Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Vorvindar glaðir

ruta1Það er vor í lofti. Dagurinn lengist og lengist. Mögulegt að fara í útreiðatúra fram eftir kvöldi. Hugurinn byrjar að leita til fjalla. Undirbúningur að gönguferðum sumarsins. Ég er náttúrubarn og hlakka til að rekast á nýjar plöntur og nýja steina á komandi sumri austur í Lóni.
Kennarasambandið er nú með í sölu tvær gönguferðir á mínum vegum seinni part júní og í byrjun ágúst um Stafafell í Lóni. Það er ánægjulegt að fyrri ferðin seldist upp á tveimur dögum á vefnum og ég held að það sé langt komið með að seljast í seinni ferðina.
Brenniklettur2
Síðustu fimm helgar hef ég verið að taka rútuhlutann af meiraprófi. Í kvöld kláraði ég próf í restinni af bóknámi. Þá eru bara tólf aksturstímar á rútuna eftir og sjálft ökuprófið. Þannig að ég stefni á að vera löggildur rútubílstjóri fyrir páska.
Ég á síðan þessa öflugu fjallarútu sem bíður vor og sumarverkefna. Þarf að græja til söngtexta í fjallaskálana mína tvo í Eskifelli og Kollumúla. Nú er rétti tíminn til að huga að fjallaferðum. Eru ekki gönguhópar sem þurfa aðstoð með að skipuleggja einn góðan labbitúr? 
Vorvindar glaðir,
glettnir og hraðir
geysast um lundinn rétt eins og börn.
Lækirnir skoppa
hjala og hoppa
hvíld er þeim nóg í sæ eða tjörn.
Hjartað mitt litla, hlustaðu á,
hóar nú smalinn brúninni frá.
Fossbúinn kveður,
kætir og gleður
frjálst er í fjallasal.


Heilbrigði næst ekki með húsbyggingum

Tækni- og lyfjalausnir við sjúkdómum taka langstærstan hluta útgjalda heilbrigðiskerfis. Svo langt er gengið að á stundum lítur út fyrir að fólkið sé til fyrir kerfið en ekki að kerfinu sé ætlað að sinna þörfum fólksins.

Menningarsjúkdómar geta talist þeir kvillar sem hrjá okkur í meira mæli vegna breytinga á lífsvenjum. Þar eru offita, hjarta- og æðasjúkdómar, fullorðins sykursýki og ýmiskonar geðraskanir að valda stórum hluta af útgjöldum til heilbrigðismála.

Við þurfum að færa athyglina frá sjúkdómum yfir á heilbrigði, frá forvörnum yfir á heilsueflingu. Setja okkur markmið um að gera okkur gott, hámarka heilbrigði. Þjálfun í sjálfstjórn, bætt vitund og efling atorku gerir meira en stærstu lyfjabúr og sjúkrahúskastalar.

Gefum okkur tíma til að lifa og njóta.


mbl.is Háskólasjúkrahús á áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskriftir nauðsynlegar heimilunum

Tryggvi Þór gengur slóð Framsóknarflokksins að leggja til að allir fái jafnmikla niðurfellingu skulda. Slík prósentuleið stuðlar að því að sá sem tók stórt lán fyrir lúxussnekkju fær mest úr okkar sameiginlegum sjóðum og þar að auki óháð því hvort hann getur borgað skuldina. Það er réttilega arfavitlaus nálgun.

Sigrún Elsa Smáradóttir skrifar grein í Fréttablaðið sem hún nefnir "Að skipta ófyrirséðu tjóni". Í niðurlagi greinarinnar skrifar hún; "Það er afleitt hvað opinberum aðilum reynist auðvelt að nota sameiginlega sjóði til að bæta öllum öðrum en heimilum landsins það tjón sem hlotist hefur af þeirri verðbólgu sem að hruninu hefur fylgt".

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að bæta fyrirtækjum óverðtryggða verksamninga, skilanefndir gömlu bankana hafa afskrifað háar skuldir fyrirtækja til að tryggja áframhaldandi rekstur. Þar var gengið einna lengst í að afskrifa þrjá milljarða af fimm milljarða skuld Morgunblaðsins. Heimilin eru krossbönd samfélagsins og þurfa álíka skilning. 

Það verður þó að nást samhugur um að slá skjaldborg um heimilin í landinu. Þung krafa er meðal almennings um að þau verði ekki skilin ein eftir með sífellt hækkandi höfuðstól vegna verðtryggingar. Tillögur ríkisstjórnarinnar eru að mestu fólgnar í frestun á vanda, þó vaxtabætur hjálpi tekjulágum. Setjum fram ofurgáfulegar leiðir í anda sanngirni og réttlætis.

 


mbl.is Húsráð Tryggva Þórs þykja vond
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herðum kröfuna um persónukjör

Óánægja með alvarlega galla á prófkjörum getur stuðlað að auknu fylgi grasrótarframboða.  Þar ber að nefna litla kjörsókn skráðra félagsmanna, óeðlileg áhrif stuðningsmanna sem ætla ekki að kjósa flokkinn, byggða- og bæjarfélagstengt hagsmunapot, ásamt áhrifum fjármagns á röðun, sem einkum á við um Sjálfstæðisflokkinn.

Til að koma í veg fyrir að fólk snúi frá flokkum meginviðhorfa, þarf að herða enn kröfuna um persónukjör. Fylgjendur hins miðstýrða flokksræðis segja að þá verði áfram prófkjörsbarátta til kosninga. Að einstaklingar fari að spila sóló og koma fram með ýmis sérmál til að auka líkur á því að þeir nái kjöri. En er það ekki einmitt það sem við viljum að við höfum úr breytileika að velja.

Það er einmitt sú vídd sem að flokkar þurfa að skilja að þeir bjóði upp á mannlega karaktera á eigin forsendum. Ég vil heyra mína menn segja eitthvað fleira en að þeir vilji ganga í Evrópusambandið og að þeir muni starfa í anda jafnaðarstefnunnar. Persónukjör stuðlar að hinni sívirku athygli sem þarf að vera á fólkið í landinu, óskir þess og væntingar.

Fyrir Samfylkinguna gæti þetta gefið mun meira fylgi. Þeir sem að nú eru að hugsa um að snúa frá vegna lítils stuðnings við græna frambjóðendur, þroskaðar alþýðuhetjur, sveitamenn, Hafnfirðinga eða aðra gætu haldið í vonina. Það sem meira er að slík tilhögun skapar sóknarfæri. Menn eru hlynntir megináherslum og vilja færa tiltekinn einstakling til á lista.

Eðlilegt er að lista sé stillt upp í samræmi við niðurstöður prófkjörana. Líklegt má telja að flestir sleppi því að breyta uppröðun en ef veruleg óánægja er með frambjóðenda eða veruleg ánægja með aðra að þá eiga mestu völdin að vera í kjörklefanum hjá endanlegum kjósendum tiltekins framboðs að velja í liðið. 


Sigurvegari samviskunnar

Ákvað á föstudegi fyrir tveimur vikum að gefa kost á mér í prófkjöri Samfylkingar. Fyrst og fremst sem áhugamaður um lýðræði og virkni fólks í mótun síns umhverfis og samfélags. Fannst jákvætt að búið væri að setja bann á auglýsingar þannig að fjárhagsleg staða væri ekki að hafa mótandi áhrif.

Vildi vera fulltrúi hins almenna borgara sem gefur kost á sér en leggur eingöngu fram sína persónu og málefni. Ákvað að hafa ekki beint samband við nokkurn mann í þeim tilgangi að hafa áhrif á val hans. Hvorki til að hvetja þá til að kjósa mig eða aðra.

Reynslan sýnir mér að það er enn hægt að gera miklar umbætur á þessu fyrirkomulagi vals á framboðslista. Í þessu prófkjöri fór ekki mikið fyrir málefnalegri umræðu eða samanburði hugmynda. Eingöngu kynningar á frambjóðendum.

