Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Snjór er stundarfyrirbæri

vatnajokulsthodgardur_2

Snjór er í eðli sínu stundarfyrirbæri sem kemur og fer eftir hitastigi. Það er því hæpið að tala um verndun hans eða nýta ytri mörk jökuls á tilteknum tíma sem landamerki í þjóðlendulínu.

Helgi Björnsson jöklafræðingur hefur haldið því fram að skriðjöklar og sá hluti Vatnajökuls sem nær yfir í Lón verði horfinn á næstu 30 árum. Með því verður vatnasvið Jökulsár í Lóni orðið jökullaust.

Af þeirri ástæðu og fleiri er eðlilegt að virðing sé borin fyrir mörkum Stafafells í Lóni sem byggja á fornri hefð um vatnaskil og ár sem meginviðmið. Slík nálgun fylgir venjum og gefur rökrétta heild.

StafafellLögmenn og verndarsinnar hafa farið offari með reglustikuna og dregið ný mörk byggð á snjóalögum eða fornbókmenntum, legu jökuls og lýsingum Landnámu.

Friðland, þjóðlenda, einkaafréttur, eignarland sem eru afleiðingar af reitaskiptingu ríkisins verða hverful stundarfyrirbæri eins og snjórinn. Stafafell í Lóni er afmörkuð heild út frá sterkum landfræðilegum og sögulegum forsendum.


mbl.is Langjökull horfinn eftir öld?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lukkulegur og grannur

Í gær kom ég úr síðastu gönguferð sumarsins, þar sem ég kynni Stafafell í Lóni. Vandleitað er að jafn spennandi og skemmtilegri sumarvinnu.

Hinir frábæru göngufélagar síðustu fimm daga voru af Álftanesi og er hópur sem myndaður var í tengslum við meirihluta bæjarstjórnar.

Það er alltaf gaman að hafa unga fólkið með í svona ferðum og þarna voru fimm vaskir sveinar sem létu sig ekki muna um að skella sér til sunds eða í klettaklifur.

Þessi fjallamennska hefur hreinsað af mér bloggspik síðasta vetrar. Nú fer að styttast í skólahald og næstu dagar fara í að fínslípa texta sem ég hef samið fyrir kennslu í líffræði.

Jafnframt mun formennska í Varmársamtökunum taka sinn tíma og hef ég metnað til að samtökin gegni skapandi hlutverki; vettvangur mannlífs og farvegur skoðanaskipta.

Álft 1Álft 2

Álft 3Álft 5

Álft 4Álft 6


Sameiginlegar stoðir til framtíðar

euro-logotypeNú reynir Björn frændi vor að fikra sig af stað í brúarvinnu. Á næsta ári er landsfundur Sjálfstæðisflokksins og þeir eiga alveg eftir heimavinnuna. Almenningur, samtök iðnaðar og félag kaupmanna krefjast skilvirkni í stefnumótun um framtíðartengsl og stöðu okkar í álfunni. Björn Bjarnason er nægilega skynsamur maður til að átta sig á að tilburðir flokksins til að svæfa málin eru ekki vænlægir til árangurs.

Dómsmálaráðherra skynjar þörfina á að brúa bilið milli viðhorfa almennings og atvinnulífs annarsvegar og einangraðrar forystu Sjálfstæðisflokksins hinsvegar. Nauðsyn þess að skjóta fleiri stoðum undir samstarfið við Evrópusambandið. Krafan um upptöku evru er háværust og eðlilegt að byrja á að tefla því fram einu og sér. Þorgerður Katrín hefur verið ein á báti með þá yfirlýstu stefnu að tímabært sé að gera ítarlega úttekt á stöðu Íslands gagnvart ESB og útilokar ekki aðild.

Nú hefur ráðherrann áttað sig á að hann er ekki  í takt við stemminguna með því að vísa eingöngu í Evrópuskýrslu sem að hann lét taka saman í fyrra eða hittifyrra. Það þarf að láta verkin tala. Björn vill hafa stöplana undir brúnni þrjá; EES samninginn, Schengen samstarfið og upptöku evru. Opnað er á frekari umræðu og nánari tengsl. Það er nýjung og vert fullrar athygli. Dómsmálaráðherra, menntamálaráðherra og fleiri í forystu flokksins munu sjá að best er að brúin sé öflug og traust, frekar en að farið sé af stað af hálfum hug með skotröftum og skammtímalausnum.


mbl.is Evruleið fremur en aðildarleið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjánar, karlagrobb og krepputal

Kjánagrey með slagorðum Frjálslynda flokksins trufluðu athöfnina á Austurvelli. Forsætisráðherrann nýtti tækifærið til að upphefja Bjarna Benediktsson, ásamt því að minna fólk á afleiðingar efnahgsþrenginga.

Fjallkonan er hið rómantíska stef dagskrárinnar, en maður spyr sig hvort ekki sé hægt að sameinast um virðulega og skemmtilega stemmingu á þjóðhátíðardaginn. Þar eiga hvorki að vera mótmæli né einhver innræting um mikilleika forustumanns Sjálfstæðisflokksins.

Drögum fram gleðina með skilvirkari hætti. Gætum lært af Norðmönnum hvernig blanda má saman virðingu, hátíðleika, gleði og skemmtun á þjóðhátíðardaginn. Veðrið er allavega ekki að spilla.

                                    Til hamingju með daginn - lifum og njótum!


mbl.is Forsætisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Faðir vor er himinn

KjuregejAlexandara Kjuregej Argonova er engum lík. Hún hefur búið hér á Íslandi í tæp fjörutíu ár og haft litrík og góð áhrif á íslenskt samfélag. Verið virk í leiklist, myndlist og heilsutengdu starfi s.s. nuddi.

Kjuregej kemur frá Jakútíu í Síberíu og stóð í gær fyrir vígslu á húsi við botn Hvalfjarðar sem byggt er að jakútískum stíl. Húsið verður menningarsetur landanna sem aðsetur fyrir skapandi fólk.

Ef einhvern tíma var ástæða til að vera með myndavél þá var það í gær. En hún gleymdist. Húsbyggjandinn var í essinu sínu og í búning frá heimalandinu ásamt fleiri gestum.

Prestar frá sitt hvoru landinu sameinuðu andana. Það var gaman að heyra af trúarviðhorfum jakúta. Þar er jörðin móðir, himininn er faðir, eldurinn afi og vatnið er amma.

Þannig að ef til vill höfum við einhvers staðar villst af leið með því að halda fram að faðir vor sé á himni. Hugsanlega er hann bara himinn og frjóvgar jörðina. Er þá nokkur þörf fyrir kvennakirkju?


Á lífi

Tónleikarnir Mús Mos voru í Álafosskvos í dag. Skipuleggjendur voru íbúar í kvosinni og Varmársamtökin með stuðningi frá Mosfellsbæ. Samtökin héldu fyrir rúmu ári stórtónleika með Sigurrós og fleiri undir slagorðinu "Lifi Álafoss". Þrátt fyrir þá skerðingu á þessari veröld sem að er mjög sérstök, með veglagningunni alræmdu, þá var í dag sérlega fagurt og fjölbreytilegt mannlíf undir bláhvítum fána á þessum sögulega stað. Stallarnir í brekkunni frá samkomuhaldi fyrr á tíð nýttust vel og sól var bæði í sinni og hátt á himni.

Set hér inn myndir frá þessum degi sem tókst í alla staði sérlega vel og verður vonandi að hefð í mannlífi Mosfellsbæjar. Ég þekkti ekki hluta af þeim sem eru á myndunum. Hægt er að klikka á myndina til að hún stækki.

MúsMos01MúsMos02MúsMos36

MúsMos03MúsMos04

MúsMos05MúsMos06MúsMos35

MúsMos07MúsMos08

MúsMos09MúsMos10

MúsMos11MúsMos12

MúsMos13MúsMos14

MúsMos15MúsMos18

MúsMos16MúsMos17MúsMos38

MúsMos19MúsMos23MúsMos43

MúsMos24MúsMos31

MúsMos26MúsMos27

MúsMos22MúsMos30

MúsMos25MúsMos28MúsMos29

MúsMos20MúsMos33

MúsMos34MúsMos41

MúsMos40MúsMos38MúsMos45

MúsMos44MúsMos48

MúsMos37MúsMos39

MúsMos49MúsMos56MúsMos50

MúsMos52MúsMos53

MúsMos57MúsMos58

MúsMos54MúsMos42MúsMos55


Gleðidagur Írlands?

Hinn sundurlausi og tiltölulega fámenni kór sem eyðir lífsorku sinni í að andmæla samvinnu innan álfunnar okkar, hefur nú fundið farveg hamingjunnar undir neikvæðum formerkjum. Þeir fagna því að þjóðaratkvæði á Írlandi hafi hafnað Lisabon samningnum. Inntak hans er að gera stjórnsýslu sambandsins skilvirkari. Hefur gagnrýni þeirra sem vilja vera hér einir á skeri og engum tengdir ekki verið á þeim nótum að sambandið sé þunglamalegt og óskilvirkt bákn?

