Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
10.6.2008 | 18:03
Hætt við flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar
Iceland express ákvað nýlega að aflýsa fyrirhuguðu vikulegu flugi milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar. Staðsetning höfuðstaðar Austurlands er að mörgu leyti ákjósanleg fyrir alþjóðlegan flugvöll milli Íslands og Evrópu. Það eru því vonbrigði að þetta flug hafi ekki náð að vaxa og dafna.
Margt bendir til að kynning og áform um flug á þessari leið hafi verið framkvæmd af hálfum hug. Erfitt var að fá uppgefið fyrr en seint og um síðir hvort af fluginu yrði. Það er mjög erfitt fyrir ferðaskipuleggjendur að markaðsetja ferðir, ef það er óljóst hvort flogið verður á tiltekinni leið.
![]() |
Iceland Express gefst upp á Egilsstöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2008 | 09:41
Rannsökum tilefni rannsóknar
Umfangsmesta viðskiptaveldi Íslandssögunnar hefur fengið heilbrigðisvottorð sem var reyndar allt of dýru verði keypt. Kostaði milljarðinn. Hvaða stórfyrirtæki stæðist fullkomlega slíka úttekt sem sett væri af stað undir formerkjum opinnar veiðiheimildar? Finnið hvað sem er, leitið að öllum tilefnum í bókhaldi og skattamálum.
Mikil umfjöllun var um innflutning á bílum og að reynt hafi verið að gefa upp lægra verð til að ná fram lækkun á innflutningsgjöldum. Spaugsamur félagi minn sem er í innflutningi sagði að það væri merkilegt ef að Baugsmenn yrðu þeir fyrstu sem samviskusamlega hefðu gefið upp rétt verð í bílainnflutningi.
Nú hefur komið fram krafan um að það verði skoðað hvort tilefnin hafi verið nægjanleg til að fara af stað með slíkum krafti og þunga gegn tilteknu fyrirtæki og stórskaða hagsmuni þess. Það er mjög eðlilegt að fara yfir forsendurnar og ástæður þess að þetta fyrirtæki fékk slíka úttekt en ekki önnur.
Allir vita að upphafið markaðist af persónulegri óvild og einkamálum. Það er auðvitað enn viðkvæmt mál fyrir Sjálfstæðisflokkinn að útfrá tölvupóstum Jónínu Benediktsdóttur kom í ljós að ritstjóri Morgunblaðsins, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og valdamikli leynivinurinn "hjálpuðu" Jóni Gerald Sullenberger af stað við að stíga fyrstu skrefin
8.6.2008 | 23:45
Ekki sæla heldur ofbeldi
Er allur munur á því þegar áhangendur Þjóðverja hrópa ókvæðisorð að Pólverjum og þegar íslenskir foreldrar eru að fara á límingunum á hliðarlínunni og hrópa; "Jarðaðu hann!", "tæklaðu hann!" ? Ef til vill stigsmunur en varla eðlismunur.
En ekki er við mig að sakast, ég var búin að vara ykkur við. Það er kominn tími til að vinna gegn ýmsum neikvæðum hliðum fótboltakúltúrs. Enn og aftur ítreka ég að það er mín skoðun að hann sé algjörlega ósamrýmanlegur við fræðslu- og menningarhlutverk ríkissjónvarpsins.
![]() |
100 Þjóðverjar handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.6.2008 kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.6.2008 | 11:23
Samstarf og sjálfstæði
Um leið og ég óska öllum þeim er unnið hafa að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar til hamingju með daginn, þá vil ég leiðrétta það sem kemur fram í öllum blöðum í dag að friðlýstur hluti jarðarinnar Stafafells í Lóni sé í "umsjón Vatnajökulsþjóðgarðs". Stafafell er sjálfstæð heild í landfræðilegu, sögulegu og útivistarlegu tilliti. Það verður svo lengi sem Jökulsá í Lóni á upptök sín í Vatnadæld og á Vesturdal og rennur sína fjörutíu kílómetra til sjávar á móts við eyjuna Vigur.
Viðræður eru milli landeigenda og Vatnajökulsþjóðgarðs um tilhögun landvörslu og upplýsingagjöf í Lóni í sumar. Þar bendir margt til að finnist samhljómur og ekki þörf á að annar hafi "umsjón" með hinum. Mikilvægt er að vanda til slíks samstarfs og að jafnframt sé virðing fyrir því að líta til sjálfstæðis slíkrar nátturufarslegrar og menningarsögulegrar heildar. Ég hef trú á því að þegar áherslan færist frá snjóhettunni að þá komi þeir dagar að sjónum verði beint að uppbyggingu á því svæði sem hefur hvað mesta möguleika til útivistar og fjölbreytileika í náttúrufari.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2008 | 00:11
Verra að vera "kerling" en "negri"
Hin langa barátta um útnefningu forsetaefnis demókrata er á enda. Þessi slagur var að verulegu leyti prófsteinn á það hvort bandaríska þjóðin væri frekar tilbúin að útnefna konu eða blökkumann. Kjósendur höfnuðu reynslumikilli konu og völdu þeldökkan ungan mann.
Fordómar tengdir kyni og litarhætti hafa áhrif. Í allri umfjöllun var mikil áhersla lögð á að koma í veg fyrir neikvæða umfjöllun tengda kynþætti. Slíkt væri vanvirðing við sögu þrælahalds og kúgunar á svertingjum. Hinsvegar var því oft tekið sem léttu spaugi að vera með kyntengdar glósur á konuna í framboði. Þar voru menn ekki á tánum gagnvart mismunun kynjanna og kúgun kvenna.
Þannig virtist meira umburðarlyndi fyrir kyntengdum fordómum sem að án efa hafa skaðað ímynd Hillary Clinton. Umræða um að hún sé kona sem sé farin að eldast , að hún hafi feita ökla, að hún hafi ljóta hárgreiðslu o.fl. af slíkum toga varð hún að una við í sinni kosningabaráttu.
Sambærilegar árásir á Barack Obama byggðar á kynþætti hefðu vakið hneykslan og fordæmingu í fjölmiðlum. Það virðist því vera verra hlutskipti að vera "kerling" en "negri".
![]() |
Clinton dregur sig í hlé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
6.6.2008 | 11:48
Afsökunarbeiðni væri sáttatónn
Hjörleifur Guttormsson skrifar góða grein í Morgunblaðið í dag. Þar rekur hann hvernig norsk stjórnvöld báðu fórnarlömb pólitískra hlerana þar í landi afsökunar. Um er að ræða mál sem að eru að mörgu leyti sambærileg við þau þrjátíu tilvik hlerana sem að hafa verið gerð opinber hérlendis.
Björn Bjarnason virðist fastur í þeirri einsleitu túlkun að annar aðilinn hafi alltaf haft rétt fyrir sér og hinn hafi alltaf staðið fyrir röngum málstað. Hannes Hólmsteinn kemur í kjölfarið og skrifar á þeim nótum að þetta hafi verið nauðsynlegar aðgerðir til að hafa hemil á hættulegu fólki.
Það vita allir að veröldin var ekki þá og ekki enn bara í svörtum og hvítum litum. Stærstur hluti þess fólks sem að varð fyrir hlerunum var með frómar óskir og væntingar um betri heim. Á þeim voru brotin mannréttindi og til þess þarf að taka afstöðu óháð pólitískum rétttrúnaði.
Telja má víst að ef dómsmálaráðherra hefði verið úr röðum Samfylkingar, þá hefði útspilið orðið annað. Sjálfstæðisflokkurinn hefur stolt sem að gerir afstöðu hans ósveigjanlega og ósanngjarna. Björn Bjarnason fékk kaldastríðið í arf og virðist á stundum fastur í stemmingu þess tímabils.
Afsökunarbeiðni á hlerununum, sem mannréttindabroti óháð því hvor hafði rétt fyrir sér í pólitík, hefði verið eðlilegur tónn sátta og sanngirni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.6.2008 | 00:24
Fótboltabull
Evrópskri menningu stendur helst ógn af múgsefjun sem bundin er við fótbolta. Nú er ætlast til að við látum það yfir okkur ganga að fjölmiðlar verði gjörsamlega undirlagðir af sparkfréttum og tuðrutuði. Jafnvel á að hafa af mér sjónvarpsfréttirnar klukkan sjö, sem að ég er þó búin að borga fyrir. Svo er ég líka búin að borga Þórhalli fín laun fyrir að sjá um Kastljósið. Öllu skal endurraðað á þann máta að bjórþyrstar fótboltabullur fái sinn skammt. Hvað er orðið eftir af menningarlegu og fræðslutengdu hlutverki RÚV sem á að réttlæta tilgang þess?
Gert er ráð fyrir að ferðalög innanlands hefjist ekki fyrr en í júlí vegna útsendinga frá EM í fótbolta. Yfir vetrartímann fara flugfarmarnir af klámfengnum körlum til Englands í fótboltaferðir. Hópþrýstingurinn gengur út á allt annað en heilnæman ungmennafélagsanda. Myndast hefur kúltúr sem liggur oft nærri tónum ofbeldis. Það sem kórónar þó allt er að fótbolti er lítt spennandi sjónvarpsefni, þar sem að það telst líflegur leikur ef 2 til 3 mörk eru skoruð í heildina.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
27.5.2008 | 23:55
Útþynning á hlutverki Skipulagsstofnunar
Ljóst er að öfl í þessu samfélagi hafa breytt eðli Skipulagsstofnunar úr því að vera úrskurðaraðili í að vera umsagnaraðili varðandi framkvæmd reglna og laga. Nú virðast orkufyrirtækin ætla að ganga enn lengra og vilja hindra að Skipulagsstofnun setji fram álit eða afstöðu til umhverfisáhrifa.
Það er sterk tilhneiging hjá verktökum, eigendum fjármagns og þeirra pólitísku sendisveinum að innleiða stemmingu þöggunar. Engum er ætlað að hafa skoðun, því niðurstaðan á að vera fyrirfram gefin. Sveitarfélögin sem handhafar skipulagsvalds þurfa sterkt aðhald og leiðbeiningu frá utanaðkomandi fagstofun, eins og Skipulagsstofnun.
Það er aumkunarvert hlutskipti ef stofnunni er eingöngu ætlað að fylgjast með leturstærð og skilafresti á gögnum en sé meinað að tjá sig um innihald þeirra og gæði.
![]() |
Segist ekki hafa hafnað Bitruvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.5.2008 kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.5.2008 | 23:34
Nýbúar, vesalingar og börn taka strætó
Jeppinn minn þykir ekki merkilegur pappír í flóru fjórhjólatrukka. Hann stendur sig þó þokkalega, en líkt og aðrir bílar þarf hann viðhald og á verkstæði af og til. Ein slík bæjarreisa á verkstæði var í dag. Ég spyr mennina í afgreiðslunni hvort þeir viti hvar sé styst að ná í strætó niður í bæ og hvað þeir séu númer. Eldri maðurinn glottir og það pískrar í honum. Lætur vita með líkamlegu táknmáli að þetta sé ekki góð spurning í mekka bílamenningar. Sá yngri segir að hann hafi nú ekki tekið strætó síðan hann var sextán ára. Eftir smá vandræðalega þögn, segir yngri maðurinn í léttari tón og með von í röddinni að viðeigandi lausn væri fundin; "Viltu ekki bara að ég hringi á leigubíl". Ég jánka því. Auðvitað var best að hann hringdi á leigubíl.
Leigubílstjórinn talar um hvað það séu margir farnir að hjóla um borgina og finnst það greinilega jákvætt og nefnir það sem eðlilega sjálfsbjargarviðleitni á tímum hækkandi orkuverðs. Ég er búin að vera þátttakandi í hjólað í vinnuna átakinu sem var að ljúka. Þar eru allir að hrósa hver öðrum. Sannfærðir um að hjólreiðar séu merki hreysti og dugnaðar. Ótrúlegt að mér hafi dottið í hug að fara í strætó í dag. Hann er náttúrulega bara fyrir þá sem eru of latir til að hjóla, nýbúa, vesalinga og börn sem geta ekki rekið eigin bíl. Aðalmálið er að senda réttu skilaboðin með farskjótanum, sem maður velur sér. Jeppa eða leigubíl. Fara svo á tyllidögum vel hjálmaður í réttu útivistarmerkjunum, á hjólinu í vinnuna. Þá er allt eins og það á að vera.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.5.2008 kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.5.2008 | 23:35
Litadýrð í Lóni
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2008 kl. 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)