Stór hluti ræðutíma frambjóðenda fór t.d. í að útlista mikilvægi inngöngu í Evrópusambandið. Málefni sem að allir eru sammála um. Ég reyndi að draga fram mikilvægt málefni sem að er verðtryggingin og afleiðingar hennar á sífellt hækkandi höfuðstól húsnæðislána.

Reyndi að taka þetta mál upp í tvígang fundahléi við Árna Pál sem hefur verið að tala fyrir tillögum um greiðsluaðlögun í þinginu. Í bæði skiptin eyddi hann strax umræðunni. Það voru vonbrigði.  Við þurfum að geta rætt mikilvæg mál.

Stórefla þarf miðlæga upplýsingagjöf um frambjóðendur. Nauðsynlegt hefði verið að gefa út eitt blað, senda út framboðsfundi á netinu o.s.frv. Allt er vinnandi til þess að fjölbreytileg málefni og áhugasvið frambjóðenda séu dregin fram. Skráðir félagar eiga eingöngu að taka þátt í slíku vali.

Úrslitin endurspegla póstnúmerakosningu og smölun á stuðningsmönnum. Talið er að einn frambjóðandi hafi safnað hátt í átta hundruð stuðningsmönnum sem að er hátt miðað við heildarþátttöku. Kópavogsbúar virðast hafa verið duglegastir í að styðja "sína menn".

Hafnarfjarðarvélin setti Lúðvík auðvitað í fyrsta sætið en keppinauturinn var Árni Páll og því var Kópavogsbúinn Katrín Júlíusdóttir sett í annað sætið. Í þessum slag lendir Þórunn Sveinbjarnardóttir nokkuð útundan hvað varðar póstnúmerin.

Ég setti Gullsteinbrjót og Klettafrú austan úr Lóni á kynningarblaðið mitt. Þetta voru ágætir ferðafélagar. Tákn heilbrigðis og sköpunar. Persónukjör er hinn heilbrigði vinkill í stöðunni. Lokaröðun á lista liggi hjá raunverulegum stuðningsmönnum flokksins.

Ég vil þakka kjósendum, kjörstjórn og meðframbjóðendum fyrir ánægjuleg fundahöld síðustu dagana. Þetta hefur verið dýrmæt reynsla, sem ég ætla að nýta til að efla Samfylkinguna sem besta vettvang málefnalegrar umræðu og lýðræðis. 


mbl.is Víglínan markast í Kraganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Körfulán

ZurichFlestir þeirra sem að tóku myntkörfulán góðæris settu þau í blandaða körfu með svissneskan franka og japanskt jen sem helstu gjaldmiðla. Gengi þeirra hefur lækkað um 15% frá áramótum.

Ég hef leitt að því líkum að frankinn geti veikst verulega í tengslum við alþjóðlegan þrýsting um afnám bankaleyndar og upprætingu skattaskjóls.

Það er því íhugunarefni hvort skynsamlegt sé að fara þá leið sem stjórnvöld eru að opna að lántakendur geti breytt myntkörfulánum á húseignum yfir í verðtryggð húsnæðislán.

Nú eru Svisss og fleiri lönd búin að létta af bankaleynd. Aukinn áhugi er þar í landi að taka þátt í samvinnu undir merkjum ESB og taka upp evru. Efnahagslegur styrkur hefur byggt á leyndinni.


mbl.is Bankaleynd aflétt í Sviss og Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin lýðræðislega kjölfesta

Sjálfstæðisflokkurinn kom til kosninga á síðustu árum sem flokkurinn sem væri kjölfestan hvað varðar styrk og hag þjóðarinnar. Hið öfluga tengslanet valda og fjármála. Nú sætir þetta valdakerfi meira og minna opinberri rannsókn. Tjöldin eru fallin.

Það er mikil sigling á Samfylkingunni og er hún að marka sér sess sem hin nýja kjölfesta íslenskra stjórnmála. Þó allt annars eðlis heldur en Sjálfstæðisflokkurinn. Hún er hin lýðræðislega kjölfesta sem vinnur með fólki og fyrir fólk.

Telja má víst að ríkisstjórn verði ekki mynduð án þessa hryggjarstykkis sem hefur eitt burði til að efla samvinnu meðal fólks og þjóða. Mikill áhugi er á að flokkurinn lýsi yfir áframhaldandi vilja til samstarfs við Vinstri græna.

Ekki má þó loka málinu þannig að flokkarnir hrekji Framsóknarflokkinn til samstarfs við Sjálfstæðisflokk sem að hann hefur lýst sig andsnúinnn. Einnig er þörf á því að VG ljúki heimavinnunni í Evrópumálum.

Fréttir bárust nýlega af fundi frambjóðenda Sjálfstæðislokks í Suðvesturkjördæmi og þar lýsti aðeins einn úr um tólf manna hópi yfir andstöðu við aðild að Evrópusambandinu. Því má það ekki endurtaka sig sem gerðist 1991 þegar félagshygjuöflin sundruðust vegna mismunandi afstöðu til EES.

 


mbl.is Samfylkingin stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viltu hringja í mig?

Old%20TelephoneNetkosning í prófkjöri Samfylkingarinnar byrjaði á miðnætti og líkur kosningu á laugardag. Flokksfélagar og stuðningsmenn verða fyrir miklu áreiti. SMS sendingar, tölvupóstar og hringingar frambjóðenda. Ákveðið var að hafa auglýsingabann, fundi með frambjóðendum og miðlæga dreifingu kynnigarefnis. Þátttaka í þessu prófkjöri hefur verið mjög ánægjuleg. Það er gaman að sjá hópinn slípast til og kynna sig með sterkari hætti með hverjum fundi.

En ég fer eftir mottóinu "komdu fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig". Af þeim sökum fer ég ekki fram með persónulegar hringingar eða smölun. Hinsvegar er öllum velkomið að hafa samband við mig. Ég hef haft mjög gaman af að ræða við fólk á fundunum. En persónulega vildi ég ekki vera í sporum skráðra félaga í flokknum og fá hringingar frá fimmtán frambjóðendum á nokkrum dögum. Enda skilst mér að kvörtunum rigni yfir flokksskrifstofuna. 

En ég er til staðar og oftast viðræðugóður, finnst jafn mikilvægt að heyra skoðanir annarra eins og að eiga möguleika á að tjá mínar, síminn er 699-6684.


Lausnir strax

Myntkörfulán ---> Nýjan gjaldmiðil.  -Skoða einhliða upptöku evru samhliða ósk um aðildarviðræður við bandalag lýðræðisríkja í Evrópu.

Verðtryggð húsnæðislán ---> Afnema verðtryggingu frá 01.08.08  -Stöndum vörð um mikilvægustu veraldlegu verðmætin og dýmætustu svitadropa fólksins í landinu, látum húseignir ekki fuðra upp á báli verðtryggingar.

Almenningur er ekki að biðja um hjálp, hann vill sanngirni og réttlæti í fjarhagslegt umhverfi heimilana.


mbl.is Fjölmargir standa vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetaframboð?

Engu er líkara en frambjóðandinn á þessu myndbandi sé að bjóða sig fram í forsetakosningum. Hann er svo settlegur og formlegur. Þetta var tekið niður á Skjá einum. Eftir að hafa farið í förðun fékk hver og einn tvær og hálfa mínútu fyrir framan myndavél. Eitt rennsli, ekkert klippt til. Finnst fátt mikilvægra en að Samfylkingin bjóði upp á frjóa og málefanalega umræðu. Verði öflugasti vettvangur lýðræðis í landinu. Því hafði ég áform um að þetta innlegg væri fullt af málefnum, inntaki og ríkulegum boðskap, en þá sagði leikstýran "þú hefur svo falleg augu og sjarmerandi bros, notaðu það!". Svona eru prófkjör. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband