1.12.2007 | 10:48
Þátttaka almennings í stefnumótun
Háskóli Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Landsbankinn undirrituðu í gær yfirlýsingu um samstarf og stuðning við þróunar- og rannsóknarverkefni Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála um íbúalýðræði og félagsauð. Markmið verkefnisins er að leggja grunn að aukinni lýðræðislegri þátttöku með vandaðri aðferðafræði sem byggist á rannsóknum og umræðu.
Þessu ber að fagna af heilum hug. Varmársamtökin hafa beitt sér fyrir aðkomu almennings að skipulagsáætlunum í Mosfellsbæ. Reynslan hefur sýnt að bæjarstjórn Mosfellsbæjar á mjög langt í land með að tileinka sér nútíma vinnubrögð í anda opinnar umræðu og íbúalýðræðis. Þar hefur ríkt verktakalýðræði þar sem afskiptum íbúa hefur ýmist verið mætt með hroka eða skemmdarstarfsemi.
Sjálfstæðisflokkur í bæjarfélaginu virðist telja lokaðan klúbb innvígðra réttborna til valda en VG telja sig hafna yfir þátttöku í almennri umræðu. Mæta henni sitt á hvað með þögn eða bulli, sem er ætlað að spilla eðli hennar. Nú liggja fyrir stór viðfangsefni í bænum við þróun miðbæjarskipulags og brýnt að bæjarfulltrúar skynji ábyrgð sína í að leiða opna og heilbrigða umræðu. Hlusta á og bera virðingu fyrir væntingum almennings.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.12.2007 kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 00:29
Blóm vikunnar Ljónslappi

Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.12.2007 kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2007 | 13:25
Landsprófið
Hitti nýlega á mann og tókum við spjall saman um ýmislegt. Meðal annars menntun og fyrri störf. Hann hafði hætt allri skólagöngu á sínum tíma, af því að það vantaði einhverjar kommur upp á að hann næði Landsprófi. En það var ákveðin forsenda fyrir frekari skólagöngu allt til ársins 1976.
Viðhorf til framhaldsmenntunar breyttust síðan á skömmum tíma. Flestum var ætlað að fara veg í átt að stúdentsprófi. Ráðgjöf og aðstoð virkjuð til að hjálpa helst öllum yfir lækinn. Þykir ekki tiltökumál þó að nemendur fari 2-3 sinnum í sama áfangann til að ná viðunandi einkunn.
Þó að vissulega sé margt jákvætt við aðgengi unga fólksins í dag að menntunarmöguleikum, þá má ekki gera framhaldsskólana að geymslustöðum fyrir fólk sem veit ekki hvað það vill. Óviðunandi hátt hlutfall nemenda í framhaldsskólum er ekki tilbúið að axla ábyrgð á eðlilegri námsframvindu.
Metnaðarlaus og stefnulítill flækingur um fjölbrautir skólana skilar oft lélegri uppskeru. Á ráðgjöfin ekki oftar að ganga út á hvatningu til leitar að viðfangsefni þar sem einstaklingurinn blómstrar af áhuga, frekar en að draga alla yfir lækinn í átt að stúdentsprófi?
Á endanum eru það ekki prófin sem telja heldur að vera sáttur við hvernig maður hafur þróað hæfileika sína og hvort viðfangsefnin eru spennandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.11.2007 kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2007 | 01:19
VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR -Umræða-
-stjórnsýslu
-afmörkun
-gestastofur
-byggðaþróun
-nátturuvernd
Mér finnst -
http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/370451/
http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/366489/
http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/364209/
http://www.gbo.blog.is./blog/gbo/entry/367278/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2007 | 00:20
Blóm vikunnar - Bláklukka

Við veginn Blóðrauð dvaldi hún á vegi einum ég sat þar og hlustaði á vind |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.12.2007 kl. 02:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2007 | 22:16
Gönguferðir STAFAFELLI sumarið 2008
Strax fyrir áramót eru gönguhópar farnir að velta fyrir sér ferðum á komandi sumri. Ég fór til Færeyja í haust á VestNorden og kynnti Stafafell í Lóni sem útivistar- og verndarsvæði (Park of recreation and conservation). Svæðið vakti athygli margra sem skipuleggja ferðir til Íslands, en þó má vænta þess að það þurfi að hamra járnið og fylgja kynningu eftir á komandi ferðakaupstefnum. Þó er ljóst að ferðaskrifstofur í Kaupmannahöfn munu selja í gönguferðir tengt beinu flugi til Egilsstaða næsta sumar. En komið er þangað vikulega seinni part laugardags með Iceland Express.
Línur eru því nokkuð að skírast og verður boðið upp á fjórar fimm daga gönguferðir næsta sumar. Ferðirnar eru tvenns konar. Tilhögun annarar er að ferðaópurinn safnast saman á Hallormsstað seinni hluta dags. Síðan ekur rúta hópnum meðfram Snæfelli, yfir brú hjá Eyjabakkafossi og eftir nýjum vegi að Sauðárvatni. Þar fer hópurinn inn á hina fornu þjóðleið sem víða er vörðuð yfir og niður í Lón. Gengið er síðan milli skála og náttúruperlur Stafafells skoðaðar á leið til byggðar. Í þessari göngu næst einstaklega fagurt og fjölbreytilegt þversnið af íslenskri náttúru.
Hin útfærslan er að hópurinn hittist að morgni dags við Stafafellskirkju og leggur þaðan af stað til fjalla og gengur í nýjan skála við Eskifell. Farangur fluttur með bíl og gist þar tvær nætur og gengið út frá skála. Síðan er gengið inn með Jökulsárgljúfri í skála við Kollumúla. Farangur fluttur þangað og gist þar tvær nætur og gengið út frá skála. Á fimmta degi er hópnum ekið frá Illakambi til byggða yfir Skyndidalsá. Þessi ferð er miðuð á göngur út frá skálum og trúss á farangri, ásamt því að njóta mikillar náttúrufegurðar og merkilegrar sögu Stafafells í Lóni.
Þetta eru endurnærandi ævintýraferðir sem ég hef verið að þróa sem skipuleggjandi og leiðsögumaður. Nú þegar eru tveir hópar Íslendinga búnir að sýna áhuga og jafnframt er ég í viðræðum við stéttarfélag um gönguferðir sem hluta af orlofsmöguleikum. Það er án efa kærkomið hjá mörgum að fá tilbúin slíkan pakka með göngu og dvöl í skálum. Ekki síður en að vera úthlutað sumarhúsi og eiga þá eftir að skipuleggja hvað á að gera á svæðinu.
Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim ....
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2007 | 23:27
Hvernig verndarsvæði?
Ríkið hefur þá stefnu að kaupa ekkert land vegna Vatnajökulsþjóðgarðs, en jafnframt að hafa landeigendur hvergi með í ráðum við undirbúninginn. Þeir eiga engan fulltrúa í stjórn eða svæðisráðum. Þarna er ósamræmi sem ég held að geti leitt til þess að keisarinn verði ekki í neinum fötum. Landeigendur muni almennt ekki ganga að samningum við ríkið á þessum forsendum og það beint í kjölfarið á ruddalegri framgöngu ríkisins í þjóðlendumálum. Það er ekki nóg að segja við landeigendur að þeir muni græða svo mikið á öllum þeim fjölda ferðamanna sem eigi eftir að ferðast um þeirra land, þegar það er komið með þjóðgarðsstimpil.
Aðferðafræðin er sú að fjöldi nefnda og ráða hefur verið á góðu kaupi við að gera plön um eigur annarra. Síðan eru dregnar línur yfir stóran hluta landsins og tiltekið að þær verði mörk þjóðgarðsins með fyrirvara um samþykki landeigenda. Á stundum dettur manni í hug hvort að það sé ekki best að lýsa Ísland allt sem þjóðgarð. Þá næðist klárlega eitt af því sem virðist meginmarkmið, að búa til stærsta þjóðgarð í Evrópu og sem trúlega er enn betra, að Ísland gæti orðið stærsti þjóðgarður í heimi. Það ætti að vera mögulegt í ljósi þess hvernig hugmyndavinnan hefur þróast.
Áhersla á landfræðilegar og sögulegar heildir virðist ekki skipta lengur máli og uppbygging þjónustu er ekki í nánum tengslum við útivist eða náttúruvernd. Áherslur hafa færst yfir á að þjóðgarðurinn lúti hinu manngerða umhverfi. Tryggja sjávarútvegsbæ atvinnu og að hleypa álrisa að sem aðalstyrktaraðila. Ekkki virðist lengur þörf á að fylgja leiðbeiningum sérfræðinga um hvaða svæði hafi mest náttúruverndargildi, heldur er þetta mál nú sett fram eins og að hér sé um samfélagsverkefni að ræða sem muni renna traustari stoðum undir búsetu fólks. Tryggja mikla aukningu í fjölda ferðamanna til lands og svæðis.
