Hólmdís Hjartardóttir, 13.5.2008 kl. 21:27

5 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Hrönn þetta er e.t.v. ekki alveg út í loftið að láta hvert fell hafa sinn einkennislit og hringurinn sem þau mynda gefi tóna regnbogans. En þetta segir ekkert um erfiðleikastig. Þar eru þau nokkuð svipuð að hæð, en mislangt.

Hólmdís ég var búin að sjá að þú varst orðin drjúg með þín blóm 5. maí. En við hérna upp á hásléttunni og e.t.v. líka áhrif á lofthita að ég er nokkurn spöl frá sjónum. Fór í afmæli í Fossvoginn í gær. Þar var kirsuberjatré í fullum blóma. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 13.5.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband