Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.5.2008 | 21:21
Skriðþungi ESB lestarinnar
Hef haldið því fram að fólk og fyrirtæki muni taka frumkvæðið af stjórnmálamönnum í mótun næstu skrefa í Evrópumálum. Í dag birtast niðursöður úr skoðanakönnun meðal félagsmanna Sambands íslenskra stórkaupmanna í Fréttablaðinu.
Nálægt 70 prósent stórkaupmanna eru hlynntir því að taka upp evru sem gjaldmiðil í stað krónunnar. Tæplega 66 prósent félagsmanna telur að aðild að ESB yrði hagstæð fyrir fyrirtæki sitt. Rúmlega 65 prósent eru hlynnt aðildarviðræðum og tæp 57 prósent sögðust hlynnt aðild.
"Það má segja að þessi niðurstaða sé kall til stjórnvalda og við vonum að þeir skjóti ekki skollaeyrum við." segir Knútur Sigmarsson framkvæmdastjóri stórkaupmanna.
"Þetta er alveg í samræmi við það sem ég hef skynjað frá ýmsum fyrirtækjum sem eru ekki í FÍS. En þetta er þó nokkur breyting því innan þessa hóps var stuðningur við ESB frekar rýr fyrir nokkrum árum." segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
"Ég held að beggja megin séu menn búnir að fá sig algjörlega fullsadda af gengisfellingu og þessum háu vöxtum því það er verið að fórna svo miklu fyrir ekki neitt með því að viðhalda þessari peningastefnu sem við nú búum við," segir Vilhjálmur.
Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur stefnu sem tónar við vilja fólks og fyrirtækja. Framsókn reynir að stýra framhjá klofningi í fámennu liði sínu. Sjálfstæðisflokkurinn virðist halda að það sé nægjanlegt að Geir Harde og Björn Bjarnason gefi yfirlýsingar um málið. Vinstri grænir og Frjálslyndir virðast utan og ofan við alla rauntengda umræðu um þennan málaflokk.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2008 kl. 00:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2008 | 16:36
Fegurst fjalla
Vestra-Horn með sínu þríklofna Brunnhorni finnst mér fegurst allra fjalla. Sagt er að hverjum þyki sinn fugl fagur og óneitanlega er ég ekki hlutlaus að hafa þetta sérstæða fjall sem útvörð fjallahrings í uppvexti og áralangri sumardvöl að Stafafelli í Lóni.
Fjallið er úr djúpbergi, gabbró og granófýr, sem hefur myndast undir jökli fyrir milljónum ára. Nú er það reisulegt fjall sem stendur upp úr landslaginu og er ásamt öðrum fjöllum þarna tákn um hið gríðarlega jarðrof vatns og vinda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.5.2008 kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.5.2008 | 12:04
Lokuð Heimssýn
Heimssýnar bloggið hefur einungis birt einsleitar áróðursgreinar, en nú hefur verið stigið eitt skref til viðbótar til að vinna gegn lýðræðislegri og opinni umræðu. Síðan hefur nú verið lokuð fyrir athugasemdum og umræðu. Hvað er að óttast? Tilfinnningakreppa þeirra sem eru andsnúnir virkri þátttöku okkar í þeirri grunneiningu heimsþorpsins, sem við tilheyrum -Evrópu- fer vaxandi. Eftir margra ára umræðu í samfélaginu á þjóðinni ekki að vera treystandi til að stíga næstu skref.
Eflum og styrkjum lýðræðisvitund á Íslandi. Þar er verk að vinna til að festa slíkar hefðir inn í menningu okkar. Ákvarðanir og umræða um kúrsinn í Evrópumálum er ekki einkamál þeirra örfáu lokunarsinna, sem vilja hafa mannréttindi af kjósendum vegna sannfæringar um að þeir einir séu réttbornir eða réttkjörnir til að hafa vit fyrir fólkinu í landinu. Það er markmið þeirra í sjálfu sér að gera umræðu um þessi mál langdregna og ómarkvissa til að þreyta og áhugaleysi komi í málið.
Ef lítið er gert úr endurteknum skoðanakönnunum sem sýna vilja þjóðar, þá þarf greinilega að búa til möguleika að skila undirrituðum kjörseðlum. Við þurfum ekki heimild þingmanna til að kjósa um þetta mál. Tiltölulega auðvelt er að skipuleggja slíka kosningu, án aðkomu ríkis og þings. Áhugavert væri að mynda starfshóp um framkvæmd slíks afgerandi frumkvæðis sem ekki er hægt að lítilsvirða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2008 | 12:34
Íhaldið einangrast
Flokksræði ofar þjóðarvilja er útfærsla á stefnu Sjálfstæðisflokksins samkvæmt púlsmælingu í Valhöll í gærkvöldi. Áður hefur formaður Framsóknarflokksins lýst yfir þeirri skoðun að póstkosning meðal félagsmanna væri æskileg leið til að kanna hug þeirra til aðildarviðræðna. Félagsmenn móti stefnuna. Komið hefur fram að 2/3 hluti þjóðarinnar vill hefja aðildarviðræður við ESB og þar er hlutfall flokksmanna í Sjálfstæðisflokknum jafnvel hærra heldur en stuðningsmanna annarra flokka.
Einn öflugasti talsmaður Valhallarlínunnar í flokksræði er Hjörtur J. Guðmundsson sem hefur einstaklega lítið þol fyrir breytileika í skoðunum eða skilning á því að láta lýðræðislegt ferli ákvarða vegferð okkar í Evrópumálum. Setti inn athugasemd hjá honum fyrir nokkru síðan þar sem að hann hafði verið að tengja ESB við myrkur miðalda og í löngum orðum tengt slíka aðild við glatað sjálfstæði og ítrekað að málið væri ekki á dagskrá. "Vissulega eruð þið einangrunarsinnar ef þið standið í vegi fyrir slíku vali. Má ekki undirbúa samning um aðild og leyfa þjóðinni að kjósa? Er frelsið í þínum skilningi fólgið í því að miðaldasérfræðingar og heimsendaspámenn eigi að taka þetta val af fólkinu?"
Eftir þessa athugasemd lokaði hann á að ég gæti gert athugasemdir við skrif hans. Nú í dag er hann að berja járnið og flokksagann. Því fylgir yfirlýsing um einangrun og útskúfun Þorgerðar Katrínar þ.s. hún er með viðsjárverðar hugmyndir um að leyfa þjóðinni að ákveða hvort farið er af stað í aðildarviðræður. Ofurfálkarnir sem ætla sér að hafa vit fyrir þjóð og flokksmönnum einangrast hratt þessa dagana.
![]() |
Á móti þjóðaratkvæðagreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.5.2008 | 19:24
Girðingar og gaddavír, gyðjur og góðmennska
Ár er síðan ég gekk á vit frelsisgyðjunnar og fjarlægði girðingu og gaddavír sem sett hafði verið um skógarlund í Álafosskvosinni. Tilefnið voru framkvæmdir við það sem hét samkvæmt nýirði í skipulagsfræðum "lagnavegur". Eina sem bar gott skynbragð listrænt framlag gjörningsins var María Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og leiklistarfrömuður í Mosfellsbæ til margra ára. Hún hafði fengið mig áratug áður með sem leikara í aukahlutverki við kvikmyndina Maríu, sem var um þýska konu sem flyst til Íslands eftir stríðið. Aðalhlutverk var í höndum Barböru Auer. Mikil dama og fegurðardís, þó hún væri áreiðanlega líka þýskur harðjaxl undir niðri. Samkvæmt handriti átti ég að vera hinn dæmigerði íslenski ruddi sem að ryður þessari þýsku konu um koll á horni Pósthússtrætis og Aðalstrætis.
Þarna var búið að loka fyrir alla umferð fyrir þetta tiltölulega litla atriði, tökuvélarnar á teinum og krönum. Það sem að mér var efst í huga var hversu falleg leikkonan væri og var það gjörsmlega fyrirmunað að lifa mig inn í þetta hlutverk að ég ætti að vera með ruðning og ruddaskap við slíka þokkagyðju, þar sem við kæmum úr sitthvorri áttinni á götuhorninu. Eftir að búið var að taka atriðið í 2-3 skipti þá segir Barbara í skipandi tóni og ber sér á brjóst; "You have to come more into me!". Eftir þessa hvatningu gerðist ég mjög ákveðinn í framgöngu og æddi áfram og lenti beint framan á hana og skammaðist yfir því hvað hún væri að þvælast fyrir. Heyrði svo í framhaldi "yeess!" frá leikkonunni. Stundum er nauðsynlegt að átta sig á því að kringumstæður bjóða ekki upp á huggulegt teboð.
Ég fékk sem sagt hrós frá leiklistardrottningu Mosfellsbæjar fyrir það að vera svona afgerandi með girðingarnar á þessum vordegi fyrir ári síðan, af því að hún vissi að ég gæti stundum verið huglaus gunga fyrir framan upptökuvélarnar. Henni fannst ég hafa tekið framförum. En á plakati með kvikmyndinni Maríu sem er ætíð notað til að kynna kvikmyndina þá er ég einmitt vinstra megin við Barböru Auer, standandi á spjalli við annan mann þar sem Óli blaðasali kallaði ætíð "Dagblaðið - Vísir", "Dagblaðið - Vísir" í mínum fyrstu minningum úr Austurstræti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.5.2008 kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2008 | 00:12
Nýtt í spilunum
Það er ný staða að það sé rætt sem raunhæfur möguleiki að Samfylkingin gæti myndað meirihluta í Reykjavík. Þó enn sé langt í kosningar þá verður það að teljast útilokað miðað við allt það klúður, sundurlyndi og óheilindi sem einkennt hefur Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að hann nái meirihluta í borginni í næstu kosningum.
Það þarf mikið að gerast til þess að Vinstri grænir og Samfylking sigli ekki góðum byr í næstu kosningum. Þar ríkir sá skilningur að þessir tveir flokkar séu samherjar í pólitík undir merkjum jöfnuðar og réttlætis. Þannig er það áhugavert til lengri tíma litið að það verði föst venja að vinstri flokkarnir gangi til samstarfs, líkt og hefur tíðkast á öðrum Norðurlöndum. Þó sitthvor flokkurinn noti ólík krydd við matreiðsluna.
Niðurstöður könnunarinnar er sterk traustsyfirlýsing til Dags B. Eggertssonar. Á sama tíma er hún vantraust á klækjastjórnmál Sjálfstæðisflokksins og sýnir það mat kjósenda að engin þörf sé fyrir eins manns flokka sem selja sig hæstbjóðenda.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2008 | 18:39
Sumar í Mosó
Það er randafluga á sveimi milli bleiku blómanna á kirsuberjatrénu í garðinum. Tréð er um það bil hálfblómgað. Í Washington innsiglar blómgun trjánna sumarkomuna í hugum fólks. Á síðasta ári var tréð í hámarksblóma 12. maí. Miðað er við að 70% blómanna séu útsprungin. Þá hafði þetta merki sumarkomunnar látið ljós sitt skína 5. apríl í höfuðborg Bandaríkjanna. Það ætti að vera búið að gefa út formlega komu sumarsins núna fyrir helgi hér á Mosfellsbæjarhálendinu. Það er sem sagt nokkrum dögum seinna sumarið í ár heldur en í fyrra.
Í maí hef ég verið síðustu fjögur árin með göngur á fellin umhverfis Mosfellsbæ. En áður hafði ég merkt hringleiðir á Helgafell, Reykjafell, Reykjaborg og Úlfarsfell í samvinnu við bæinn og landeigendur. Nú á fimmtudag byrja hinar árlegu göngur á fellin. Byrjunarpunktur hefur verið Álafosskvosin og verður svo enn, þó hún sé í sárum. Lagt er af stað klukkan fimm (17:00). Fyrsta fellið sem farið verður á 15. maí er Helgafell, næsta þriðjudag 20. maí verður farið á Reykjafell, fimmtudaginn 22. maí á Reykjaborg og þriðjudaginn 27. maí verður gengið á Úlfarsfell. Allir eru velkomnir í þessar síðdegisgöngur.
Fellin voru á sínum tíma merkt í litum regnbogans, með rauðum, gulum, grænum og bláum stikum. Merkingin verður endurnýjuð samhliða gönguferðunum. Það er unnið í samvinnu við útivistarhóp Varmársamtakanna. Þar er komin grænn kjarni vaskra meyja og pilta sem vill leggja uppbyggingu útivistarmöguleika í bæjarfélaginu lið. Leiðirnar á fellin eru eitt af því sem gefur Mosfellsbæ sérstöðu og fellin hafa mikla möguleika til að verða aðdráttarafl til útivistar fyrir almenning af höfuðborgarsvæðinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.5.2008 | 03:17
Hefurðu gengið yfir brúna?
Hengibrúin við Eskifell, Stafafelli í Lóni er 95 metrar að lengd og er sennilega lengsta göngubrú landsins lögð í einu hafi. Eins og allir vita þá er fátt mikilvægara í markaðsetningu hér á landi en nota hæstu stig lýsingarorða, hverjir eru stærstir og mestir. Brúin var vígð 2004 en hugmyndina setti ég fram á skipulagsfundi sem haldin var á Hótel Höfn 1993. Með byggingu brúarinnar varð Stafafell að einu samfelldu útivistar- og verndarsvæði.
Upphaflega stóð til að undir brúnni væru þrír stöplar og átti ég nokkra fundi með Einari Hafliðasyni hjá Vegagerðinni. Síðan fór hann að spá í möguleika á byggingu hengibrúar. Í þeim tilgangi var boðað til fundar með Baldvin Einarssyni brúarverkfræðingi. Hann sagði íhugull; "Það er alveg hægt að hanna og byggja hengibrú, en svo er það spurning hvort einhver þorir að ganga yfir hana". Fannst það galli ef svo færi, en Baldvin hannaði þetta flotta mannvirki, sem að er stöðug og góð yfirferðar.
Fjármögnun úr ríkisssjóði til byggingarinnar tryggði Hjörleifur Guttormsson fyrrum ráðherra og þingmaður. Ólga var í sumum Vegagerðarmönnum sem vilja helst ekki leggja út í brúargerð nema að eftir henni rúlli gúmmídekk. Einnig voru sumir að hneykslast á kostnaði og man ég eftir að hitta á smá hóp á fjórum jeppum sem að formæltu slíkri eyðslu í göngufólk. Benti þeim á að það væri afstætt hvað væri dýrt. Brúin hafi kostað álíka mikið og jepparnir fjórir sem þeir komu á til að skoða brúnna.
Ég vona að á þessu sumri og næstu árum verði brúin mikið notuð af göngufólki. Þá þarf engin að vera í vafa um að stefnufesta okkar Hjörleifs í þessu máli hafi verið rétt. Þar átti líka Gísli Gíslason landslagsarkitekt sinn hlut, en hann hafði unnið stefnumótun fyrir jörðina í útivistar og ferðamálum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.5.2008 | 23:42
Esja skal það vera
Fyrir rúmri viku fæddist folald í sveitinni. Um miðjan maí í fyrra var ég með stóðhestsefnið mitt og móðurina á húsi í Víðinesi hér hinum megin við Leirvoginn. Ákvað að leyfa eitt hopp og sjá til hvort merin yrði fylfull.
Formæður og forfeður í tvo ættliði eru vindótt og álótt með grunnlitinn bleikan, móleitan eða rauðan. Folaldið er rauðleitt, en virðist ljósara á tagl og fax. Þannig að ég hef trú á að það sé vindótt.
Þetta er merfolald og hef ég haft fyrir reglu að láta merarnar heita fjögurra stafa nöfnum sem enda á -a t.d. hét amman Elja og móðirin Hæra. Því er við hæfi að þessi sem getin er við rætur fjallsins Esju beri nafn þess.
Helga Davids mágkona á Stafafelli tók myndina, en móðirin er álengdar að éta hey með sinn vindótta faxlubba.
11.5.2008 | 12:45
Aumingja karlarnir
Hún; "Guðmundur í Byrginu fékk þriggja ára dóm!" Hann; "Frábært, það var gott!" Á þennan veg voru samræður vinnufélaga í vikunni. Viku sem var full af ofbeldi og kynlífi. Hrollvekjandi umræða þar sem karlar hafa bæði orðið uppvísir og grunaðir um beitingu valds og styrks til að koma fram vilja sínum. Við fáum nákvæmar lýsingar af allri atburðarás. Hversu hátt var til lofts í kompunni í Austurríki, ferilskrá háskólakennara í Reykjavík, salernisferðum hjá kórstúlkum á Selfossi og kristilegu sáðláti í Grímsnesinu. Hvað eigum við að gera með allar þessar upplýsingar sem menga og eitra, einar og sér? Flestir nota þær til að dæma. Þannig sogumst við með stemmingunni og förum að gleðjast yfir refsingunni líkt og tíðkast í Bandaríkjunum, þegar fólk hópast saman á aftökustað og fagnar þegar tilkynnt er að dauðarefsingu hafi verið fullnægt.
Viðkvæði konu minnar í þessu regni frétta af misbeitingu karla hefur verið; "Ég vorkenni körlum". Vissulega eru hliðarnar á sjúkleikanum sem þarna birtist tvær. Mennirnir eru aumingjar að koma fram með þeim hætti sem þeir hafa gert, en þeim er líka vorkunn að ná ekki að gegna sínum störfum og hlutverkum án þess að kynorka eða kynlífsfíkn þeirra leiði til ævarandi útskúfunar úr samfélaginu. Veitir þessi mikla umræða sem orðið hefur um þessi mál okkur einhvern aukinn skilning á því hvað fær einstaklinga til að ganga fram með dýrslegum hætti á rétt og heilbrigði annara einstaklinga? Í fyrra var frétt af stork eða einhverjum álíka stórum fugli sem var orðinn það ruglaður í kynhegðun sinni að hann kom á hverju vori að tiltekinni bensíndælu og byrjaði þar æxlunardans sinn. Talið var að einhver hljóð í dælunni kæmu honum til. Stóðhesturinn minn reynir að komast upp á alla aðra hesta óháð kyni, aldri, stétt eða stöðu. Maðurinn hefur náskyldan heila og hormón.
Þegar ég var að byrja í sálfræðinámi þá var ég eitt sinn að ræða við móður mína um kenningar Sigmund Freud. Sagði henni að hann væri helst gagnrýndur fyrir að hugmyndir hans gengju út á að lífsfyllling einstaklingsins tengdist að mestu kynlífi. En mamma gamla sló tromp skynseminnar úr hendi mér og sagði; "Er það ekki rétt?". Þetta er allavega einn af veigameiri þáttum lífsins. Náttúran úthlutar þessu hlutverki til karla líkt og stóðhesta að koma frjókornum sínum til kvenkynsins. Það hvernig frumorkan og æxlunin finnur sér farveg er stór hluti af gæfu eða ógæfu fólks. Sumum mistekst að láta hegðun sína falla að siðferðilegum og félagslegum viðmiðum. Umræðan má ekki verða svo þvinguð og einsleit að við förum að tengja kynlíf fyrst og síðast við synd og skömm. Þó samúð okkar og skilningur liggi hjá fórnarlömbunum, þá þurfum við að vita hvers eðlis brenglunin er hjá aumingja körlunum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)