Það er óþægilegt að hafa svo blendnar tilfinningar í þessu máli. Hef í fjölda ára farið land Stafafells sem fjallaleiðsögumaður og líffræðingur. Þar liggja mínar rætur en óháð því veit ég að svæðið er einstakt og hef unnið að uppbyggingu þess sem útivistarsvæðis. Eru útfærslur einkareksturs svarið? Er hugsanlegt að leita eftir stórum fjárfestum um stuðning. Það ætti ekki að vera stórmál fyrir t.d. einhvern af stærri bönkum landsins að taka slíkt útivistarsvæði í fóstur. Síðastliðið vor voru lögð drög að stofnun hollvinasamtaka Stafafells í Lóni (ViSt). Til að tryggja rétta blöndu af uppbyggingu og verndun er gott að byggja það á samvinnu við fólk sem að ber hlýjan hug og velvilja til svæðisins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.12.2007 kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2007 | 12:51
STAFAFELL; Litir og andstæður
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.11.2007 kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.11.2007 | 14:34
Væntingar til náttúrunnar
Í viðtölum við sveitarstjórnarmenn á Höfn kemur fram að þeir hafi miklar væntingar til stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs. Oftar en ekki eru þessar vonir bundnar við aukna atvinnu á Höfn, að fá gestastofu staðsetta hjá bænum, fá framkvæmdastjóra væntanlegs þjóðgarðs staðsettan í bænum og jafnvel hefur heyrst áhugi á að fá náttúruverndarhluta Umhverfisstofnunar í heild staðsettan þar eystra.
Finnst að inn í þessa umræðu vanti þankagang um hvar séu mestir möguleikar til útivistar, hvar sé hægt að vera í lengstum og mestum tengslum við náttúru án manngerðra áhrifa og ekki síst hverjar eru væntingar ferðamanna sem koma til Íslands. Margar kannanir hafa sýnt að yfir 90% erlendra sem leggja á sig ferð yfir Atlantsála gefa þá ástæðu að þeir vilji upplifa tengsl við ósnortna náttúru.
Tel að framan af hafi verið skilningur á því að slík viðhorf ættu að vera ráðandi um Vatnajökulsþjóðgarð. Að byggja upp innviði og þjónustunet í tengslum við ósnortna náttúru. Ekki í þéttbýli og með vegagerð sem spillir verulega upplifun og gæðum náttúrunnar. Persónulega finnst mér það einmitt sterkasta náttúrustemmingin á Höfn að horfa í vestur frá nágrenni heilsugæslunnar. Græni liturinn, fjörðurinn, hólar og eyjar, blámi fjallana og hvítar jökultungur á milli. Þessu má ekki spilla.
Hef ekki trú á að þessar útfærslur séu í samræmi við hugmyndir Hjörleifs Guttormssonar, sem fyrstur lagði drög að þessari vegferð, með þingályktunartillögu á Alþingi. Hef ekki trú á að þetta sé í samræmi við hugmyndir Gísla Gíslasonar landslagsarkitekts og Landmótunar sem unnu að miðhálendisskipulagi. Hef ekki trú á að þessi þróun sé í samræmi við væntingar innlendra og erlendra sem vilja njóta útivistar og tengsla við náttúruna.
Það er ekki bara að Stafafell í Lóni hafi meira bakland og fjölbreytilegra en þekkist annars staðar umhverfis Vatnajökul, heldur hefur verið sagt að í Lóni eigi fólk að upplifa inngang í þjóðgarðinn. Það hefði því verið glæsileg pæling að koma inn í vandaða gestastofu þar og yfirgefa sýsluna eftir að hafa dvalið í Skaftafelli. Gott hefði verið ef hægt hefði verið að sameinast um að þetta væru tveir meginpunktar þjóðgarðsins í sýslunni.
Höfn mun að sjálfsögðu njóta þess ef öflug þjónustumiðstöð, gestastofa rísi á Stafafelli í Lóni og að hinir miklu möguleikar til náttúreutengdrar uppbyggingar eru nýttir. Þar eru yfir hundrað sumarbústaðir og verið skipulagt víðattumikið útivistarsvæði. Spurningin snýst einfaldlega um að uppfylla væntingar útivistarfólks og ferðamanna um tengsl við sérstæða, fjölbeytta og ósnortna náttúru. Það hélt ég að væri megininntak í uppbyggingu þjóðgarða. En útfærslan varð reiptog embættismanna um atvinnuhagsmuni. Síðan á Alcoa að verða aðalstyrktaraðili þjóðgarðsins!
Vitið þér enn eða hvað?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.11.2007 kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 23:52
Blóm vikunnar

Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.11.2007 kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)