Hver fær viðbótarkvóta?

Mér finnst vanta í fréttina hvernig þessum viðbótarheimildum verður úthlutað. Það má ef til vill rökstyðja það að skuldsett sjávarútvegsfyrirtæki sem að eru búin að fara í gegnum magurt tímabil eigi rétt á viðbót. Hinsvegar væri fáranlegt að úthluta kvóta til einstaklinga eða fyrirtækja sem eru að leigja hann frá sér. Þá væri nær að ríkið fengi slíkar tekjur frekar en einhverjir sægreifar sem selt hafa skip sín geti haft af því tekjur að leigja sameign þjóðarinnar.
mbl.is Þorskkvóti aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

ef þú átt 1 tonn og það er t.d. 10% aukning. þá eykst kvótinn þinn um 100 kg. 

Fannar frá Rifi, 16.1.2009 kl. 12:47

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Það voru ákveðin tonn sem voru úthlutuð sem heimild til veiða en Sjálfstæðisflokkurinn hélt svo áfram og laumaði því inn að þetta mætti bókfæra til eignar. Enn stendur þó að þetta sé sameign þjóðarinnar.

Mikilvægt er að við notum alla nýja úthlutun til að endurskoða þetta rugl sem varð rótin að græðgisvæðingunni og "góðærinu".

Gunnlaugur B Ólafsson, 16.1.2009 kl. 14:05

3 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Hefi spurn af því, að þeim sem úthlutað var kvóta í september s.l. fái þessa viðbót.  Þekki einn, sem á smábát og rær þegar best lætur, hann fékk kvótaúthlutun nú, sem svarar uppá nokkrar milljónir og er mjög glaður yfir. 

Þorkell Sigurjónsson, 16.1.2009 kl. 15:08

4 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ég veit ekki hvort búið er að ráðstafa þessum kvóta Gulli en allavega er klárt að þeir sem eru búnir að selja sig út úr greininni og eiga ekki skip fá ekki kvóta.

Þórbergur Torfason, 16.1.2009 kl. 17:33

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hluti af þessum verðmætum fer væntanlega  beint inn í þrotabú, sem erlendir bankar gera kröfur í!

Sigurður Þórðarson, 16.1.2009 kl. 23:12

6 identicon

bóndi í borgarfyrði á kvóta og

gisli hjalmarsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 00:08

7 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Siguðru Þórðarson....

ok.. nú ætla ég að álíta það að þú sért með þessu "commenti" þínu (verður bara að afsaka ef að það er rangt og gagnrýna mig fyrir "fordóma") að þú sért að gagnrýna kvótakerfið og kvótakónga..

en ef að það er rétt hjá  mér..

þá ætla ég að benda þér á það að þeir sem að eru skuldbundnir erlendum bönkum (nota bene í gegnum íslenska banka) eru þeir sem að tóku sér lán til þess að fjámagna kvótkaup

og menn fara ekki út í það að fjármagna kvótakaup nema að ætla sér að veiða þann kvóta. 

Árni Sigurður Pétursson, 17.1.2009 kl. 07:27

8 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Þessi umræða er tekin af ráðherra og klerki, Einari og Karli í fréttablaðinu í dag. Þeir eru úr flokkum sem að hafa ólíka sýn á þessi sjávarútvegsmál. Mér finnst ólíkindum að Samfylkingin skrifi upp á annað en þessi aukaúthlutun fari á almennan markað sérstaklega í ljósi niðurstöðu mannréttindanefndar um þörfina á að opna kerfið. Ásamt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að unnið verði í nauðsynlegum eðlisbreytingum á kerfinu svo að aðgengi verði tryggt að fiskveiðiheimildum.

Gunnlaugur B Ólafsson, 18.1.2009 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband