Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
23.8.2008 | 01:51
Valdablæti og látalæti
Það varðar þjóðarhag að skilja sálarlíf Sjálfstæðismanna eins mikið og þeir hafa verið til vandræða með stólahrókeringum í borginni síðustu misserin. Svo virðist sem Hanna Birna borgarstjóri ætli að prófa nýja og mýkri ímynd fyrir flokkinn. Hún segir; "Þessi átakamiðuðu stjórnmál, sem allt of lengi hafa einkennt íslenska pólitík, ættu að vera tækifæri fyrir okkur að endurskoða þá menningu sem oft einkennir stjórnmálin".
Á öðrum stað talar hún um framtíð flugvallarins og lýsir þeirri skoðun sinni að flugvöllurinn þurfi að víkja af þessu verðmæta byggingarlandi fyrir borgina. Þetta er konan sem lét það ganga yfir sig síðustu rúma tvö hundruð dagana að þora ekki að viðra þessa skoðun opinberlega og allt að því gangast undir stefnu Ólafs F um áframhaldandi veru flugvallar í Vatnsmýrinni.
Vandamál Sjálfstæðisflokksins er skortur á lýðræðisvitund. Að leita eftir og hlusta eftir viðhorfum fólks. Láta hagsmuni er lúta að mikilleika og völdum flokksins víkja fyrir heilbrigðri skynsemi og heilindum. Við sáum þetta birtast með sjúklegum hætti í skipulagningu hátíðahalda vegna Hannesar Hafstein. Þar sem flokkurinn reyndi að eigna sér hann með öllu og jafnvel að boða til funda um hátíðahöldin meðan forseti landsins var erlendis.
Dagbókarfærslur Matthíasar Jóhannesen hafa fengið mikla athygli síðustu dagana og flestir túlka þær þannig að þeim sé ætlað að koma höggi á tiltekna vinstri menn, meðal annars Ólaf Ragnar Grímsson forseta. Mun áhugaverðara finnst mér að sjá hvernig forystumenn Sjálfstæðisflokksins og miskunnarlaus fjármálaöfl áttu greiðan aðgang að ritstjórum og ritstjórn Morgunblaðsins. Í dagbókunum er persóna og samviska Matthíasar að birtast af fullum heilindum, þó auðvitað hafi hann sína pólitísku sýn sem staðsetur hann í litrófi stjórnmálanna.
Matthías skrifar um viðleitni blaðsins til að rjúfa tengslin við Sjálfstæðisflokkinn; "Það er líka rétt að fyrir sveitastjórnarkosningar 1994 birti Morgunblaðið ávarp frá Davíð Oddssyni formanni Sjálfstæðisflokksins, meðal aðsendra greina, en ekki á sérstökum stað á útsíðum eins og áður, þótt blaðið hafi lýst yfir stuðningi við stjórnmálastefnu Sjálfstæðisflokksins í forystugreinum. Ég held Davíð hafi aldrei fyrirgefið þessa ákvörðun. Eftir langt samtal okkar í Stjórnarráðinu rétti hann mér greinina og ætlaðist áreiðanlega til að hún yrði birt að venju á útsíðu, en ég tók þá ákvörðun að setja hana inní blað sem aðsenda grein og ber mesta ábyrgð á því".
Matthías og Styrmir eru hættir sem ritstjórar og ljóðskáldið virðist telja að blaðið standi undir nafni sem blað allra landsmanna fremur en flokksmálgagn. Augu og eyru hafa því verið opin fyrir því hvernig ný ristjórn fjallar um borgarmálin, sem verið hafa samfelldur harmleikur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ritstjórnargreinarnar hafa haldið sér við fulla flokkshollystu. Í forystugrein í dag um Hönnu Birnu hrekkur Mogginn í gamla hlutverkið að mæra og upphefja mikilfengleika forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Hrósar sérstaklega áformaðri viðleitni hennar að hafa nánara samstarf og samráð við minnihlutann í borgarmálum.
Í forystugreininni segir; "Svona hafa ekki margir forystumenn í stjórnmálum talað". Þessi hugtök og áherslur hafa þó verið áherslur Ingibjargar Sólrúnar. Um nauðsyn breytingar á þeim kúltúr sem ríkir í íslenskum stjórnmálum. Þetta var inntak Borgarnesræðunnar, ásamt lýsingu á því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur í áranna rás umgengist valdið. Það er lofsvert hjá Hönnu Birnu að leita eftir samstarfi og opinni umræðu. En afhverju gerir hún það fyrst núna, en ekki strax fyrsta eða annað skiptið þegar flokkurinn myndaði meirihluta? Mogginn, sem flokkslega óháð dagblað hefði átt að benda á þá stöðu í stjórnmálum að Samfylkingin er í mestum takt við væntingar borgarbúa og hefur þá lýðræðisvitund sem einkenna þarf nútímalegt stjórnmálaafl.
Nú hefur flokkurinn uppgötvað að hann þarf að efla tengslin við kjósendur. Hanna Birna ætlar að innleiða "metnaðarfulla fjölskyldustefnu". Í þeim anda er nýji borgarstjórinn ekki sýndur á mynd með guðfeðrum sínum Guðna og Geir, heldur í faðmi eigin fjölskyldu. Vonandi eru þetta ekki látalæti eftir að vera komin í þrönga stöðu. Vonandi á að hlusta eftir þeim málum sem brenna á fólki. Rækta sitt hlutverk sem fulltrúar fólks, en ganga ekki fram af yfirlæti og rembingi sem hinir útvöldu. Þar fannst mér Geir H. Haarde flaska inn á gamaldags flokks og fálkaímynd í viðtali í Markaði Fréttablaðsins, þar sem honum er stillt upp við hlið málverks af föllnum foringja.
Að vitna í Bjarna Ben eða Ólaf Thors þykir flott í Valhöll en ekki meðal almennings, að formaðurinn sé á mynd með málverk af Bjarna Ben eða Ólafi Thors í baksýn þykir flott í Valhöll en ekki meðal almennings. Ein helsta málpípa íhaldsmanna í bloggheimum var búin að stilla Jóni Sigurðssyni, Hannesi Hafstein, Jóni Þorlákssyni, Ólafi Thors, Bjarna Benediktssyni og Davíð Oddssyni öllum í eina röð í hausmynd á síðu sinni. Reyndar hrundi heimsóknartíðni í framhaldi og hann er nú búin að fjarlægja alla karllurkana úr toppstykkinu. Geir Haarde og aðrir Sjálfstæðismenn verða að láta af þessu valdablæti sínu. Að vinna verk sín út frá öðru en mikilfengleika flokksins. Vera auðmjúkir og kumpánlegir fulltrúar fólks. Vonandi sjáum við næst mynd af formanninum í barnahópi á leiksóla. Það væri miklu flottara.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 14:17
Útimarkaður og regnbogahlaup
Varmársamtökin halda árlegan útimarkað sinn laugardaginn 30. ágúst kl. 12-16 í Álafosskvos. Hann er hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ. Í fyrra komu fleiri þúsund manns við í Kvosinni og einstök stemming. Hægt er að leigja sölupláss og Varmársamtökin verða með grænmetismarkað og veitingasölu.
Um morguninn kl. 10 stendur hið vaxandi fyrirtæki ATORKA - mannrækt & útivist fyrir svonefndu Regnbogahlaupi eftir fellunum umhverfis Mosfellsbæ. Þetta er í annað skipti sem þetta hlaup er hluti af dagskránni. Ljóst er að ég mun ekki verða í vetur með jafnmikið af heilsutengdum dans- og jóganámskeiðum og ég hef verið með síðustu ár. Verð í samstarfi við World Class með kennslu á Rope Yoga og Zumba þrekdansi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2008 | 09:33
Samfylking næði meirihluta
Miðað við þessa könnun hafa Geir og Guðni misreiknað sig þegar þeir töldu að uppvakningurinn dyggði til að snúa við slöku gengi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borginni.
Samfylkingin næði meirihluta í borgarstjórn ef kosið væri núna og ekki munar miklu á fylgi Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna.
Einhver gæti sagt af sanngirni að nýr meirihluti væri varla byrjaður að sýna spilin sín. Helsta tromp á hendi er Bitruvirkjun. Að fara í framkvæmdir á útivistarsvæði við Hengil, sem Skipulagsstofnun mælir gegn vegna verulegs mikils rasks á náttúrunni.
