2.12.2008 | 15:50
Rótlaust snobb
Ríkisútvarpið sem stofnun virðist úr tengslum við grasrótina sem eru þarfir og áhugi neytendanna, hlustenda vítt og breytt um landið. Það virðist líka utan áhrifasviðs stjórnvalda, sem vísa til sjálfstæðis þess sem stofnunar.
Þegar rekstri var breytt í opinbert hlutafélag snérist leikurinn um breytta ímynd. Stjörnudýrkun og ofurlaun voru tónar sem komu inn í reksturinn. Það þótti ekki smart að vera ríkisstarfsmaður. Ákveðið var að vera í takt við hugmyndir í einkarekstri.
Það sem verra er að íslensk dagskrárgerð stofnunarinnar er ekki nógu metnaðarfull. Viðtalsþættir, spurningaþættir og Spaugstofa. Egill Helgason er breiða bakið í að halda uppi einhverju af því sem kallast gæti menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins.
Annar hver maður á orðið vídeótökuvélar og kann að klippa. Hef trú á því að það væri hægt að búa til sjónvarp með miklu meiri fjölbreytileika ef frjórri hugsun væri hleypt að. Tökum niður allar snobbgardínurnar og látum starfsemina snúast um sköpun, fræðslu og skemmtun.
![]() |
Launin kannski of há |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.12.2008 | 00:33
Einangrun þjóðrembunnar
Tækifæri Íslendinga liggja í fullri þátttöku í Evrópusambandinu. Viðfangsefni framtíðar er ekki að sanna fyrir umheiminum að við getum staðið einir og sjálfstæðir, heldur að gera sér grein fyrir að í allri samvinnu liggja bæði kvaðir og möguleikar. Flest bendir til að fólk og fyrirtæki njóti ávinnings af aðild að sambandinu. Þar er ekki bara verið að líta til aðgengis að mörkðum og tengsl við traustan gjaldmiðil. Skilningur á mannréttindum á sér sterkar rætur innan sambandsins og búast má við miklu í samstarfi þjóða í mennta- og menningarmálum.
Það er merkilegt hversu fljótt veður skipast í lofti um Evrópumál í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Bjarni Harðarson og Guðni Ágústsson helstu andstæðingar sambandsins komnir á hliðarlínuna í Framsóknarflokknum. Flestir aðrir í núverandi þingmanna- og forystusveit vilja stefna á aðildarviðræður. Varaformaður Sjálfstæðisflokks Þorgerður Katrín braut ísinn og þögnina sem ríkt hafði þar um Evrópusambandið. Arfleifð Davíðs Oddssonar gekk út á rembing um að við værum mest og best. Engum háð.
Annar fyrrverandi varaformaður, Friðrik Sophusson, bætist í hópinn í dag. Hann lýsir þeirri skoðun sinni að Sjálfstæðisflokknum beri að hafa aðildarviðræður á stefnuskrá sinni og það samkomulag sem út úr þeim kæmi færi síðan í þjóðaratkvæði. Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður flokksins hefur haft nokkurt frumkvæði í umræðunni sem ritstjóri Fréttablaðsins. Nú virðist Morgunblaðið vera orðið afgerandi hlynnt ESB ef horft er til leiðara þess á laugardaginn. Atvinnulífið og verkalýðshreyfingin er nánast öll hlynnt aðildarviðræðum.
Bjarni Harðarson félagi minn á Selfossi hefur farið mikinn í að sortera samflokksmenn sína í sanna Framsóknarmenn og þá sem eru gervi eða kratar sem eiga heima í Samfylkingunni. Sama máli gegnir um íhaldið Hjört Guðmundsson sem er stjórnarmaður með Bjarna í Heimssýn. Hann skrifaði gegn Guðfinnu Bjarnadóttur þegar hún opnaði glugga til Evrópu. Einnig var hann með kratameldingar á Þorgerði Katrínu og taldi hana óverðuga að standa undir ránfuglstákninu. Vilja Bjarni og Hjörtur enn að allt þetta fólk fari í Samfylkinguna sem hefur haft aðildarviðræður á stefnuskrá um langt skeið?
Í dag bætist Jón Magnússon þingflokksformaður Frjálslyndra í hóp þeirra sem lýsa yfir stuðningi við aðildarviðræður. En mikið þarf að hafa breyst í þingflokknum til að hann hafi aðra þingmenn að baki sér í þessu máli. Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar hefur verið jákvæður gagnvart Evrópusambandinu. Það er því merkilegt að á nokkrum mánuðum er þingheimur og forystusveit flestra stjórnmálaflokka farin að ganga í takt við þjóðarvilja um samstarf innan álfunnar.
En hvar er endurmat Vinstri grænna í þessu máli? Er virkilega enginn þingmaður eða áhrifamaður í flokknum sem hefur opnað gættina gagnvart aðildarviðræðum og upptöku evru?
![]() |
Höft eða Evrópusambandið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.12.2008 kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.11.2008 | 12:32
Áfram morgunleikfimi á Gufunni!
Það er ótrúklegt að Rás 1 ætli að skera niður nokkura mínútna morgunleikfimi í sparnaðarskyni. Það er ekki ráðdeild á krepputímum að leggja af eitt elsta tákn þess að ríkisvaldið hafi skilning á mikilvægi lýðheilsu í landinu.
Amma mín varð 106 ára og var um skeið elsti Íslendingurinn. Ég ólst upp við að hún væri með bros á vör, full af stolti yfir því hvað hún væri flínk í að gera teygjur, beygjur og sveigjur eftir hressilegri leiðsögn Valdimars Örnólfssonar við undirleik Magnúsar Péturssonar.
Þetta eru ekki góðar kveðjur til þeirra sem ekki komast út í líkamsþjálfun. Eldri borgarar sem hafa vanist þættinum áratugum saman eiga ekki að þurfa að missa af þessum dagskrárlið á miðjum vetri í rótleysi efnahagsþrenginga.
Nær væri að skera niður í síbiljunni sem er eins á öllum stöðvum, frekar en tapa niður sérkennum Ríkisútvarpsins og þá einkum Gufunnar. Ef allir poppfræðingarnir halda sínum skerf, en morgunleikfimin þarf að fara út, þá eru áherslur stofnunarinnar taktlausar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.12.2008 kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.11.2008 | 00:28
Steingrímur Obama
Var orðinn velviljaður hugmyndinni um kosningar í vor. Það væri einmitt leið fólksins til að endurmeta hverjum væri best treystandi til að sjá um endurreisnarstarfið. Eftir framgöngu VG í þinginu í dag þá er ég algjörlega orðinn mótfallinn því að kjósa í bili.
Steingrímur talar um að "nýta reiðina". Þeir notuðu hana þó einkum til að fá útrás á húsmunum. Steingrímur lýsti þörfinni á að gefa þjóðinni von líkt og gerðist með kjöri Obama í Bandaríkjunum. En stef hins verðandi forseta var að vekja mannúð og tiltrú á breytingum.
Forystumenn VG virðast gera út á óttann og reiðina án vonar og bjartsýni. Eigum við bara val milli bölmóðs og þess að hardera veturinn af? Þarna er svigrúm Samfylkingarinnar og hún verður að vera virk í hinni hugmyndafræðilegu grósku sem liggur í loftinu. Miðla, hlusta og taka tillit.
![]() |
Þetta er þjóðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
24.11.2008 | 02:08
Ingibjörg og Evrópa
Formaður Samfylkingar ætlar ekki að nýta gott fylgi flokksins í skoðanakönunum með því að rjúfa stjórn og boða til kosninga. Eitt af stærri málunum sem að hún vill sjá að ríkisstjórninni auðnist að ljúka er að koma af stað aðildarviðræðum við ESB. Miklar líkur eru á að Þorgerði Katrínu hafi tekist í janúar að ná fram stefnubreytingu í Sjálfstæðisflokknum varðandi afstöðu til fullrar þátttöku í samvinnu Evrópuþjóða. Þar er VG eini flokkurinn sem þumbast gegn vilja flokksfélaga.
Mjög mikilvægt er að eiga samvinnu við aðrar norðurlandaþjóðir um þennan málaflokk. Ísland, Noregur, Danmörk og Svíþjóð eiga hiklaust að sigla upp að hlið Finnlands með því að vera öll fullgildir aðilar að sambandinu og með evru sem gjaldmiðil. Sameinuð geta Norðurlöndin verið álíka sterk eining og fjölmennari þjóðirnar sunnar í álfunni. Það verður ef til vill sjálfstæðisbarátta framtíðarinnar að tryggja þessum þjóðum hagstætt vægi í sameinaðri Evrópu.
Við feðgar tókum upp evruna á Austurvelli á laugardaginn.
![]() |
Ræði aðild Noregs að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
22.11.2008 | 19:13
Foreldravakt við Alþingishúsið!
Allar aðgerðir lögreglu geta magnað mótmælin. Lögreglan þarf því að vinna af yfirvegun og hafa fullgildar lagaheimildir. Jafnframt þarf að vera ljóst að um skemmdir eða afbrot hafi verið að ræða. Veit ekki hvort að það er ólöglegt að hengja Bónusfána á Alþingishúsið.
Var á fundinum á Austurvelli í dag. Mikill mannfjöldi saman kominn. Rölti í áttina að Alþingishúsinu þar sem ég hafði séð rúllur af klósettpappír fljúga. Það var furðuleg sýn sem blasti við. Börn á aldrinum 8-12 ára að grýta Alþingishúsið með ávöxtum og blöðrum með málningu.
Enginn gerði neitt til að stöðva þessa krakka. Um níu ára strákur kastaði stórum steini í aðaldyrnar. Ljósmyndarar voru allt í kring. Farið var með skilti að húsinu og einn ljósmyndari setti eitt þeirra undir hurðarhúninn til að búa til áhrifaríkt móment. Við þurfum að hafa kröfurnar um breytingar skýrar en virkja ekki krafta sjálfseyðingar.
Jón Geir Þórisson stóð ásamt öðrum lögreglumanni fyrir utan Dómkirkjuna og ég spurði hann afhverju þeir reyndu ekki að fá krakkana til að hætta þessu. Hann sagði; "þá yrði nú allt vitlaust, foreldrar verða að bera ábyrgðina á þeim".
Ég vona að það sé ekki til foreldri í landinu sem að verður stolt yfir því að sjá mynd af barninu sínu að henda málningarblöðru í Alþingishúsið.
![]() |
Mótmæli við lögreglustöðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.11.2008 kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
21.11.2008 | 23:49
Helgarlagið Lambada
Ég man að árið 1989 kom sveifluslagarinn Lambada og þá var maður með tilraunir að ná hinni suðrænu sveiflu. Eitthvað vorum við sveitapiltarnir í vandræðum með þetta allt saman. Man að sumir festust í þeirri vitneskju að þeir ættu að hafa hægra hné á milli fóta dömunnar. Þjálfun í þúfnagöngulagi skilaði sér ekki alltaf nægjanlega vel sem fínstilltar og þokkafullar hreyfingar.
Lambada er dans sem kemur frá Brasilíu og er skyldur merengue með marserandi tvítakti, en þróast síðar í fjórtakt. Dansað er til sitt hvorrar hliðar með sveiflum og snúningum, en ekki fram og til baka. Það var franskur athafnamaður Oliver Lamotte sem markaðsetti hið fræga lag Lambada og stofnaði hljómsveitina Kaoma.
Dansinn naut gífurlegra vinsælda og breiddist út um allan heim og sló algjörlega í gegn í Japan. Tíska og dans fylgdust að, stutt pilsi og víðar buxur. Glæsilegir höfuðsnúningar dömunnar ásamt öðru skrauti. Tengsl hans við kynþokka og kyntjáningu hafa verið dregin fram bæði í kvikmyndunum Lambada og Forbidden dance.
21.11.2008 | 12:44
Endurnýjun umboðs
Meiri ólga er í þjóðfélaginu en gerst hefur frá upphafi lýðveldistímans. Fátt bendir til annars en að fjöldagjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja muni ganga í gegn á næstu tveimur árum. Í raun er ekki hægt að kenna neinum um orsakir vandans frekar en öðrum. Þó er hlutur Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks stærstur í því að innleiða kvótakerfi og allskyns einkavæðingu sem að urðu helstu stoðir græðgisvæðingarinnar.
Þessu þríeyki sem fer fram með tillögu um vantraust er ekki frekar treystandi en öðrum. Þau þurfa líkt og aðrir að gangast undir dóm kjósenda. Fá endurnýjað umboð. Mikilvægt er að ríkisstjórnin ljúki helstu þáttum í aðgerðum gegn efnahagsvandanum, en stefna að kosningum um mitt næsta ár. Það er mikilvægt að fá pólitískt mat á það hvaða áherslur þjóðin vill hafa í því uppbyggingarstarfi sem framundan er næstu árin.
![]() |
Vantrauststillaga komin fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.11.2008 | 12:50
Hefði átt að hlusta á Davíð
Mikið er rætt um "ábyrgðarleysi" Davíðs Oddssonar í fjölmiðlum. Skondin er sú tilvitnun sem að er höfð eftir Kjartani Gunnarssyni í dag þ.s. hann segir að hann "hefði betur hlustað á Davíð" en þó að bankaráðsmaðurinn fyrrverandi sé innvígður og innmúraður fylgdarsveinn forsætisráðherrans fyrrverandi þá vill hann ekki gangast við því að vera kallaður "óreiðumaður".
Viðhorf eins annars álitsgjafa, Steingríms J Sigfússonar voru einnig brosleg. Hann segir óhikað "ábyrgðin liggur hjá Björgvin G", að þetta hafi verið "athyglisverð" og "málefnaleg" ræða. Hann virðist vera eini aðilinn fyrir utan Kjartan Gunnarsson sem gerir ekki athugasemdir við aðgerðaleysi Seðlabanka eða að pólitískur vígamaður sé þar í forystu.
Megintónn í viðbrögðum flestra er að engar tillögur að aðgerðum eða raunverulegar aðgerðir komu frá Seðlabankanum. Hann gerði ekkert til að tryggja bindiskyldu innlánsstofnana, setja reglur um lausafjárstöðu, tryggja gjaldeyrisjöfnuð eða að nýta heimildir sem dugað hefðu til að koma IceSave í dótturfélag.
Undarlegt er af Steingími að setjast á bekk með Kjartani Gunnarssyni og Hannesi Hólmsteini í blindri varðstöðu um Foringjann. En allt getur gerst í pólitík hjá þeim sem vilja fiska í gruggugu vatni. Held að það sé gott markmið að fá sem fyrst erlenda aðila til að gera úttekt á því hvað brást og láta síðan réttu aðilana bera ábyrgð.
Á meðan getur Steingrímur unnið að afnámi eftirlaunafrumvarpsins og kvótakerfisins, sem að eru tvö alvarlegustu tákn spillingar í landinu og hann veitti sinn stuðning.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
18.11.2008 | 23:56
Er möguleiki á frystingu?
Lausnarorð síðustu viku var að fá að frysta lán í t.d. eitt ár. Þetta hljómaði allt saman vel. Nú koma vitringar fram og segja að þetta sé ekki algott því að maður þurfi að borga síðar og jafnvel þá enn hærri upphæð með vöxtum og vaxtavöxtum.
Þetta er allt orðið svo margslungið og langdregið að ég er farin að spá í hvort við þurfum ekki bara að fara til USA í frystingu. Þar eru víst fyrirtæki sem sérhæfa sig í slíkri þjónustu. Síðan er hægt að biðja um uppvakningu þegar það er komin betri tíð með blóm í haga.