Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.1.2009 | 11:13
Ofbeldi og lýðræði
Við stöndum frammi fyrir alvarlegum afleiðingum þess að Íslendingar kunnu ekki að fara með aukið frelsi í fjármálum. Nú erum við komin á þann punkt að við virðumst ekki geta komið okkur saman um hvað sé lýðræði. Það virðast vera tveir kostir í stöðunni að styðja það að víkingasveitin verði efld og draumar Björns Bjarnasonar verði að veruleika eða öfl reiðinnar undir handleiðslu Ögmundar Jónassonar innleiði allsherjar ringulreið í landinu.
Lýðræðið byggist á því að við finnum einhvern samhug og leiðir. Hverjar sem þær eru. Það hefur vissulega engin rétt á því að segjast tala í umboði þjóðarinnar. Nauðsynlegt endurmat og uppstokkun á lýðræðislegum leikreglum mun ekki eiga sér stað undir þessum ofbeldisfullu formerkjum á báða bóga. Slík vinna er gerð af fólki með góða og djúpa þindaröndun en ekki af fylkingum ofbeldis, hvort sem það felst í beitingu piparúða eða berja ræðupúlt í þingsölum.
![]() |
Óslóartréð borið á bálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.1.2009 | 08:55
Innsetningaræði
Eftir að einn óvinsælasti forseti í sögu Bandaríkjanna lætur af völdum tekur við sá sem hvað mestar væntingar hafa verið bundnar við. Þó sagt sé að slíkum vonum um miklar breytingar muni vafalítið fylgja vonbrigði, þar sem erfitt verður að uppfylla þær allar, þá er þetta mikill gleðidagur. Demókratar hafa nú forseta og meirihluta í báðum deildum þingsins.
Mikill fólksfjöldi hefur safnast saman í Washington til að vera við athöfnina og samhliða hefur verið sett upp gríðarleg öryggisgæsla. Lokað aðliggjandi götum og öryggisverðir verða víða á röltinu. Passað er upp á nýja forsetabílinn sem að er með töluna 44 á númeraplötunni. Vegferð Obama hefur verið ævintýri líkust og megi völd hans nýtast til farsældar fyrir heiminn allan.
![]() |
Eftirvænting í Washington |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2009 | 10:08
Séreignasparnaðurinn
Jóhanna Sigurðardóttir kynnti fyrir rúmum mánuði að einn möguleiki sem væri verið að skoða væri heimild til nýtingar séreignasparnaðar. Ég var svo ánægður með þetta að ég fór á Austurvöll með spjald sem stóð á; "Áfram Jóhanna, Áfram Jóhanna!". Fannst hún vera að hugsa í lausnum. Hún benti réttilega á að möguleikar einstaklinga til að nýta þessa fjármuni sína gætu riðið baggamun fyrir fjölda heimila í landinu.
Síðan eru liðnir margir dagar og vikur. Hringdi fyrir tveimur vikum í félagsmálaráðuneyti og spurði um málið. Svarið var að þetta væri í nefnd Ingibjargar Sólrúnar og Þorgerðar Katrínar. Enginn vissi innan hvaða tímaramma niðurstaða ætti að liggja fyrir. Hringdi aftur nú í morgun til að kanna málið í sama ráðuneyti. Þeir vísuðu þá til fjármálaráðuneytis. Þar fékk ég þau svör að pólitísk ákvörðun lægi ekki fyrir en málið væri í nefnd Steinunnar Valdísar og Ólafar Nordal.
Þetta er bara lítið dæmi um hvernig tómarúm og aðgerðaleysi virðist ráðandi hjá stjórnvöldum. Skortur á að upplýsa og hjálpa fólki til að gera raunhæfar áætlanir. Að fóta sig í þessum ólgusjó. Það er ekki nóg fyrir einstaklinga og heimili að heyra að "málin séu í nefnd". Nú þarf aðgerðir.
![]() |
Heimili að verða gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2009 | 21:42
Helsti kosturinn að hafa aldrei verið Framsóknarmaður
Nýr formaður Framsóknarflokksins var á síðasta ári skipaður í nefnd á vegum borgarinnar af Framsóknarflokknum. Þegar hann var spurður um hvort að hann væri í flokknum þá undirstrikaði hann það með allnokkrum þunga að hann væri ekki flokksmaður heldur skipaður út á fagþekkingu sína í byggingar- og skipulagsmálum.
Hann gekk síðan í flokkinn til að geta boðið sig fram til formanns Framsóknar sem að hann afneitaði fyrir skömmu. Mér finnst það nokkuð bratt, þó ég sé ekki hlynntur neinu flokkseigendavaldi. Það er líka athyglisvert að flokksmenn vilji helst þann til forystu sem að er algjörlega hreinn og óspjallaður af verkum flokksins.
Kjósendur geta nú undirbúið sig að fá gjafir og hlunnindi frá nýrri Framsókn ef þeir merki við B. Þeir verði til í að gera allt fyrir heimilin ef kjósendur merki við B. Verði miðjuflokkur sem er að mestu án inntaks en viljugur til valda.
![]() |
Eygló Harðardóttir ritari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.1.2009 | 12:49
Atvinnuleysi í Þingeyjarsýslum
Fréttir eru af helmings aukningu atvinnuleysis í Þingeyjarsýslum. Steingrímur J Sigfússon veit að ekki er nóg að bjóða kjósendum sínum eingöngu upp á focking fock ríkisstjórnarandúð. Þar binda heimamenn vonir við uppbyggingu álvers á Bakka.
Í gær heyrði ég í formanni VG lýsa yfir þeirri skoðun sinni að mun skynsamlegra sé að stefna að uppbyggingu kísilverksmiðju. Ekki sé æskilegt að setja öll eggin í sömu körfuna og að verksmiðjan sem hann nefndi gæti skapað störf fyrir 300 manns.
Það var svo nýr og sannur tónn í þessari orðræðu. Velta upp möguleikum til að leysa vandann í stað þess að láta pólitíska stefnu sína snúast um fuss og svei vegna aðgerða eða aðgerðaleysis stjórnvalda.
Ég var fyrir nokkrum árum í tengslum við fulltrúa The European March Society sem vildu koma upp geimrannsóknarstöð í nágrenni Mývatns. Hin rauða og berangurslega stemming Kröflusvæðis átti að minna á yfirborðið á Mars.
Meiri og fleiri áherslur á lausnir!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.1.2009 | 12:36
Hver fær viðbótarkvóta?
![]() |
Þorskkvóti aukinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.1.2009 | 22:01
Bestu óskir
Er búin að vera að setja mig í stellingar með að skrifa færslu um nauðsyn þess að efla og opna alla umræðu innan Samfylkingarinnar. Að flokkur og félagsmenn einbeiti sér að fullri þátttöku í hinu samfélagslega endurmati.
Í stað þess að setja orkuna meira í þann farveg þá sendi ég bestu óskir til Ingibjargar í hennar vinnu framundan við að ná góðri heilsu og starfsorku. Það hlýtur að vera erfitt að losa hugann frá þeirri ólgu sem er í landinu.
Virðing fyrir heilsunni og lífinu verður að ganga þvert á flokkslínur.
![]() |
Ingibjörg Sólrún lengur frá en áður var talið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.1.2009 | 00:28
Hvar ert þú "ósýnilega hönd" og "dauða fjármagn"?
Eitt af því skondnara sem hægt er að hlusta á í ljósi undangenginna mánaða og bankahrunsins er að hlusta á ríflega ársgamalt viðtal Íslands i dag við Hannes Hólmstein Gissurarson. Nú þarf heldur betur að fá aðstoð ósýnilegra handa og finna dautt fjármagn til að virkja.
Hann fór víða um heim og flutti kotroskinn fyrirlestra um þetta efni og með sérstakri áherslu á kvótakerfið. Í viðtalinu telur hann gjafakvótann sem upphaf góðæris í landinu, en flestir eru nú sannfærðir um að þar liggi upphaf meinsemdarinnar sem varð frækornið að græðgisvæðingunni í landinu.
Hann talar á þeim nótum að næstu skref einkavæðingar séu orkugeirinn og auðlindirnar. -Sjá ekki allir hversu mikið Dabbon og Hannsi voru á bremsunni og reyndu að vara þjóðina og útrásargengið við hvert stefndi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.1.2009 | 01:08
Trúboðar hræðslunnar
Það er fróðlegt að sjá fréttir af því að norskir sendimenn óttans eru komnir hingað til lands. Það sem drífur þá af stað til ferðar er hræðslan við að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Mér líst hinsvegar mjög vel á hugmyndir Björgvins G Sigurðssonar um nána samvinnu Norðurlandana um Evrópumál. Það er mjög æskilegt að frændþjóðirnar fylgist að og myndi einingu, sem hefur álíka vægi og stórþjóðirnar í ákvarðanatöku.
Þessu hef ég einmitt talað fyrir. Við erum með lagskiptingu valds og þurfum að hafa möguleika til áhrifa innan hverrar einingar. Mestu völdin höfum við í okkar einkalífi, síðan sveitarfélagi og landi. Ísland hafi síðan stefnumótandi áhrif innan Norðurlandaráðs sem mótar sameiginlega stefnu um Evrópumál. Síðan þarf að gera Sameinuðu þjóðirnar mun áhrifaríkari í aðgerðum sem snerta heiminn allan og ógnanir mannkyns.
Allt þetta dregur úr ótta og eykur skilvirkni í stjórnmálum heimsins. Við aukum sjálfstæði okkar sem þjóðar og tækifæri sem einstaklinga með því að vera virk á öllum stöðum í lagskiptingu valdsins.
![]() |
Sagðir beita sér gegn ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
9.1.2009 | 13:33
Góða spillingin kemur frá Valhöll
Hannes Hólmsteinn er bara snillingur. Hann skrifar grein í Fréttablaðið í dag sem heitir Spilling í Brussel. Hann hefur verið lítt áberandi síðustu vikur enda hugmyndakerfi hans hrunið. Hann reynir því að slá á nýja strengi og bendir á þörfina á siðbót innan Evrópusambandsins.
Í Evrópu er það svo til óskráð regla að framámenn í stjórnmálum segja af sér ef þeir hafa gert eitthvað sem rýrir traust almennings á tiltekinni persónu. Nú hefur umboðsmaður gert alvarlegar athugasemdir við stöðuveitingar innvígðra.
Spilltu sporin liggja víða í kringum kjarna Davíðs Oddssonar sem Hannes Hólmsteinn tilheyrir og ver í blindni. Það eru ekki bara stöðuveitingarnar á son, frændur og einkavini. Nú eru merki um alvarlega spillingu innan þessa kjarna vegna innherjaupplýsinga í máli Baldurs Guðlaugssonar.
Svo virðist sem að Róbert Wessmann hafi ekki verið í réttu klíkunni, því hann hafði ekki upplýsingar sem voru aðgengilegar ráðuneytisstjóranum, innvígðum og innmúruðum. Hannes er í glerhúsi og á ekki að kasta steinum. Hvað þá að halda að þeir drífi alla leið yfir til meginlandsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)