Írar eru og hafa alltaf verið mjög hlynntir Evrópusambandiu. Vafalítið höfðu afskipti franska utanríkisráðherrans af málinu, þar sem að hann hótaði því að írar myndu hafa verra af höfnuðu þeir samningnum. Ljóst er að 1% íbúa í sambandinu getur ekki komið í veg fyrir umbætur og breytingar. Vandi forsætisráðherra Írlands í dag er að hlusta á vilja þjóðarinnar og að tryggja að landið verði áfram með á Evrópulestinni.

Nei hópurinn á Írlandi náði upp stemmingu sem dugði til að hafna samningnum. En hann hafnar af sundurleitum ástæðum og aðalatriðið er að hann veit ekki hvað hann vill. Fámennur hópur er á móti sambandinu, sumir eru á móti því sem að haldið hefur verið fram að verði sambandsríki með eigin utanríkisstefnu. Írland er friðelskandi þjóð í alþjóðasamfélaginu. Sumir höfnuðu samningnum vegna afskipta annara þjóða. Eftir stendur að vandi íra og þeirra sem höfnuðu er ekki leystur. Hvernig vilja þeir sjá framtíð og samskipti Írlands og Evrópusambandsins?

Það eru því merki sjálfseyðingarhvatar sem birtast í fagnaðarlátum íslenskra andstæðinga sambandsins þar sem þeir fagna niðurstöðunni og vonast til að hún leiði til "sundrungar", "upplausnar" og "minnkaðs sjálfstrausts" innan Evrópu.


Fánadagur

 Sigurjón og bláfáninn

Bláhvíti fáninn blakti fagurlega við hlið brjóstmyndar af Sigurjóni Péturssyni í Álafosskvosinni í kvöld. Búið er að endurvekja þessa hefð að flagga 12. júni og þá með bláhvíta fánanum. Á laugardaginn standa íbúar í Álafosskvos, Varmársamtökin og Mosfellsbær að útitónleikum í Kvosinni -MúsMos-. Þar munu átta unghljómsveitir stíga á pall.

Sumarhús á leið að Rangá 

Á leiðinni heim þá var verið að flytja sumarhús eftir Reykjaveginum og áfram Hafravatnsleiðina. Það var á leiðinni að Rangá. Eigandinn var kátur þegar húsið var komið yfir síðustu hraðahindrun og taldi að lítið yrði um vandamál við flutninginn, eftir að komið væri út úr þéttbýlinu.


Fólk en ekki fénaður

GuantanamoÞað er með ólíkindum að Bush hafi trúað því að hann hefði rétt til að halda föngunum í Guantanamo. Að hann kæmist upp með það heima fyrir og gagnvart alþjóðasamfélaginu að flytja flugfarma af fólki milli landa fyrir óljósar sakargiftir.

Ef hann er sannfærður um að allir fangarnir séu hryðjuverkamenn er samt lágmarkskrafa að um forsendur handtöku sé fjallað fyrir rétti og dæmt eftir framburði og vitnum. Við erum að tala um fólk en ekki fé.


mbl.is Bush segist hlíta dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teljarinn

Talning heimsókna er hluti af veruleika bloggsins. Líkt og að enginn vildi viðurkenna á sínum tíma að vera svo hégómlegur að horfa á Dallas, þá þykjast flestir vera áhugalausir um fjölda gesta inn á sínar síður eða allavega að þeir séu meðvitað að eltast við teljarann.

Drjúgan hluta vetrar var bloggið mitt meðal topp 30 mest lesnu síðna á moggabloggi. Viðurkenni fúslega að mér þótti vænt um það og líka þá staðreynd að á tímabili var útdráttur úr annarri hverri færslu sem ég skrifaði birt í Morgunblaðinu.

Í vetur kom Herbert Guðmundsson tónlistarmaður og farandsali með bækur til sölu. Konan fór til dyra. Hann spyr eftir mér. Hún spyr hvort við þekkjumst og hann er snöggur til svars; "Ja, hann er náttúrulega landsþekktur bloggari". - Ég keypti af honum bækur fyrir 30 þúsund!

Nú eru heimsóknartölurnar lægri síðustu vikurnar og Mogginn hefur ekki birt færslu í nokkra mánuði. Ég held þó fyllilega ró minni. Hefði mest gaman af því að fá oftar -hæ og bæ- frá þeim sem koma í heimsókn. Á bak við IP tölurnar eru frændur, vinir, kunningjar, nemendur og ókunnugt fólk við tölvur út um allt.

Þarf ef til vill að fá mér MSN eða Facebook til að auka spjall um daginn og veginn. Tek bloggið dálítið formlega. En sennilega verður ekki tími í neinar grundvallarbreytingar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband