Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
16.4.2009 | 12:44
Fáránlegir skriffinnar
Í sveitinni er maðurinn hluti af lífríkinu. Veikburða dýri er hjálpað. Fuglar og spendýr verða stundum hænd að mannskepnunni. Það þarf að losa um svona regluverk, sem hefur þann helsta tilgang að byggja upp eftirlitsiðnað á höfuðborgarsvæðinu. Frændi minn sem gerir út bát rakti eitt sinn fyrir mér alla þá vottunaraðila sem þarf til að fá leyfi til sjósóknar.
Ferðalag "sérfræðings" Umhverfisstofnunar, dagpeningar, flugfar austur, leigja bíl og hugsanlega eitthvað annað kemur kostnaði við þessa "sérfræðivinnu" áreiðanlega upp í 200 þúsund krónur. Nær hefði verið að styðja við kostnað og fyrirhöfn sem hefur hlotist af björgun kálfsins. Verkefni sem að er öllum öðrum en blindum kerfiskörlum til yndis og ánægju.
Líf Lífar í höndum ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.4.2009 | 10:20
Mun svissneski frankinn lækka?
Efnahagur Sviss byggir að miklu leyti á bankastarfsemi og bankaleynd. Nú þegar hin mikla bankakrísa fer um veröldina og mikill þrýstingur er á svissnesk stjórnvöld að upplýsa um vafasama viðskiptaaðila, sem leitað hafa í skjól, þá hriktir í stoðum efnahagskerfisins.
Ef frankinn veikist þá munu myntkörfulánin rétta eitthvað úr kútnum. Eins dauði er annars brauð . Í nútímanum er til sjálfstætt fólk sem að er frumlegt og skapandi. Nýtir tækifæri heimsþorpsins, en það eru ekki til sjálfstæðar þjóðir. Tilvera okkar er háð samskiptum og tengslum við önnur lönd.
Innan tuttugu ára verða einungis 3-4 gjaldmiðlar notaðir í veröldinni. Með nýjum viðmiðum í viðskiptum landa á milli mun Sviss einangrast og að öllum líkindum tapar gjaldmiðill þeirra þeim forsendum sem hafa gefið honum styrk og stöðugleika.
UBS segir upp 8.700 manns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.4.2009 | 00:27
20 þúsund störf
Sjónvarpsauglýsing Samfylkingarinnar um áformin að skapa tuttugu þúsund ný störf hefur vakið mikla athygli. Sumum finnst þetta hálfklént og bera merki um yfirborðskenndan kosningabrag. Eitt er víst að það er nauðsynlegt að draga fram mikilvægi þess að fá fleiri aura í kassann og skapa atvinnutækifæri í landinu.
Þó að Ástþór Magnússon sé í hugum flestra í hlutverki trúðsins í leikritinu, þá skoraði hann nokkra punkta hjá mér í kvöld með ástríðu sinni í atvinnumálum. Það er staðreynd að við getum ekki haft vel menntað fólk deginum lengur í því hlutverki að mæla út malbikið. Þó Katrín Jakobsdóttir væri í senn skynsöm og krúttleg, þá var of mikill ríkisbragur yfir áherslum hennar í þessum málaflokki.
Stjórnarskráin áfram á dagskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2009 | 12:46
Búsáhöld
Krafa almennings um siðbót í stjórnmálum má ekki þagna. Pólitíkusarnir setja persónukjörið til hliðar af því að þeir eru búnir að fjárfesta miklu í prófkjörsbaráttu eða voru svo afkastamiklir í að safna stuðningsmönnum úr öllum flokkum til að hafa áhrif á hvar þeim er skipað á bekkinn í komandi kosningum.
Útlistun Svandísar Svavarsdóttur er sannfærandi um það samhengi sem Guðlaugur Þór var starfandi innan, sem formaður Orkuveitu Reykjavíkur, fjáröflun hjá FL group sem hafði áhuga á kaupum í REI. Bjarni Harðarson er einnig með ágæta færslu um að það er kjánalegt að setja ábyrgðina á millistjórnendur í fyrirtækjunum sem veittu styrkina.
Krafan er nú á að fjárstuðningur fyrirtækja í prófkjörsbaráttum verði birtur. Það er mikilvægt fyrir kjósendur að vita hvaðan peningurinn kemur til frambjóðenda að fara út í dýra kosningabaráttu til að tryggja sér sæti á lista. Dögg Pálsdóttir hefur bent á í færslu að hjá Sjálfstæðisflokki á höfuðborgarsvæði röðuðust menn á lista í réttu hlutfalli við eyðslu í auglýsingar.
Ríkisendurskoðun hefur ekki heimild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2009 | 14:19
Baráttan fyrir heimilin
Málsókn til varnar heimilum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.4.2009 | 13:03
Yndislega Akureyri
Margir leggja leið sína til Akureyrar vikuna fyrir páska og yfir hátíðina. Þar gegnir skíðamennskan og Hlíðarfjall stóru hlutverki. Að hafa slíka frábæra útivistarparadís í bakgarðinum eru einstök hlunnindi. Bærinn sjálfur er svo hlýr og notalegur. Akureyringar eru í allt öðrum takti heldur en hinn almenni íbúi höfuðborgar. Taugarnar eru ekki þandar í hversdagslegu amstri. Þú ert ekki tortrygginn á bílana á götunum, býst ekki við að það verði svínað á þig eða flautað. Þar að auki er búið að undirstrika göfug gildi í hinu mannlega samfélagi með því að setja hjörtu á verslanir og þjónustustaði. Þetta fannst mér mikill yndisauki, enda áhugamaður um kærleika og gott flæði.
Það er svo mikið af húsum sem að maður skynjar að hafi merkilega og góða sál. Bæjarbúar virðast líka hafa þor til að vera frumlegir í garðskreytingum. Það er merkilegt að hugsa til þess að á þeim tíma sem að ríkti mesta efnahagslega góðæri í sögu landsins þá voru byggð ljótustu húsin, andlausir ferkantaðir kassar. Ekkert nostur og fegurð. Áherslan var ekki á hin nærandi og skapandi element í mannlífinu. Nú höfum við tækifæri til að setja okkur ný viðmið, nýja tegund ríkidæmis og þar er margt í þeirri stemmingu sem er á Akureyri til fyrirmyndar.
Gleðilega páska
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.4.2009 kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.4.2009 | 08:34
Rétti tíminn til að breyta
Fólk sem ætíð hefur merkt við íhaldið í kjörklefanum lýsir því nú yfir að á þessu vori muni verða breytingar á þeim ráðahag. Hitti í gær þekktan athafnamann á sjötugsaldri sem sagðist alltaf hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn en gæti ekki gert það í komandi kosningum.
Flokkurinn sem gengdi hlutverki sem kjölfesta fjárhagslegrar fyrirgreiðslu hefur glatað hlutverki sínu og trúverðugleika. Nú þurfa allir að leggjast á árar til að gera Samfylkinguna sem best úr garði svo hún verði kjölfesta lýðræðis og félagslegs réttlætis.
Samfylkingin hefur sóknarfæri í að útfæra sem best tengslin við Evrópusambandið. Aðrir flokkar virðast að mestu hafa lokað þeim glugga, án þess að útskýra hvernig þeir sjá fyrir sér stöðu landsins í heimsþorpinu. Án þess að taka á vanda gjaldmiðils og innleiða framtíðarsýn.
Samfylkingin hefur sóknarfæri við endurskoðun kvótakerfa til lands og sjávar. Miðað við skuldsetningu sjávarútvegs er líklegt að stór hluti fiskveiðiheimilda verði orðin eign ríkisbankana á næstu misserum. Þær heimildir eiga að fara á markað og opna á nýliðun.
Samfylkingin hefur sóknarfæri í að innleiða matvælamenningu í landinu þar sem að komið er á virkara sambandi neytenda og framleiðenda. Losa bændur úr miðstýrðu kvótakerfi. Leggja áherslu á vöruþróun, vistvænar vörur og fleira sem stuðlar að því að við ræktum garðinn okkar.
Samfylkingin hefur sóknarfæri í að losa okkur út úr tækni- og lyfjalausnum í heilbrigðismálum. Það þarf hugarfarsbreytingu til að stemma stigu við lífstílstengdum sjúkdómum sem herja nú sem faraldur á Vesturlöndum. Efla þarf þekkingu á virkustu leiðum til heilsueflingar.
Samfylkingin hefur sóknarfæri að tryggja farsælar útfærslur í menntamálum. Framhaldsskólinn og önnur skólastig eru að fara í gegnum miklar breytingar á næstu árum. Þar er mikilvægt að búa til nærandi umhverfi og sköpun sem veiti gott vegarnesti fyrir lífið, störf og framhaldsnám.
Samfylkingin hefur sóknarfæri í að innleiða nýja hugsun í umhverfismálum. Setja metnaðarfulla stefnu um vistvænar samgöngur í þéttbýli. Í dreifðri borg verða einkabílar áfram í mikilvægu hlutverki en hægt er að fella niður aðflutningsjöld af rafknúnum ökutækjum.
Samfylkingin hefur sóknarfæri með áherslu á nýsköpun, sprotafyrirtæki, verkmenningu og auðlindir landsins til að treysta sem best efnahagslegar undirstöður þjóðarinnar og aukinn útflutning. Mikilvægt er að verja eignarhluta fólks í húsnæði og hag heimilanna.
Með öll tromp á hendi er mögulegt að ná enn meira fylgi
Samfylking eykur forskot sitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
9.4.2009 | 01:57
Tengsl Íslands og Evrópa eitt helsta kosningamálið
Auðvelt er að sjá og skynja af umræðunni að tengslin við Evrópusambandið munu verða lykilmál í komandi kosningum. Þar hefur Samfylkingin mikla sérstöðu og gera má ráð fyrir að eftir því sem þessi umræða verði þyngri að þá skapist sóknarfæri fyrir Samfylkingu í að sækja fylgi inn í raðir vinstri grænna og sjálfstæðismanna.
Guðmundur Ólafsson hagfræðingur og fleiri fræðimenn hafa bent á að þó að VG og Sjálfstæðismenn hafi hafnað aðild að ESB á landsfundum sínum að þá hafa þeir hvorugur komið með betri lausnir til að tryggja stöðugleika, burðarás um menningu, viðskipti og myntsamstarf.
VG tvöfaldar fylgið í Kraganum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.4.2009 | 19:20
Eyðimörk íhaldsins
Aumt er að sjá fyrrum stórveldi í pólitík arka um stefnulaust eins og dýr sem leitar að vatninu í eyðimörkinni. Þessi píslarganga verður pínlegri eftir því sem styttist í kosningar. Innvígðir stíga í pöntu til að tefja fyrir stjórnarskrárbreytingum sem ætlað er að tryggja lýðræðislegar umbætur og eignarrétt þjóðar á auðlindum.
Sjálfstæðismenn virðast ekki hafa neitt til að sameinast um. Nýfrjálshyggjan hrunin og þeir munu ekki sjá sinn Messías krossfestan á Skólavörðuholtinu nú á Páskana. Hann er orðinn útlægur úr öllum betri samkvæmum í borginni vegna óheflaðrar framkomu. Nýi foringinn veit ekki hvort að hann vill ræða við Evrópu eða ekki, veit ekki hvort að hann er á móti skattahækkunum eða ekki.
Staðreyndin er sú að meirihluti er á Alþingi fyrir þessum breytingum. Þær hafa líka breiða skírskotun til vilja almennings um pólitískar áherslur. Innlegg sjálfstæðismanna er brekkusöngur og upplestur úr lýsingum á veðurhorfum næstu daga. Að leggja sitt af mörkum til málefnalegrar umræðu færi betur en eyða orku í að reyna að skola umbótum út af borðinu.
Sjálfstæðismenn leggja fram sáttatillögu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2009 | 08:39
Ég heyrði í lóunni inn um gluggann
Nýlega vaknaður fann ég goluna koma inn um gluggann og það voru vorlegir vindar. Snjólaust og hlýtt. Frá húsinu okkar liggja akrar og ásar í átt að Úlfarsfelli. Allt í einu heyrði ég skýrt og greinilega lóu syngja dirrindí. Var reyndar búin að heyra í fréttum að hún væri búin að sjást við suðausturströndina, en að heyra söng hennar á vorin er alltaf fagnaðarefni.
Þessi fugl sem dvalið hefur einkum í Skotlandi og með vesturströnd Evrópu allt suður til Marokkó í vetur er nú kominn til að ná okkur út úr hinum kreppta þankagangi. Hún ætlast til þess að maður teygi vel úr sér, dragi djúpt andann, líti út um gluggann og segi fullur bjartsýni; Það er að koma sumar.
Lóan er komin að kveða burt snjóinn.
Kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
Sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
Ég sofi of mikið og vinni ekki hót,
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.