![]() |
26,2% segjast styðja nýjan meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.8.2008 | 09:08
Flotta Framsóknarstelpan
Marsibil Sæmundardóttir varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins vill ekki gera flokkinn að steingeldum borgaralegum flokki, sem hefur það vesæla hlutverk að lina þrautir Sjálfstæðisflokksins. Hún reddar deginum hjá mér. Lætur ekki Geir og Guðna stjórna sér.
Óðagotið hjá Óskari í stólana virðist af sama meiði og var hjá Ólafi F á sínum tíma. Að stilla ekki strengi með varamanni sínum. Þetta fer ekki vel af stað. Framsóknarflokkurinn klofinn í afstöðu til samstarfsins.
Auk þess á hið stóra uppgjör um leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í borginni eftir að fara fram. Þar bíða þrír í rásmarkinu Júlíus, Hanna Birna og Gísli Marteinn, sem sestur er á skólabekk til að styrkja stöðu sína. Það styttist í kosningar og sumir eru að falla á tíma.
Ég spái því að þegar hálft ár verður í kosningar og fylgið við D-lista hefur lítið vænkast að þá fari að koma krafan um að stilla upp sterkum utanaðkomandi leiðtoga. Sennilega fær þó Björn Bjarnason ekki annað tækifæri.
![]() |
Geir ræddi við formann Framsóknarflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.8.2008 kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.8.2008 | 14:25
Veit Óskar ekki sinn næturstað?
Athygliverð var áhersla Óskars Bergssonar í fjölmiðlum í morgun, að hann hefði ekki tekið þátt í neinum viðræðum um nýjan meirihluta. Hann virðist því ekki vita að hann sé að verða formaður borgarráðs.
Persónulega finnst mér að hafa eigi það viðmið í pólitík sem og öðru að segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert nema sannleikann.
Það eru allir búnir að fá nóg af undirferli og refskák
![]() |
Fullyrt að samstarfi hafi verið slitið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
14.8.2008 | 10:33
Kapallinn lagður
Plott- og klækjameistarar íhaldsins spinna nú sinn vef þannig að þeir komist í borgarstjórastólinn á næstu dögum. Líkt og við myndun núverandi ríkisstjórnar þegar Framsókn var haldið volgri um framhald á sama tíma og rætt var við aðra um nýja ríkisstjórn.
Auðveldast er að setja Ólafi F þá afarkosti að hann fari frá en styðji áfram meirihlutann. Á meðan hann íhugar stöðuna eru þreifingar við bakland Framsóknarflokksins um samstarf. Halda stjórn á atburðarásinni og öllum möguleikum opnum. Kippa þeim í sæng, sem gefur bestu kjörin.
Það er vonandi að allt gangi upp. Að Ólafur skynji að hann eigi engra kosta völ annarra en vera stilltur eða að Óskar hlíði baklandinu og verði tilkippilegur. En hvað gerist ef Ólafur verður fúll á móti og Óskar er ekki fús í að draga flokkinn upp úr holunni?
![]() |
Borgarfulltrúar segja fátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2008 | 21:53
Baráttueðli bjarnarins
Áhugaverð tíðindi eru í alþjóðamálum og berast úr austri af stríðsátökum Rússlands og Georgíu. Sjálfsöryggi Rússa í áranna rás hefur verið tengt stríðsrekstri. Eftir að Sovétríkin hrundu þá tapaði hin rússneska þjóðarsál orkunni og innviðirnir lömuðust. Undir stjórn Pútíns fór efnahagur að vænkast og gangverk allt fór af stað að nýju. Þar á meðal herinn.
Þeir vakna nú af doðanum og skynja þá staðreynd að Evrópusambandið og Nató eru komin upp að túnfæti allt í kring. Síðan er það spurning hvað þeir þora að ganga langt í að vinna gegn þeirri þróun. Mikilvægt er að alþjóðasamfélagið bregðist hratt við og sendi Rússum skýr skilaboð þess efnis að það sé ekki skynsamlegt fyrir þá að sýna hramminn.
Júlíus Sigurþórsson skrifar lengri og ítarlegri pælingu um þetta mál en ég er fær um, þó mér þyki spennandi að fylgjast með hvernig það þróast á næstu vikum.
![]() |
Bandaríkin styðja Georgíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.8.2008 kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2008 | 10:41
Engin leið fær fyrir íhaldið
Eina leiðin til að mynda starfhæfan meirihluta í Reykjavík væri samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. En miðað við skoðanakannanir stefnir í auðvelda siglingu í nýjan meirihluta Samfylkingar og Vinstri grænna eftir næstu kosningar.
Hinsvegar er staðan það alvarleg í borgarmálum að réttast væri að láta af öllum flokkadráttum og mynda stjórn allra flokka fram að næstu kosningum. Eðlilegast hefði verið að boða til kosninga til að fá endurnýjað umboð og skýrari línur.
Vandræðagangur íhalds og örflokkanna tveggja er að koma þeim dýpra og dýpra. Mikilvægt er að Óskar Bergsson, sem ég þekki af góðu einu haldi ró sinni og láti ekki stundarhagsmuni og stóla draga sig inn í meirihlutasamstarf, sem haldreipi hins örvæntingarfulla stjórnmálaflokks.
![]() |
Vilja breytingar á meirihlutasamstarfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2008 | 17:48
"500 m vegarspottinn"
Flestir Íslendingar vita af umræðunni um tengibraut um Álafosskvos. Stundum gæti maður haldið að fátt hafi verið áður til tíðinda úr Mosfellssveitinni. Jú, það vita líka margir af Nóbelnum. Sigrún Pálsdóttir skrifar góða grein í Morgunblaðið í dag þar sem að hún er að lýsa yfir stuðningi við ákvörðun umhverfisráðherra að virkjanaframkvæmdir fari í heildstætt umhverfismat.
Í greininni notar hún máli sínu til stuðnings reynsluna úr Mosfellsbæ þar sem Varmársamtökin fóru fram á faglega úttekt á valmöguleikum og að heildaráhrif tengibrautar yrðu metin. Við fögnuðum því þegar bæjaryfirvöld voru skikkuð í að láta verkið í umhverfismat áætlana. Vonbrigðin urðu hinsvegar veruleg þegar ráðgjafafyrirtækið keypti skýringar bæjaryfirvalda þess efnis að málið snérist eingöngu um 500 m vegakafla en ekki heildarsýnina.
Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar skrifaði; "Ég vona satt að segja að 500 metra vegakaflinn í Mosfellsbæ verði viðmið Össurar og Samfylkingarinnar í umhverfismálum næstu fjögur árin". Margt bendir til að nú hafi honum orðið að ósk sinni með úrskurði ráðherra.
Herdís Sigurjónsdóttir lýsti því yfir að umræðan væri á villigötum; "Varmársamtökin fóru að mótmæla 500 m löngum tengivegi sem leggja á fyrir ofan Álafosskvosina sem verið hafði á skipulagi í áratugi". Jafnframt dregur hún í efa að tengibrautin sé að hafa áhrif af því að hún liggi ekki um Álafosskvosina.
Vonandi hjálpar úrskurður ráðherra til að skipulagsmál og áhrif framkvæmda séu skoðuð í heildstæðu ljósi og að ekki þurfi að takast á um einföldustu merkingu orða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.8.2008 kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.8.2008 | 09:16
Samfylkingin kjölfestan
Samkvæmt skoðanakönnun Capacent á fylgi flokka í Reykjavík þá mælist Samfylkingin nú með 47,8% fylgi. Tæplega helmingur Reykvíkinga styður flokkinn. Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi valið borgarstjóraefni sitt þá virðist það ekki hjálpa flokknum enda er hann og verður út sína valdatíð í gíslingu eins manns.
Smáflokkarnir sem hafa verið að selja völd sín til hægri og vinstri mælast vart með fylgi. Ánægjulegt er að sjá að Vinstri grænir mælast með yfir 20% fylgi og eru ekki langt frá fylgi Sjálfstæðisflokksins. Því bendir allt til þess að sterk tveggja flokka borgarstjórn verði eftir næstu kosningar.
Sjálfstæðisflokkurinn er að eyðast á eldi glundroðans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)